Goðsögnin Burt Rutan flugverkfræðingur sem er að smíða geimskipið Space Ship One - Myndband...

 

 
spaceshipone_edited-1.jpg

 

 

Burt Rutan flugverkfræðingur er lifandi goðsögn. Hann hefur hannað og smíðað margar óvenjulegar flugvélar og sýnt einstaka hugkvæmni. Meðal annars smíðaði hann Voyager sem flaug í einum áfanga umhverfis jörðina 1986, án þess að taka eldsneyti. Flugvélin var á lofti í 9 sólarhringa minnir mig. Nú er hann að smíða geimskip, þ.e. flugvél sem mun geta flogið með farþega út í geiminn. Space Ship One nefnist gripurinn eins og margir vita.

Burt Rutan er góður fyrirlesari. Hann hélt fyrirlestur fyrir flugáhugamenn á vegum Academy of Model Aeronautics þar sem hann fór yfir líf sitt, alt frá því hann byrjaði á því að fljúga flugmódelum - og setja met - þar til hann smíðaði Space Ship One.  Myndbönd frá fyrirlestrinum eru hér fyrir neðan.

Burt Rutan hefur oft fjallað um hve mikilvægt er að vekja áhuga barna og unglinga á tækni og vísindum. Leyfa þeim að dreyma og gera síðar draum sinn að veruleika. Það gerði Burt einmitt. Draumur hans hefur svo sannarlega ræst...   Hve margir draumar barna og unglinga skyldu eiga eftir að rætast? Líklega óteljandi.

Væntanlega verður meira fjallað um kappann síðar ef áhugi reynist vera fyrir hendi.

 

(Allan fyrirlesturinn má sjá í einu lagi á Vimeo hér http://vimeo.com/9864230 )

 

 

Burt Rutan 1 of 8 SpaceShipOne

 

Burt Rutan 2 of 8 Model Aircraft Competitions

 

Burt Rutan 3 of 8 Model Aircraft Competitions

 

Burt Rutan 4 of 8 Designing at Edwards AFB

 

 

 

Burt Rutan 5 of 8 First Home Built Airplane

 

Burt Rutan 6 of 8 BEDE aircraft

 

Burt Rutan 7 of 8 RAF Rutan Aircraft Factory

 

 

Burt Rutan 8 of 8 Scaled Composites

 

 

 

 

Hugurinn ber mann hálfa leið

 

 

Féttavefur íslenskra flugmódelmanna: www.frettavefur.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hitti þennan mann og hlustaði á hann á rampinum í Oskosh. Hann talaði svona almennt við hóp manna sem safnaðist að honum. Ég sagði ekki orð en ég var algerlega heillaður af því sem hann sagði. Glampinn í augunum kveikti í áhorfendum og það var unun að hlusta á hann. Þetta er maður sem er heillaður af flugi og tækni, eldmóðurinn eins og hann birtist þarna á myndböndunum. Ógleymanlegt að hitta hann. Hann var að fara á Defiant vél sinni, sem er furðuleg smíði, tveggja hreyfla sem eer skekkt þannig að hún hefur ekki assymetrisk thrust á einum hreyfli. Hann praktísérar sannarlega það sem hann préfikar og margar hugmyndir hans fæðast á servéttum yfir hamborgara. Ég vildi að mannkynið ætti fleiri svona snillinga.

Halldór Jónsson, 3.1.2011 kl. 07:52

2 identicon

Halldór , en varstu nokkuð á fyrirlestrinum hans um heimshlýnun, það er linkur í glærurnar frá honum  hér fyrir neðan

http://rps3.com/Files/Ochkosh_2010_talks/Oshkosh2010.EngrCritique.AGW.pdf

en glærur eru bara glærur, svo það væri gaman að fá smá "first hand" frásögn ef þú hefur verið þar.

En það er annars greinilegt að það er "geggjaður " gaur á ferðinni hér , gefur ekki fimmeyring fyrir heimshlýnunar kórinn , byggir geimskip án þessa að blanda stjórnvöldum í málið, er að set upp 17 hektara sólsellu-orkuver og byggir sér ðýramída tila búa í, 

Bjössi (IP-tala skráð) 5.1.2011 kl. 00:53

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég tek undir með ykkur að þessi maður er einstakur. Það er gaman að fylgjast með á myndböndunum hvernig krókurinn beygðist strax á fyrstu árum ævinnar og hvernig hann leyfði ímyndunaraflinu að stjórna ferðinni. Hann hefur einmitt í fyrirlestrum lagt áherslu á mikilvægi þessa atriðis í uppeldi og þroska barna og unglinga.

Flugvélar hans eru kapítuli út af fyrir sig og  af einhverjum ástæðum kemur Rutan í hugann þegar maður sér önd á flugi .     Reyndar ekki venjulega fiðraða önd, heldur vélknúna. Canard á frönsku þýðir önd, en Canard er einmitt notað yfir flugvélar þar sem aðalvægurinn sem ber uppi flugvélina er að aftan, en litli vængurinn að framan. Loftskrúfan að aftan.  Flugvélin snýr semsagt nánast öfugt í loftinu, eða þannig...

Hver veit nema fjallað veri hér á næstunni um flugvélar Burts Rutans og áhuga hans umhverfismálum. Af nógu er að taka.

 

Ágúst H Bjarnason, 5.1.2011 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 762094

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband