Hafísinn um miðjan ágúst...


Staðan laugardaginn 16. ágúst 2014:

Norðurhvel:

(Hafísinn er í augnablikinu meiri en nokkur síðustu ár, 2008, 2010, 2011, 2012 og 2013).

Data here.

 


 




Suðurhvel:

 (Hafísinn er í augnablikinu meiri en öll ár síðan mælingar hófust 1981).

 Data here.

 


 

 

 

Samtals á norður- og suðurhveli:
 
(Heildar hafísinn er í augnablikinu meiri en meðaltal áranna 1981-2010).

Data here.


 

 

--- --- ---

 

 

Hafísdeild dönsku veðurstofunnar DMI.
Beintengdar myndir sem uppfærast daglega:

 

icecover_current_new

 

http://ocean.dmi.dk/arctic/icecover.php

 Útbreiðsla (sea ice extent) hafíss á norðurhveli jarðar
Myndin er frá hafísdeild dönsku veðurstofunnar ocean.dmi.dk

Myndin er beintengd. Sjá dagsetningu neðst á myndinni. Myndin breytist daglega.

Gráa línan er meðaltal áranna 1979-2000. Gráa svæðið er plús/mínus 1 staðalfrávik.

Sjá skýringar hér.

Í dag 17. ágúst er ísinn heldur meiri en árin 2010, 2011, 2012, 2013, og nærri meðaltali áranna 1979-2000,
en það getur breyst næstu vikurnar.

Hafísinn á norðurhveli nær lágmarki um miðjan september.

 

 

icecover_current

http://ocean.dmi.dk/arctic/plots/icecover/icecover_current.png

Önnur framsetning  og eldri: Útbreiðsla hafíss á norðurhveli jarðar

Myndin er frá hafísdeild dönsku veðurstofunnar ocean.dmi.dk

Sjá skýringar hér.

 

 

 

23ship5.600

Siglingar í hafís geta verið varasamar. Sjá frétt í New York Times.
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Og samt er Atlantshafið sagt vera að hitna. Þessi hitaaukning er talin valda aukningu á vindhraða í staðvindum í Kyrrahafi, sem aftur er sögð skýringin á því að hitastig hefur ekki hækkað á jörðinni um árabil. Sjá hér: http://vulkan.blog.is/blog/vulkan/entry/1427332/ (Ég vil benda á að prófessor Haraldur ritskoðar athugasemdir sem sendar eru á bloggið hans og birtir ekki athugasemdir sem gagnrýna pistla hans.) :-)

Erlingur Alfreð Jónsson, 17.8.2014 kl. 13:40

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Erlingur.  Takk fyrir athugasemdina. Sjálfur met ég skrif þess sem þú vísar á mikils og sjálfur leyfi ég mér að hafna athugasemdum á þessu bloggsvæði ef mér finnst þær ekki viðeigandi eða neikvæðar í garð annarra.  Um reglur sem hér gilda má lesa efst til vinstri á þessari síðu og í pistlinum Ritstjórnarstefna bloggsins.  Þetta eigum við Haraldur sameiginlegt.

Það er svo margt sem menn kunna ekki og skilja ekki í þessum fræðum sem fjalla um svokölluð loftslagsmál að við verðum að virða allar skoðanir og frekar hvetja til skoðanaskipta en letja. Þetta er flókið og forvitnilegt eins og kemur fram í athugasem þinni. Þess vegna er gaman að velta hlutunum fyrir sér og skoða allar hliðar með opnum hug.

Ágúst H Bjarnason, 17.8.2014 kl. 15:33

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ritstjórnarstefna ykkar Haraldar er ólík að því leyti að hann birtir ekki athugasemdir sem gagnrýna það sem hann fullyrðir. Ekki nóg með það heldur útilokar hann athugasemdir alfarið frá einstaklingum sem efast um hnattræna hlýnun af mannavöldum.

Við mig sagði hann eitthvað á þá leið að hann nennti ekki að eiga skoðanaskipti við menn sem ekki tækju mark á vísindalegum staðreyndum og þar með var ég útilokaður frá frekari athugasemdum.

Ég kíki reglulega á bloggið hans sem er oft fróðlegt og skemmtilegt, sérstaklega það sem fjallar um jarðfræði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.8.2014 kl. 22:15

4 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Tek undir með Gunnari. Ég virðist vera útilokaður á svipuðum forsendum þó mér hafi ekki verið tilkynnt það sérstaklega, en sú útilokun kom í kjölfarið á gagnrýni á pistla Haraldar tengdum hnattræni hlýnun af mannavöldum.  Prófessorinn hefur það eins og hann vill á sinni síðu.

Ég reyni samt iðulega að lesa pistlana hans sem eru skemmtilegir og fræðandi, og eru mér hvatning að leita frekari upplýsinga um efni þeirra, sérstaklega ef viðangsefnið er hnattræn hlýnun af mannavöldum. Mæli reyndar með að sem flestir lesi hans skrif um náttúruvísindi.

Sömuleiðis eru þín skrif skemmtileg og fræðandi Ágúst. Takk fyrir.

Erlingur Alfreð Jónsson, 17.8.2014 kl. 23:08

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Drengir góðir.

Það er alveg á mörkunum að ég hafi hleypt þessum athugasemdum í gegn. Ein athugasemd bíður birtingar.

Efst til vinstri á þessari síðu stendur:


"Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar".   Þatta er ekki flókið, en það getur verið flókið fyrir mig að taka afstöðu til athugasemda sem eru á mörkunum.   Því getur ýmislegt sloppið í gegn sem eftir á að hyggja hefði ekki átt að gera það.

Það má auðvitað deila um hvað er skætingur og neikvæðni, en neikvæðar athugasemdir um aðra bloggara líðast ekki. Því vil ég eindregið fara þess á leit að menn stilli sig. Sleppi því alveg að fjalla um skrif annarra svo að ekki þurfi að deila eða efast um það.

Guðmundur, mætti ég biðja þig um að senda þína athugasemd aftur, en sleppa þeim hluta sem fjallar um annað blogg. Ég get samvisku minnar vegna ekki birt hana óbreytta. Efnið verður að vera takmarkað við það sem pistillinn fjallar um.

Í Ritstjórnarstefnu bloggsins stendur meðal annars:   "Það verður mat pistlahöfundar hverju sinni hvort ástæða sé að hafa athugasemdakerfið opið eða ekki."   Ég hef því miður stundum valið þann kost þegar efnið tengist á einhvern hátt, beint eða óbeint, hitamálum eins og loftslaginu, en það var gert af illri nauðsyn.   Annar kostur væri að sleppa því alveg að skrifa um þau mál.     Ég vona að menn skilji þessa afstöðu mína.

Ég vil einnig biðja Harald afsökunar á því sem honum kann að mislíka hér í athugasemdunum.

Ágúst H Bjarnason, 18.8.2014 kl. 15:39

6 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Hlýnun sjávar hefur verið um það bil 0,001 (efstu 700metrarnir) á tímabilinu samkvæmt ARGO kerfinu 2008-2014.

það er fræðandi að bera þessi gögn saman.

http://jonova.s3.amazonaws.com/graphs/ocean/global-ocean-temperature-700m-v-2000m.gif

http://sunshinehours.files.wordpress.com/2014/08/global_sea_ice_extent_zoomed_2014_day_227_1981-2010.png

Guðmundur Jónsson, 18.8.2014 kl. 16:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 762156

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband