Í dag er jafndægur á hausti. Geta egg staðið upp á endann í dag?

Í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu segir um vorið að það sé frá jafndægri til fardaga en þá taki við sumar til jafndægris á hausti. Samkvæmt því lauk sumrinu í gær.

Með orðinu jafndægur er átt er við þá stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar, sem í fornu máli hét jafndægrishringur, og dagur og nótt eru jafnlöng um alla jörðina. Þetta gerist tvisvar á ári, á vorjafndægri á tímabilinu 19.-21. mars og á haustjafndægri 21.-24. september. Um þetta leyti er dagurinn um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni, og af því er nafnið dregið.

 

 

 Úr skáldskaparmálum Snorra-Eddu:

,,Frá jafndægri er haust, til þess er sól sezt í eykðarstað. Þá er vetr til jafndægris. Þá er vár til fardaga. Þá er sumar til jafndægris. Haustmánuðr heitir inn næsti fyrir vetr, fyrstr í vetri heitir gormánuðr, þá er frermánuðr, þá er hrútmánuðr, þá er þorri, þá gói, þá einmánuðr, þá gaukmánuðr ok sáðtíð, þá eggtíð ok stekktíð, þá er sólmánuðr ok selmánuðr, þá eru heyannir, þá er kornskurðarmánuðr."

 

 

 

Sumir trúa því að tvisvar á ári sé hægt að láta egg standa upp á endann, þ.e. þegar jafndægur er á vori og á hausti.  Nú er bara að prófa! Hvernig gekk þér?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einn góður kennari minn fyrrum orðaði það þannig, að jafndægur væri það augnablik, þegar hugsuð línu dregin þvert í gegn um jörðina um miðbaug, myndi hitta sólmiðjuna væri hún dregin nógu langt. Meira að segja ég skildi þetta.

Ellismellur (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 08:37

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Ellismellur.  Þetta auganblik verður klukkan 15:44 í dag

Ágúst H Bjarnason, 22.9.2008 kl. 08:45

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

hæ og gleðilegt haust minn kæri...ég spældi bara eggið og át það

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.9.2008 kl. 10:52

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Nú er ég spældur Katrín. Prófaðir þú ekki að láta eggið standa?

Gleðilegt haust og njóttu vel litanna í náttúrunni

Ágúst H Bjarnason, 22.9.2008 kl. 11:00

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Katrín!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.9.2008 kl. 12:09

6 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Góðan og blessaðan daginn. Nú er ég farin að láta egg standa upp á endann.

Kveðjur og heilsanir!

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.9.2008 kl. 12:36

7 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þá hef ég framkvæmt þessa tilraun með eggið.  Varstu kannski að gera grín að okkur? Ég hef sko aldrei áður prufað að láta egg standa upp á endann. Það gekk ekki vel í fyrstu. Ég var á eldhúsborðinu, en það féll alltaf um koll.

Ég færði mig yfir á stofuborðið, sem er jú slétt líka, en viðarborð.  Ég var ákveðin í að láta þetta ganga, var með kennaratyggjó ef ekki vildi betur.   En...mér tókst á endanum að láta eggið standa. Hér er mynd af egginu...og tyggjóinu sem átti að nota en þurfti ekki.          Kveðjur og heilsanir.

MYNDIN ER EKKI FÖLSUÐ!

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.9.2008 kl. 13:23

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Frábært Rúna.   Ég á sjálfur eftir að reyna. 

Ágúst H Bjarnason, 22.9.2008 kl. 13:46

9 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Gerðu það og láttu okkur heyra af árangri!

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.9.2008 kl. 13:49

10 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Salt er bráð nauðsinlegt fyrir egg líka ef það á að standa upp á endan.

Leifur Þorsteinsson, 22.9.2008 kl. 15:58

11 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég notaði sko ekkert salt. Tók bara eggið úr ísskápnum og það stóð á endanum eftir þolinmæðis vinnu

PS: Þetta var hrátt egg sem ég var með sem að lokum stóð upp á endann!

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.9.2008 kl. 16:07

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef aldrei skilið hernig stendur á jafndægrum og skil ekki heldur hvernig stendur á árstíðum. Ég hef samt lesið á því margar skýringar en skil það ekki samt. Ég dauðskammast mín fyrir tornæmi mitt en held að þetta sé einhver meinloka.  Ég skil nefnilega allt annað í henni veröld!   

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.9.2008 kl. 18:58

13 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Rúna.

Ég tók áskorunninni. Notaði rennislétta keramik plötuna á eldavélinni. Næstum eins slétt og gler. Hundraðkallinn staðfestir að myndin er tekin á Íslandi. Þetta gekk miklu betur en ég átti von á. Ég notaði ekki salt og ekki kennaratyggjó og ekki heldur Kólumbusar-aðferðina sem er þannig:

Það gekk illa hjá Kólumbusi að fá skip til langsiglinga því í þá daga trúðu svo margir að jörðin væri flöt eins og pönnukaka og skipin dyttu fram af ef þau færu of langt. Sagan segir að til að sýna mönnum að sumt væri öðruvísi en þeir hefðu alltaf haldið hafi Kólumbus spurt þá hvort þeir gætu látið egg standa upp á endann. Og þó að þetta væru menn sem kunnu ýmislegt fyrir sér var sama hvernig þeir reyndu og klóruðu sér í kollinum, það gekk ekki! Þá tók Kólumbus eggið og skellti því á borðið þannig að endinn brotnaði nægilega mikið til að það gæti staðið. Mennirnir rifu í hár sitt og skegg og hrópuðu upp yfir sig af hrifningu yfir þessari einföldu og snjöllu lausn - og viti menn, Kólumbus fékk skip!  (Nappað af http://www.ms.is/dr-magni/Rannsoknarstofa ).

Ég notaði sem sagt bara litlu ójöfnurnar sem er á skurn flestra eggja.

  Þrjú egg

Ágúst H Bjarnason, 22.9.2008 kl. 20:14

14 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ha ha ha...Þorvaldur bóndi spurði mig einmitt hvort ég hefði aðeins þrykkt egginu niður...það gerði ég auðvitað ekki...það sést á myndinni.

Því miður fattaði ég ekki að hafa íslenskt tákn.s.b.r. krónu... en mér tókst þetta, hvort sem mér er trúað eður ei. Til hamingju Ágúst, verða þeir fleiri í dag????

Kveðjur!

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.9.2008 kl. 20:31

15 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Er þetta ekki dæmigert að setja ÍSLENSKAN 100 krónu pening til að sanna að

egg geti staðið upp á endan. Hvernig væri að láta eggin standa uppi með

breiðari endan upp til dæmis í hrauninu við Svartseng þegar nú mosinn er

horfinn á braut vegna lyktarlausar hverafýlu.En vegna hraðs falls krónunar

er vissara að nota þúsundkall til sönnunar.

Leifur Þorsteinsson, 23.9.2008 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 10
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 761783

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband