Nýárs-halastjarnan Tuttle

 Tuttle-jan-2008

 Þessi fallega mynd af halastjörnunni 8P/Tuttle er fengin að láni hjá www.spaceweather.com

 

Annað slagið birtast halastjörnur á himninum. Stundum koma þær óvænt, en stundum koma þær aftur og aftur, jafnvel með áratuga millibili. Alltaf ríkir þó óvissa um hve mikilfenglegar þær verða.

Nú er halastjarnan 8P/Tuttle á stjörnuhimninum. Hún er þó á mörkum þess að sjást með berum augum, en sést með handsjónauka, þ.e. ef vel viðrar. Það er þó ekkert síðra að skoða myndir sem teknar hafa verið af henni  undanfarna daga, en þær eru margar hverjar einstaklega fallegar. Á vefsíðunni  www.spaceweather.com eru einmitt fjölmargar slíkar myndir. Þar er einnig að finna upplýsingar um hvar halastjarnan er í dag.

Stjörnuþokan á myndinni er  M33 Triangulum.

 

Krækjur:

Myndasafn með myndum af Tuttle halastjörnunni á spaceweather.com

Vísindavefurinn: Hvernig verða halastjörnur til?

McNaught halastjarnan. Blogg með myndum frá janúar 2007.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég rakst á athyglisverða grein: Scientists: Time Itself May Be Slowing Down Það væri gaman ef þú sæir þér fært að gera hana betur skiljanlega fyrir svona tuskuhaus eins og mig . Mögnuð mynd sem fylgir greininni sem ég setti reyndar inn á bloggið mitt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.1.2008 kl. 03:19

2 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Orðlaus! Takk fyrir.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 4.1.2008 kl. 10:41

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sæll og Gleðilegt ár.

Mjög gaman að lesa þetta hjá þér.  Þú ert mjög fróður um þetta allt.   Ætla að leyfa mér að senda linkinn þinn á bróður minn sem er forfallinn stjörnuáhugamaður og er duglegur að miðla efni tengt þessu til nemenda sinna.

Marinó Már Marinósson, 4.1.2008 kl. 13:54

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Gunnar.  Þetta eru pælingar sem eru fyrir ofan minn skilning, að minnsta kosti enn sem komið er.  Það er þó alltaf gaman af svona löguðu og hver veit nema maður eigi eftir skilja eitthvað í þessu seinna.

Þangð til, þá er hér fjallað um hvernig lengja megi tímann http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/393052  svona í gríni.

Ágúst H Bjarnason, 4.1.2008 kl. 16:11

5 identicon

Ég hef ekki getað séð þessa halastjörnu hingað til vegna veðurs. Við hjá Stjörnuskoðunarfélaginu munum reyna að sýna fólki þessa halastjörnu á stjörnuskoðunarnámskeiðunum okkar nú í janúar og febrúar. Sjá á http://www.astro.is

Gaman að þessu bloggi þínu Ágúst, ég vonast svo til að sjá þig á fundum í vetur!

Sævar Helgi Bragason (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 20:27

6 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Sævar Helgi. Gaman að fá kveðju frá formanni Stjörnuskoðunarfélagsins www.astro.is  

Ágúst H Bjarnason, 4.1.2008 kl. 23:55

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

yndisleg mynd, stal henni :):)  hafðu það gott í stjörnugeimi, ég hef rosalega gaman af færslunum þinum.  Sjáumst

Ásdís Sigurðardóttir, 5.1.2008 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 761782

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband