Catalína snýr aftur...

 

 

 

 

 Catalina

 

Hefur einhver séð Catlínu nýlega? Það hef ég gert og meira segja strokið henni blíðlega, enda fátt fegurra á jörðu hér. Þeir sem kynnst hafa Catalínu gleyma henni seint... :-)

Hver er þessi einstaka Catalína sem margir hafa elskað? Fullu nafni heitir hún Cosolidated PBY5A Catalina og hefur stundum verið kennd við Vestfirði. Nú vakna öugglega góðar minningar hjá mörgum. Já, hún Kata, auðvitað. Hver man ekki eftir Kötunni...

 

tf-rvg.jpg

 

Myndin hér að ofan er tekin á Reykjavíkurflugvelli snemma á sjötta áratug síðustu aldar, en myndin efst á síðunni er tekin á svipuðum slóðum fyrir fáeinum árum. Báðar eru myndirnar af Vestfirðingi TF-RVG, en munurinn er sá að Sturla Snorrason smíðaði þá sem litmyndin er af.

 

 

Catalina-flugbátar voru notaðir á Íslandi um tuttugu ára skeið hjá Flugfélagi Íslands, Loftleiðum og Landhelgisgæslunni. Þetta var á árunum frá 1944 til 1963

Fyrsti Catalina-bátur Íslendinga var TF-ISP Gamli-Pétur Flugfélags Íslands. Flugvélin var keypt frá Bandaríkjunum árið 1944 og varð fyrsta íslenska flugvélin til þess að fljúga milli landa þegar Örn Ó. Johnson flugstjóri, Smári Karlsson flugmaður og Sigurður Ingólfsson flugvélstjóri flugu vélinni frá New York í október 1944 ásamt tveimur Bandaríkjamönnum. Gamli-Pétur flaug fyrsta millilandaflug Flugfélags Íslands sumarið 1945.

Catalina flugbátar Flugfélags Íslands, Gamli-Pétur, Sæfaxi og Skýfaxi, og Loftleiða, Vestfirðingur og Dynjandi, áttu mikinn þátt í uppbyggingu innanlandsflugsins á árunum 1944 til 1961. Þá voru flugvellir fáir og samgöngur á landi erfiðar og var því mikill kostur að geta lent á sjó.

TF-RÁN var síðasti Catalina flugbáturinn í notkun hérlendis, en það var flugvél Lanhelgisgæslunnar sem var í notkun hérlendis 1954 til 1963. TF-RÁN kom mikið við sögu í þorskastríðinu

 

Sturla Snorrason er mikill smiður. Hann hannaði og smíðaði forláta líkan af Vestfirðingi sem sjá má efst á síðunni og á myndbandinu hér fyrir neðan þar sem Sturla flýgur Vestfirðingi á Tungubökum í Mosfellssveit árið 2001. Það er gaman að fylgjast með gamla Catalinu flugstjóranum Smára Karlssyni sem greinilega yngist um nokkra áratugi þegar minningarnar streyma fram...

Þetta líkan af gamla Vestfirðingi er einstakt. Smíðin er návæm, uppdraganleg hjólastell og uppdraganleg flot á vængendum. Flugmennirnir í stjórnklefanum hreyfa sig  og svo getur líkanið flogið og hefur svipaða flugeininleika og fyrirmyndin.

Sturla selur smíðateikningar, uppdraganleg hjólastell og fleira sem sjá má hér, og hér.  Grein á ensku um þennan forláta grip má lesa með því að smella á hlekkina sem finna má hér. Vestfirðingur verður til sýnis í Flugskýli 1 á flugsýningunni annan í Hvítasunnu.

 

 

 

 
 
 
 
 
 
 
 

 

 Til að fræðast meira um smíði og flug véla eins og þeirrar sem Sturla smíðaði:

www.frettavefur.net


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég flaug nokkrum sinnum með Catalínu og eftirminnilegast var flug til Vestfjarða, þar sem Rúnar Guðbjartsson leyfði mér að vera frammi við gluggann neðst á nefinu í lendingu á Patreksfirði og horfa á sjóinn koma æðandi og skella á glugganum í lendingunni.

Catlinan var afar langfleyg, gat verið á lofti í meira en 20 klukkustundir í senn og komist 4000 kílómetr.

Hún var eitt af skæðustu vopnum Bandamanna gegn kafbátum Þjóðverja í orrustunni um Atlantshafið og það var t. d. "Kata" sem fann Bismarck þegar Bretar höfðu týnt honum eftir orrustuna á Grænlandshafi.  

Ómar Ragnarsson, 27.5.2012 kl. 19:55

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég get trúað að þetta hafi verið eftirminnilegt Ómar. Ég þykist muna að ég hafi flogið með Catalinu og Þristi á Sauðárkrók þegar ég var í sveit í Skagafirði á sjötta áratugnum.  Þá var auðvitað góður flugvöllur þar.

Ágúst H Bjarnason, 28.5.2012 kl. 06:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 762134

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband