Ralph Alpher höfundur kenningarinnar um Miklahvell

Ralph Alpher Nýlátinn er einn af merkustu vísindamönnum samtímans Ralph Alpher 86 ára að aldri.  Kannast enginn við nafnið? Líklega fáir. Hann er þó einn þeirra sem lögðu grunninn að heimsmynd nútímans.

 

Árið 1948 varði hann doktorsritgerð sem fjallaði um nýstárlega kenningu  um að alheimurinn hefði orðið til í Miklahvelli fyrir 14 milljörðum ára.  Enginn tók mark á þessari kenningu fyrr en tveir radíó-stjörnufræðingar uppgötvuðu fyrir tilviljun örbylgjugeislun frá himingeimnum árið 1964 sem staðfesti kenningu Alphers. 

Það er undarlegt til þess að hugsa að tvímenningarnir hlutu Nóbelsverðlaunin, en ekki Alpher.

Meira um Ralph Alpher hér og hér 

Stjörnufræðivefurinn: Örbylgjukliðurinn - Bakgrunnsgeislun Miklahvells.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Kristinsson

Vinnan á bak við doktorsritgerðina var unnin ásamt George Gamow, sem var leiðbeinandi Alphers í doktorsnáminu. Hugmyndin um miklahvell í nútíma skilningi (en ekki nafnið, sem ég held að Gamow hafi fundið upp á) er töluvert eldri: bæði Friedman og Lemaitre héldu fram kenningunni 1925-30. Það sem var nýtt í ritgerð Alphers, skilst mér, var að hann hafði reiknað út hvert hlutfall vetnis gagnvart helíum ætti að vera skv. kenningunni og sýnt fram á að það væri í samræmi við athuganir (þ.e. um 10:1). Í beinu framhaldi af þessu reiknuðu hann, Gamow og Robert Herman svo nokkrum mánuðum síðar út hver bakgrunnsgeislunin frá Miklahvelli (eða öllu heldur frá frumeindamynduninni skömmu eftir hann) ætti að vera.

Auðvitað er það rétt að Alpher galt þess að vera á undan sinni samtíð og átti fyllilega skilið að vinna til Nóbelsverðlauna. En það var mikið að gerast á þessum árum og það sama má segja um allmarga aðra. Gamow er reyndar einmitt dæmi um þetta, en hann fékk aldrei Nóbelinn heldur, þrátt fyrir enginn geti efast um að hann hafi staðið framar mörgum þeim sem verðlaunin féllu í skaut.

Baldur Kristinsson, 30.8.2007 kl. 14:32

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Baldur

Þakka þér kærlega fyrir þennan mikla fróðleik.

Ágúst H Bjarnason, 30.8.2007 kl. 14:39

3 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk fyrir, Ágúst og Baldur. Mig langar til að skjóta inn smá "trivia". Einn sem kom nálægt þessum rannsóknum síðar, held ég, hjá NASA, var hálfbróðir minn, Hlöðver Pálsson, sem heitir J.G. Hills á amerísku og kom hingað fyrir nokkrum árum og hélt fyrirlestur um loftsteina, sem er sérgrein hans nú sem stjarneðlisfræðingur. Hann fór að vísu núna á eftirlaun.  En forðum skilst mér að hann hafi verið í "Hugsanatankinum" hjá NASA um upphafið, Miklahvell og hugsanleg endalok. Bara örlítið Íslendings- innskot.

Ívar Pálsson, 3.9.2007 kl. 21:38

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú ætla ég að biðja þig að vera bloggvin minn þar sem við erum saman í leshring.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 10:57

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eitthvað gengur það illa hjá mér núna eins og stundum, ert þú til í að prófa.?

Ásdís Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 10:59

6 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ásdís. Nú þarft þú líklega bara að samþykkja mig á Stjórnborðinu þínu. Ég reyndi þetta í gær. Láttu mig viat ef þetta gengur illa.

Ágúst H Bjarnason, 6.9.2007 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband