Hvers vegna er hlaupár?

LeapYearBall_1884_LondonNews-BAp, jún, sept, nóv þrjátíu hver,
einn til hinir kjósa sér.
Febrúar tvenna fjórtán ber
frekar einn þá hlaupár er.

Hlaupár er það kallað þegar almanaksárið er einum degi lengra en venjulegt ár, þ.e. 366 dagar en ekki 365. Tilgangurinn er að samræma lengd almanaksársins og árstíðaársins, sem ræðst af gangi jarðar um sólu. Almanaksárið er að meðaltali 365 dagar 5 stundir 49 mínútur og 12 sekúndur eftir þessa leiðréttingu.

Í svokölluðum nýja stíl (gregoríanska tímatalinu) er hlaupár þegar talan fjórir gengur upp í ártalinu. Undanskilin reglunni eru aldamótaár, en þau eru ekki hlaupár nema talan 400 gangi upp í ártalinu.

Gregoríanska tímatalið eða "nýi stíll" er kennt við Gregoríus páfa 13. sem innleiddi það í Róm árið 1582.

Heitið hlaupár er talið dregið af því að margir merkisdagar í árinu eftir hlaupársdag hlaupa yfir einn vikudag.

Rætur hlaupársdagsins er hægt að rekja til ársins 46. f. Kr.  Í Bókinni Saga daganna eftir Árna Björnsson kemur fram að hlaupársdagurinn hjá Rómverjum var “...eiginlega 24. febrúar, því honum var skotið inn daginn eftir vorhátíð sem nefndist Terminalia. Eins og nafnið bendir til var þetta einskonar missiraskiptahátíð og að vissu leyti sambærileg við sumardaginn fyrsta hjá okkur. Munurinn er sá að Rómverjar virðast á ákveðnu skeiði hafa skipt árinu í þrennt. Var gömul venja að rétta tímatalið af með innskotum á þessum tíma, í lok vetrartímabilsins, og því þótti þeim Sesari eðlilegast að hlaupársdagurinn fengi þar inni” (bls 520)

Hvernig ætli það sé að vera fæddur á hlaupársdegi og eiga bara afmæli fjórða hvert ár? Halo

Hver er höfundur vísunnar góðu sem allir kunna  "Ap, jún, sept, nóv þrjátíu hver..." ? Errm

Næsti hlaupársdagur verður ekki fyrr en árið 2012. Njótum því dagsins í dag vel. Wizard

 

jcaesar_coin

 

Júlíus Cesar kom á hlaupárdsdegi 24. febrúar árið 46 f.Kr.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Í dag fékk ég ábendingu í tölvupósti varðandi spurninguna um vísuna sem ég spurði um. Svarið er að finna á Vísindavefnum hér.

Þar segir:

Þekkt íslensk minnisvísa er í rímtali Guðbrands biskups Þorlákssonar frá 1597. Vísan er til þess ætluð að auðvelda fólki að muna hversu margir dagar eru í hverjum mánuði. Hún er hér sýnd í ögn yngri gerð:

Ap, jún, sept, nóv þrjátíu hver.
Einn til hinir kjósa sér.
Febrúar tvenna fjórtán ber
frekar einn þá hlaupár er.
 

Ágúst H Bjarnason, 29.2.2008 kl. 18:03

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð vísa og hefur virkað alveg frá því ég lærði hana, gleymi aldrei fjölda daga í hverjum mánuði síðan.  Eigðu góða helgi. Leap Year

Ásdís Sigurðardóttir, 29.2.2008 kl. 18:34

3 identicon

   Sæll Ágúst.

           Vísan er talin vera eftir séra Ólaf Guðmundsson, sem var prestur á Sauðanesi, líklega frá 1567 til æfiloka um                    1609. Hann var skáld og þýddi marga sálma sem voru prentaðir í sálmabók og grallara Guðbrands biskups.                     Nokkur kvæði eftir hann eru varðveitt í handritum, meðal annars rímvísur og jólaskrá ásamt sálmum.                                  

                 Heimild; Íslenskar Æfiskrár eftir Pál Eggert Ólason 4. bindi.                                                                                              

                Þökk fyrir þína skemmtilegu og fróðlegu pistla.

                Kveðja.

                      Þorvaldur Ágústsson.
 

Þorvaldur Ágústsson (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 23:15

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Þorvaldur.


Þakka þér kærlega fyrir svarið við spurningu minni og þakka þér einnig fyrir aðrar áhugaverðar athugasemdir undanfarið. Þegar maður er að eðlisfari grúskari þá þykir manni vænt um að heyra frá öðrum sama sinnis. Ég er kannski einn af þeim sem kann sér ekki hóf...

Bestu kveðjur til ykkar á suðurströndinni.


Ágúst

Ágúst H Bjarnason, 1.3.2008 kl. 00:37

5 identicon

heyrði e-s staðar að ágústínus keisari hefði tekið einn dag af febrúar til að bæta við mánuðinn sinn (ágúst), því hann vildi ekki vera síðri maður en Júlíus keisari með sína 31 daga í júli. Sel það ekki dýrara en ég keypti það...

GunniP (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 01:44

6 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þetta eru nú áhugaverðar upplýsingar Gunni!  Eru þær nokkuð svo vitlausar?

Rúna Guðfinnsdóttir, 1.3.2008 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband