Sólgosin og norðurljósin undanfarið...

 

 

 

 solblossi.jpg

 

 

Fréttir af sólblossanum mikla hafa sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum. Í framhaldinu urðu miklar segultruflanir og falleg norðurljós sáust víða um heim. Reyndar var blossinn ekki einn, heldur sex mis öflugir, og sást sá næstsíðasti snemma í gærmorgun 9. mars, og annar í dag 10. mars.  Frá sólblossanum berst kórónuskvetturnar með ógnarhraða og munu þær skella á jörðinni 11. mars um klukkan 7 að morgni (+/- 7 klukkustundir), og síðan 12. mars um klukkan 18. Það er mikið að gerast í sólblettinum AR1429!

3spaceweather-jonina3.jpgÁ hinni þekktu vefsíðu SpaceWeather.com prýddi mynd Jónínu Óskarsdóttur forsíðuna, en myndina tók hún á Fáskrúðsfirði. Mynd af síðunni, eins og hún leit út 9. mars, er hér til hliðar og má sjá hana betur með því að smella tvisvar á hana.

Því miður var að mestu skýjað á höfuðborgarsvæðinu og spáin fyrir næstu nætur ekki mjög hagstæð. Það er þó hægt að fylgjast nmeð segulstorminum á vefsíðu sem heitir því ófrumlega nafni Norðurljósaspá og má skoða hér. Þar er fjöldinn allur af beintengdum myndum sem nota má til að átta sig á því hvort norðurljós séu sýnileg eða hvort líkur séu á því að þau sjáist.

Hin frábæra og víðfræga mynd Jónínu  minnir pistlahöfund á fallega norðurljósakórónu sem birtist einn sinn skömmu fyrir eitt geimskot franskra vísindamanna sem skutu upp fjórum Dragon geimflaugum í 400 kílómetra hæð frá Mýrdalssandi og Skógasandi. Það var árin 1964 og 1965. Myndir og lýsingu af geimskotunum má sjá hér.

Svona sólblossar eru yfirleitt meinlausir, en þeir geta verið skæðir. Árið 1859 urðu menn varir við gríðarlega öflugan sólblossa sem kenndur er við Carrington. Þá var tæknin enn frekar frumstæð svo menn sluppu með skrekkinn, en í dag er næsta víst að afleiðingarnar hefðu orðið alvarlegar.  Svona "Carrington" sólblossi á næstum örugglega eftir að valda usla á jörðinni, en það er nánast bara spurning um hvenær. Fjallað hefur verið um málið í bloggpistlum, t.d. hér.

Lesið um sólblett AR1429 og mynd Jónínu á Universe Today.

 

 

 

 Einstaklega fallegt myndaband af norðurljósum:

 

 

 

Hlustið á höggbylgjurnar brjótast út frá sólinni með því að smella hér.

Thomas Ashcraft náði þessum hljóðum með því að hlusta á tíðnisviðum radíóamatöra, 21MHz og 28MHz.



 

 

 

 


mbl.is Augu heimsins á mynd frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Takk fyrir þetta.

Marinó G. Njálsson, 10.3.2012 kl. 18:54

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þakka þér, spár mínar um hamfarir eru allar að ræstast!

Sigurður Haraldsson, 10.3.2012 kl. 21:48

3 identicon

Já, já, Sigurður minn. Í hvert sinn sem það er jarðskjálfti eða norðurljós, þá er heimurinn að farast.

Einar (IP-tala skráð) 11.3.2012 kl. 01:54

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Einar, aldrei sagt það heldur að um aukningu á hamförum sé að ræða :)

Sigurður Haraldsson, 11.3.2012 kl. 09:54

5 Smámynd: Sævar Óli Helgason

Tíhíhí...

Jamm... Ég er rétt komin yfir fertugt og ég held að ég hafi upplifað a.m.k ellefu "heimsendaspár..."

Hehehe...

Sævar Óli Helgason, 11.3.2012 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 762143

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband