Risastórt lýsingarlistaverk frumsýnt á Menningarnótt...

 

 

Á hápunkti Íslands
 
Á toppnum !
---
 

Verkís fagnar 80 ára afmæli á árinu og efndi af því tilefni til samkeppni meðal listamanna um hönnun á Pixel Art listaverki sem frumsýnt verður á Menningarnótt. Verkið hefst kl.23 og mun verða spilað fram á nótt sem og næstu kvöld.
 
Síðastliðinn vetur var framhlið starfsstöðvar Verkís að Suðurlandsbraut 4 lýst upp með LED lýsingu í gluggum, en hægt er að stýra hverjum glugga fyrir sig og fá hvaða lit sem er. Þar með varð byggingin að stórum striga listarinnar og hentug fyrir listaverk byggt á pixlum eða svokallað Pixel Art. Í sumar var svo efnt til samkeppni um hönnun á Pixel Art listaverki sem innsetningarþætti Verkís á Menningarnótt 2012.

Vinningstillagan sem sameinar verkfræði, tækni og list ber nafnið Pixlar og er eftir Hermann Hafsteinsson nemanda í grafískri hönnun við Marbella Design Academy á Spáni.


s4_-_ljosadaemi-crop.jpg
 
Suðurlandsbraut 4
Listaverkið verður lifandi og ljósadýrðin í gluggunum mun flökta taktvisst í öllum regnbogans litum.  Myndin var tekin þegar lýsingin var prófuð síðastliðinn vetur. Þetta var bara prufa, en nú byrjar gamanið fyrir alvöru.

Lamparnir eru gerðir með fjölda ljósdíóða, og eru þeir tengdir tölvu sem stjónar litavali.
 
 
 
-

 

 
Hver man ekki eftir þessari stórfenglegu ljósasýningu sem  hefst þegar myndbandið er um það bil hálfnað?   Skyldum við eiga von á heimsókn?  Hver veit?  Margt óvænt getur gerst á Menningarnótt!   Eins gott að vera viðbúinn öllu ...  Alien

 





VERKÍS er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Verkís rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins   Fjöldi starfsmanna er á fjórða hundrað.

www.verkis.is


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Gott að vita að þú hafir sett þig inn í þetta. Ég er einmitt að fara að prófa RGB LED lýsingu sem varanlega baklýsingu utandyra. Þ.e. það eru flekar sem eru hengdir utan á hús með útsöguðum mótívum sem verða baklýstir með lýsingu sem breytir tónum hægt og bítandi í skammdeginu.

Ég er að fá prufur frá Póllandi af vatnsheldum 150 (pr meter) ljósa ræmum, sem eiga að þola upp í 20 stiga frost a.m.k.

Ef þetta gengur upp, þá verður maður að fá einhverja mistýringu á þetta, því þetta eru margir tugir metra í 5 metra bútumhver með sínum controller.

Ég fæ kannski að leita ráða hjá þér þegar þar að kemur. 

Ég hef svosem gert eitthvað í þessari líkingu innandyra á stöðum sem ég hef hannað (Strawberries, þeim eðla stað t.d.) en það er svolítið önnur ella með þetta og svoer ég búinn að gleyma kontöktunum. Minnir að Denni hafi aðstoðað mig við þetta þar, en nú er orðið of langt síðan fyrir gamlan gaur að muna.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.8.2012 kl. 07:16

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það er gaman að sjá hvað þú hefur verið að gera Jón Steinar.    Hjá okkur í Verkís er öflugt lýsingarteymi sem mikið hefur notað ljósdíóður, en um það má lesa hér

Ljósdíóðutæknin hefur mikið breyst síðan ég kynntist henni fyrst fyrir rúmum 40 árum þegar ég var í skóla í Lundi og í fyrirlestrum hjá prófessor Hellmuth Herts í eðlisfræði fastra efna.  Í einni æfingunni vorum við látin búa til ljósdíóður, mig minnir úr gallíum arseníð flögu (eða var það gallíum arseníð phosphide?) sem við bræddum á örlítinn bita af zinkdópuðu tini, ef ég man rétt. Síðan var lóðaður örsmár vír beggja megin við PN samskeytin og straumi hleypt á. Allt gert með frumstæðum búnaði. Stundum lukkaðist að sjá dauft rautt ljós og fór þá smá fiðringur um mann :-)     Á þessum tíma voru ljósdíóður sjaldséðari en hvítir hrafnar.   

Ágúst H Bjarnason, 18.8.2012 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 762106

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband