"Kjarnorkuver fyrir Vestmannaeyjar. Lýsing á tilboði General Electric"...

 

 


flow_diagram_nuclear_plant---cream-background_1064694.jpg

 

Raforkumálastjóra hefur borist tilboð í lítið kjarnorkuver.  Björn Kristinsson verkfræðingur á Orkudeild Raforkumálastjóra hefur unnið að mati á tilboði General Electric og skrifað ítarlega skýrslu sem nefnist "Kjarnorkuver fyrir Vestmannaeyjar. Lýsing á tilboði General Electric".

kjarnorkuvers-skyrsla-200w.jpgSkýrslan hefst á þessum orðum: "Í byrjun árs ... fengu Rafmagnsveitur ríkisins tilboð í lítinn suðuvatnsreaktor frá General Electric og voru þá Vestmannaeyjar einkum hafðar í huga sem væntanlegur staður fyrir reaktorinn. Með reaktor sem þessum mætti sjá eyjunum fyrir raforku, og jafnframt gæti hann verið undirstaða hitaveitu fyrir kaupstaðinn. Utan mesta álagstíma almennrar notkunar gæti reaktorinn séð varmafrekum iðnaði fyrri orku, og æskilegt væri að sem mest af orkunni sé seld sem varmi, því þannig yrði reaktorinn rekinn á hagkvæmastan hátt...

Kjarnorkuver þetta má staðsetja á flestum stöðum þar sem landrými er fyrir hendi. ... Í Noregi og Svíþjóð tíðkast að hafa þær neðanjarðar til að einangra þær frá umhverfinu og minnka þar með enn meir líkurnar fyrir óhöppum...  Reaktor af svipaðri gerð hefur General Electric reist við Vallecitos í Kaliforníu og er hann sýndur á mynd 1...."

Einnig hafa á vegum Raforkumálastjóra verið gefnar út skýrslurnar  "Stofnkostnaður kjarnorkustöðva og framleiðslukostnaður raforku (1958)". (Skýrslan er tekin saman af nefnd á vegum European Nuclear Energy Agency, og er hér um að ræða þýðingu með smávægilegum breytingum), og "Orkuverð frá litlum kjarnorkustöðvum (1959)"Í skýrslunni Orkuverð frá litlum kjarnorkustöðvum er reynt að finna út hvaða verð  yrði á orku frá kjarnorkustöð á Íslandi.

Höfundur er einnig Björn Kristinsson verkfræðingur, sem síðar stofnaði verkrfræðistofuna Rafagnatækni og varð einnig prófessor við Háskóla Íslands. Í skýrslunum er ítarlega fjallað um stofnkostnað, fjármagnskostnað og rekstrarkostnað slíkra stöðva. 

(Uppfært 3ja mars:  Skýrslunni Orkuverð frá litlum kjarnorkustöðvum bætt við).

Þessar skýrslur Raforkumálastjóra eru öllum aðgengilegar hér á netinu. Einnig má smella á eftirfarandi krækjur til að nálgast þær:


Myndin hér fyrir ofan sýnir kjarnorkuver. Þar er þó enginn kæliturn sýnilegur, en risastórir kæliturnar einkenna oft þannig orkuver, en þar sem kalt Atlantshafið er nærri má sleppa slíkum búnaði og einfaldlega kæla eimsvalann (condenser á myndinni, neðst til hægri) með sjónum...


Höfund greinargerðanna um kjarnorkuver má sjá á þessari hópmynd. Hann er þriðji frá hægri.

Fyrsta kjarnorkuverið sem framleiddi raforku til almenningsnota var AM-1 Obnisk orkuverið, sem hóf starfrækslu 27. júni árið 1954 í Sovétríkjunum. Það framleiddi um 5 megawött af raforku. Orkuverið í Vallecitos í Kaliforníu semhóf starfssemi árið 1957 var aftur á móti hið fyrsta sem var í einkaeign. Það framleiddi um 40 MW af varmaorku og 5 MW af raforku.

Það vekur athygli að skýrslur þessar eru ekki alveg nýjar og hafa líklega ekki verið áberandi fyrir sjónum almennings fyrr, en þetta var fyrir rúmlega hálfri öld...  Það er gaman til þess að hugsa hve tilbúnir Íslendingar voru að nýta sér nýjustu tækni og vísindi...

 

Um Raforkumálastjóra


 

 

643669.jpg

 

Eldri pistlar:

Kjarnorka á komandi tímum

Ótæmandi orkulind: Raunveruleg vetnisorka úr samrunaofnum innan 30 ára?

Sjálfbær nýting jarðhitans á Íslandi og kjarnorkunnar í iðrum jarðar...

 

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Pétursson

Fleiri sóknarfæri í leiðinni - heitur ókeypis sjór (affallssjór frá kælikerfi) í nýtt heilsuver í Eyjum - misheitir sjópottar, sjósundlaug o.fl.......

+ nýtt sóknarfæri fyrir stækkun hitaveitu í Eyjum....

Kristinn Pétursson, 27.2.2011 kl. 15:52

2 identicon

Menn voru aldeilis brattir þegar búið var að uppgvöta kjarnorkuna. 

Í dag er verið að reyna að ná tökum á samrunaorkunni. Ef það tekst þá er orkuvandamál heimsins leyst.

Hér er myndband um tilraunar samruna orkustöð í USA þar sem menn ætla að nota lazer geysla til þess að koma samrunanum af stað.

http://www.youtube.com/watch?v=yixhyPN0r3g

http://www.youtube.com/watch?v=QXcyH7QE7rU&feature=related

Þórhallur Kristjánsson (IP-tala skráð) 27.2.2011 kl. 21:21

3 Smámynd: Björn Emilsson

Kjarnorkuverið er gott innlegg í umræðuna um sjálfstæðar Vestmannaeyjar.

Björn Emilsson, 27.2.2011 kl. 22:30

4 identicon

Sæll Gústi.

Skemmtileg upprifjun en skrítið hvað lítil viðbrögð hún vekur.

Hver er annars kostnaður við svona eða aðeins stærri orkuver í dag?

Samningar sem ganga út á að framleiðandinn hirði allan úrgang ættu að vera umhverfisvænir.

 

 

Gudmundur Bjarnason (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 04:33

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þetta var á árunum 1958-1959.  Íslendingar hafa greinilega fylgst vel með nýjustu tækni þá.

Í dag, rúmum 50 árum síðar, eru starfrækt um 440 kjarnorkuver í 30 löndum, en fyrsta kjarnorkuverið sem framleiddi raforku fyrir dreifikerfið var reist árið 1954, aðeins fimm árum en skýrslan kom út. Framleiðslugeta þeirra er í dag 377.000 megawött, og framleiða þau um 14% af raforku sem notuð er í heiminum. Kárahnjúkavirkjun er 700 megawött og jafngildir þetta því um 530 slíkum virkjunum.

Kjarnorkuver eru keimlík jarðgufuvirkjunum, en varminn frá kjarnaofninum er notaður til að framleiða gufu sem snýr gufuhverflum. Í jargufuvirkjunum myndast gufan í iðrum jarðar. Hvað er það sem myndar varmann þar? Að miklu leyti er það kjarnorka!

Ágúst H Bjarnason, 1.3.2011 kl. 07:51

6 identicon

Sæll Ágúst

Menn voru að íhuga kjarnorkuver í Vestmannaeyjum vel fram á sjöunda áratuginn. Hafa ber í huga að lagning sæstrengs milli lands og Eyja var enginn hægðarleikur. Í bók sem ég á um sögu NKT, sem er alþjóðlegt stórfyrirtæki á sviði rafmagnsstrengjaframleiðslu, er miklu púðri varið í að segja frá lagningu sæstrengsins út í Eyjar og augljóst af þeirri umfjöllun að það verkefni þótti saga til næsta bæjar.

Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri getur um kjarnorkustöðvaráform sín í yfirlitsriti sínu um rafvæðinguna á Íslandi. Hann segir að ekkert hafi í raun verið tæknilega til fyrirstöðu að í þetta yrði ráðist - en að launakostnaður sérmenntaðra starfsmanna stöðvarinnar hefði orðið svo hár að dæmið gengi ekki upp.

Áhugaverðasti flöturinn í kjarnorkuævintýri Eyjamanna er þó að mínu mati sá að með þessu móti gerðu heimamenn sér vonir um að næg orka fengist til að hægt væri að leya úr vatnsskorti bæjarins, með því að eima sjó. Slík aðferð var þá orðin kunn erlendis, en gríðarlega orkufrek. Mér sýnist að vonin um sjóeimingu hafi ráðið mestu um að Eyjamenn fóru að gæla við að kjarnorkuvæðast - því þrátt fyrir allt var olíunotkunin til hefðbundinnar raforkuframleiðslu ekki svo mikil að hægt væri að reikna sig upp í hagkvæmni verkefnisins.

Kv,

Stefán Pálsson

sagnfræðingur

Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 12:02

7 Smámynd: Einar Steinsson

Í Zwentendorf í Austurríki stendur eina kjarnorkuver landsins. Það var reist og fullklárað þrátt fyrir mikil mótmæli í landinu en þegar kom að opnun 1978 voru lætin orðin slík að stjórnvöldum var ekki stætt á öðru en að láta fara fram kosningar um hvort ætti að taka það í notkun. Þrátt fyrir mikinn áróður og þrýsting stjórnvalda var naumur meirihluti (50,47 %) á móti því að setja verið í gang og það stendur enn ónotað og óhreift nema eitthvað af búnaði hefur verið notað sem varahlutir í samskonar ver í Þýskalandi.

Wikipedia grein um verið á Ensku og Þýsku

Einar Steinsson, 3.3.2011 kl. 12:10

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Smugan

"Til greina kom að reisa kjarnorkuver í Vestmannaeyjum"

http://www.smugan.is/frettir/frettir/nr/5328

Ágúst H Bjarnason, 3.3.2011 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 761796

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband