Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) er hér:

Sjálfsagt er að lesa skýrslu IPCC um loftslagsbreytingar. Einnig gagnrýni sem birst hefur. Skýrsluna er að finna hér:

 http://ipcc-wg1.ucar.edu/wg1/docs/WG1AR4_SPM_PlenaryApproved.pdf

Þetta er reyndar bara "Summary for Policymakers" Aðeins 21 blaðsíða að lengd. Vísindahlutinn kemur út eftir nokkra mánuði.

Þetta er ekki löng lesning.

Sjá vefsíðu Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC)  http://www.ipcc.ch ,   umræður á   Climate Audit.org , og á Realclimate.org

Hér má svo finna drög að allri skýrslunni ef einhverjum finnst erfitt að bíða í nokkra mánuði eftir því að vísindahluti hennar kemur út.

 

Ýmsar krækjur:

Umsögn Monckton lávarðar   Hér kemur margt á óvart.  Það er vel þess virði að glugga í þetta skjal.

Dr. Lubos Motl eðlisfræðingur við Harvard fjallar um skýrsluna  Lubos Motl er sérfræðingur í nútíma eðlisfræði (string theory) og hefur ýmislegt að athuga við aðferðafræðina við sem beitt er við útgáfu skýrslunnar, svo sem þá að byrjað er að gefa út einfalda samantekt, áður en lokið er við vísindalegar forsendur. Byrjað á þakinu og endað á grunninum. Honum er ekki vel við þessa  aðferðafræði  sem hann kallar "postmodern scientific method ".

Þar sem spádómar skýrslunnar eru byggðir á niðurstöðum tölvuforrita, eða hermilíkana, er full ástæða til að hugleiða áreiðanleika þeirra. Það hefur Dr. Myanna Lahsen gert og skrifað langa ritgerð "Seductive Simulations? Uncertainty Distribution Around Climate Models". Þar eru m.a sláandi viðtöl sem hún átti við starfsmenn (climate modelers) National Center for Atmospheric Research, þar sem hún dvaldi í sjö ár. Í viðtölunum viðurkenna þessir menn að þeir eigi til að gleyma sér í sýndarveruleikanum og vanmeta skekkjur. Það er ekki laust við að manni renni kalt vatn milli skinns og hörunds við lesturinn.  Best er að byrja á að lesa samantekt eftir Dr Roger A. Pielke loftslagsfræðing á umræðusíðunni Prometheus hjá University of Colorado, Boulder.    Hér er öll greinin:  Seductive Simulations? Uncertainty Distribution Around Climate Models

Hvernig skyldi hafa verið staðið að skýrslunni Summary for Policymakers? Getur verið að hún sé málamiðlun 311 fulltrúa frá yfir 100 þjóðum og samin að miklu leyti á fáeinum dögum fyrir birtingu 2. febrúar?  Getur það virkilega verið? Hér er fundargerð 10TH SESSION OF WORKING GROUP I OF THE INTERGOVERNMENTAL PANEL ON CLIMATE CHANGE: 29 JANUARY – 1 FEBRUARY 2007. Það þarf ekki að lesa lengi til að sjá hvað liggur að baki skýrslunnar. Menn voru að gera breytingar fram á fimmtudagskvöld 1. feb. Þessi hamagangur skýrir ef til vill villuna sem skýrt er frá hér fyrir neðan.

 ---

Meinleg villa í skýrslunni?  Sjá töflu SPM-0 á blaðsíðu 5. Þar stendur:

Sum of individual climate contributions to sea level rise     0.11 ± 0.05      0.28 ± 0.07

Prófið nú að leggja saman tölurnar þar fyrir ofan. Útkoman er allt önnur en 0,11 eða 0,28

 (0,042+0,05+0,05+0,14=0,11 ?  og   0.16+0.077+0.21+0.21 = 0.28 ?  !!!).  Það er ekki heldur að sjá að óvissuþættirnir leggist rétt saman. Hvernig í ósköpunum getur svona augljós villa verið í  skýrslu IPCC, Summary for Policymakers? Sjá myndina hér fyrir neðan.

IPCC-villan
Jæja, þetta voru bara þankar leikmanns.   Eiginlega er þetta allt saman ofvaxið skilningi hans.  Vel getur verið að framtíðin muni haga sér í samræmi við það sem sést í kaffibollum IPCC, þ.e. spávélunum sem kallast climate models. Þá verður áfram gott að búa á Íslandi.  Stundum á náttúran það þó til að hlusta ekki á slíkt, en fara sínu fram hvað sem tautar og raular. Tíminn einn mun leiða það í ljós. Gangi það eftir, þá mun leikmaðurinn lesa aftur greinina eftir Myanna Lahsen.
.
Sem betur fer eru enn til sannir vísindamenn með sjálfstæða hugsun. Vísindamenn sem ekki þurfa að láta vit-lausar vélar hugsa fyrir sig með óljósum véfréttum um framtíðina. Þeir eru stundum kallaðir sérvitringar eða efasemdarmenn, sem er víst ljótt orð. Eru þetta kanski bara óttalegir einfeldningar með barnshjarta?  Þannig menn hafa þó oft komið með nýjar hugmyndir og vitneskju í vísindaheiminn. Án þeirra væri heimurinn ekki eins og í dag.   Því miður heyrist minna í þeim en takkastjórunum. En við lifum víst á tölvuöld. Tölvurnar eru nefnilega svo klárar og þeim skeikar næstum aldrei.  Eins konar keisarar tækninnar.     - Það er þó ekki öll von úti. Eitt sinni fyrir langa löngu var saklaust barn ...
 .
"Men han har jo ikke noget paa!" sagde et lille Barn.
"Herre Gud hør den Uskyldiges Røst!" sagde Faderen, og den ene hviskede til den anden hvad Barnet sagde. Men han har jo ikke noget paa! raabte tilsidst hele Folket, det krøb i Keiseren, men han tænkte som saa, nu maa jeg holde Processionen ud, og Kammerherrerne holdt paa Slæbet som der ikke var. -   
     H.C.A.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Ágúst !  Það eru nokkuð fjörlegar umræður inni á svæðinu http://www.realclimate.org/  um villuna meinlegu.  Hún virðist hafa uppgötvast strax fyrir hádegi á föstudag og einn helsti páfinn hjá IPCC Stefan Rhamstorf er þarna inni að bera í bætifláka og afsaka fyrir afglöpin. Annars er hin eiginlega vísindaskýrsla ekki væntanleg fyrr en í apríl.  Ágripið nú er hins vegar gagnlegt, þó bíða verði enn um sinn eftir hinum eiginlega rökstuðningi.

Kveðja

ESv  

Einar Sveinbjörnsson, 5.2.2007 kl. 01:32

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Meira fjör!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2007 kl. 02:11

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sælir Einar og Sigurður. Takk fyrir póstinn.  Ég sá einmitt líka umræðurnar um villuna á Realclimate eftir ábendingu frá Climateaudit. Lubos bendir einnig á hana.

Ég er ekki mikið undrandi á að svona villur slæðist inn á síðustu stundu eftir að hafa skoðað fundargerðina sem ég vísaði á. Verið var að gera breytingar á orðalagi og sætta sjónarmið hinna ýmsu þjóða fram á kvöld 1. feb.

Einar, þú hefur væntanlega séð drögin að vísindaskýrslunni sem lekið var á netið. Smella hér.

Sigurður. Auðvitað njótum við þess í botn!  Þetta er allt saman mjög fróðlegt. Ég held að vísindamennirnir séu flestir eða allir að vinna af heiðarleika, en myndin getur bjagast þegar pólitík er komin í málið. Svo er hætt við að fjölmiðlar ýki dálítið með því að leggja áherslu á ystu mörk spádómanna.

Bestu kveðjur

Ágúst

Ágúst H Bjarnason, 5.2.2007 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 762112

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband