NASA tilkynnti í dag: Sólvindurinn aldrei verið minni í 50 ár.

 

Það hljóta að teljast tíðindi að NASA tilkynnti það á fréttamannafundi í dag að styrkur sólvindsins sé nú í 50 ára lágmarki. "The average pressure of the solar wind has dropped more than 20% since the mid-1990s. This is the weakest it's been since we began monitoring solar wind almost 50 years ago."  Hlusta má hér eða lesa tilkynningu NASA hér fyrir neðan. Sjá pistilinn "NASA mælir minnkandi virkni sólar" frá 21. sept.

Mun þetta hafa áhrif á hitafar lofthjúps jarðar? Minnkandi sólvindur þýðir að styrkur geimgeisla eykst ("...cosmic rays around Earth, have jumped in number by about 20%), en hvað þýðir það?

Eftirfarandi er af vefsíðunni Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? Þar er kynnt kenning um samspil sólvindsins og hita lofthjúpsins.

 ---

Kenningar danskra vísindamanna um samspil sólar og veðurfars hefur vakið heimsathygli. Við Center for Sol-Klima Forskning, Dansk Rumforskiningsinstitut eru stundaðar rannsóknir á sólinni og áhrifum hennar á veðurfar. Vísindamennirnir hafa m.a. borið saman mælingar á geimgeislum og þéttleika lægri skýja og komist að merkilegum niðurstöðum.
Geimgeislar og skýjafar
 
Í stuttu máli, þá falla ferlarnir sem sýna styrk geimgeislanna og þéttleika skýjanna nánast alveg saman, eins og sést á myndinni hér til hliðar.  Getur þetta verið tilviljun, eða er einhver skýring á þessu? Geimgeislarnir koma frá öðrum sólum (sprengistjörnum -supernova) í Vetrarbrautinni og ætti styrkur þeirra að vera nokkuð stöðugur. Sólvindurinn frá okkar eigin sól mótar aftur á móti styrk geimgeislanna, þannig að styrkur þeirra breytist með styrk sólvindsins, og þar með virkni sólar.
 
Dönsku vísindaönnunum kom til hugar, að geimgeislar gætu átt þátt í breytilegu hitastigi jarðar - með hjálp sólar. Sólvindurinn hefur áhrif á styrk geimgeislanna, en styrkur sólvindsins fylgir virkni sólar. Þeir félagar skoðuðu gervihnattamyndir af skýjafari frá árinu 1983. 
 
Í ljós kom, að þegar geimgeislar eru veikastir þekur skýjahulan um 3 % minna en þegar geimgeislar eru hvað sterkastir.
 
Hvernig stendur á þessu? Ein kenningin gengur út á að vatnsgufan þéttist á rykögnum (aerosols). Geimgeislar jónisera gas í háloftunum. Jónirnar flytja hleðslu yfir á vatnsdropa sem draga að sér rykagnir. Rykagnirnar virka þá sem eins konar hvati sem flýtir fyrir þéttingu rakans.
 
Breytileg skýjahula þýðir auðvitað breytilegt endurkast sólarljóss, þannig að mismikill sólarylur nær að skína á jörðina.
 
"Mikil virkni sólar -> mikill sólvindur -> minni geimgeislar -> minna um ský -> minna endurkast -> hærra hitastig" !
 
 
Ef þessi kenning reynist rétt, þá er hér komin staðfesting á áhrifum sólvindsins á hitafar jarðar, því það gefur augaleið að minni skýjahula veldur hlýnun og öfugt. Til vðbótar þessum óbeinu áhrifum sólvindsins eru áhrif breytilegrar útgeislunar sólar.  Breyting á skýjahulunni um 3% milli áratuga er ekki lítið, og getur þessi kenning því skýrt stóran hluta hitabreytinga undanfarinna áratuga og alda.

---

Við getum líka sagt: "Lítil virkni sólar -> minni sólvindur -> meiri geimgeislar -> merira um ský -> meira endurkast -> lægra hitastig" !

Sem sagt, minnkandi sólvindur getur þýtt lækkandi htastig. 

Sjá einnig bloggpistilinn "Byltingarkennd kenning dansks vísindamanns skekur vísindaheiminn...." frá 20. feb. 2007.

 

 Eftirfarandi er af vefsíðunni  http://science.nasa.gov/headlines/y2008/23sep_solarwind.htm?list1078000

NASA - National Aeronautics and Space Administration Science@NASA Web Site

 

FEATURE

Solar Wind Loses Power, Hits 50-year Low

09.23.2008

+ Play Audio | + Download Audio | + Email to a friend | + Join mailing list

Sept. 23, 2008: In a briefing today at NASA headquarters, solar physicists announced that the solar wind is losing power.

"The average pressure of the solar wind has dropped more than 20% since the mid-1990s," says Dave McComas of the Southwest Research Institute in San Antonio, Texas. "This is the weakest it's been since we began monitoring solar wind almost 50 years ago."

McComas is principal investigator for the SWOOPS solar wind sensor onboard the Ulysses spacecraft, which measured the decrease. Ulysses, launched in 1990, circles the sun in a unique orbit that carries it over both the sun's poles and equator, giving Ulysses a global view of solar wind activity:

Above: Global measurements of solar wind pressure by Ulysses. Green curves trace the solar wind in 1992-1998, while blue curves denote lower pressure winds in 2004-2008. [Larger image]

Curiously, the speed of the million mph solar wind hasn't decreased much-only 3%. The change in pressure comes mainly from reductions in temperature and density. The solar wind is 13% cooler and 20% less dense.

"What we're seeing is a long term trend, a steady decrease in pressure that began sometime in the mid-1990s," explains Arik Posner, NASA's Ulysses Program Scientist in Washington DC.

How unusual is this event?

"It's hard to say. We've only been monitoring solar wind since the early years of the Space Age-from the early 60s to the present," says Posner. "Over that period of time, it's unique. How the event stands out over centuries or millennia, however, is anybody's guess. We don't have data going back that far."

Flagging solar wind has repercussions across the entire solar system-beginning with the heliosphere.

The heliosphere is a bubble of magnetism springing from the sun and inflated to colossal proportions by the solar wind. Every planet from Mercury to Pluto and beyond is inside it. The heliosphere is our solar system's first line of defense against galactic cosmic rays. High-energy particles from black holes and supernovas try to enter the solar system, but most are deflected by the heliosphere's magnetic fields.

Right: The heliosphere. Click to view a larger image showing the rest of the bubble.

"The solar wind isn't inflating the heliosphere as much as it used to," says McComas. "That means less shielding against cosmic rays."

In addition to weakened solar wind, "Ulysses also finds that the sun's underlying magnetic field has weakened by more than 30% since the mid-1990s," says Posner. "This reduces natural shielding even more."

Unpublished Ulysses cosmic ray data show that, indeed, high energy (GeV) electrons, a minor but telltale component of cosmic rays around Earth, have jumped in number by about 20%.

These extra particles pose no threat to people on Earth's surface. Our thick atmosphere and planetary magnetic field provide additional layers of protection that keep us safe.

But any extra cosmic rays can have consequences. If the trend continues, astronauts on the Moon or en route to Mars would get a higher dose of space radiation. Robotic space probes and satellites in high Earth orbit face an increased risk of instrument malfunctions and reboots due to cosmic ray strikes. Also, there are controversial studies linking cosmic ray fluxes to cloudiness and climate change on Earth. That link may be tested in the years ahead.

Above: The temperature and density of electrons in the solar wind have dropped since the mid-1990s. [Larger image]

Some of most dramatic effects of the phenomenon may be felt by NASA's two Voyager spacecraft. After traveling outward for 30+ years, the two probes are now at the edge of the heliosphere. With the heliosphere shrinking, the Voyagers may soon find themselves on the outside looking in, thrust into interstellar space long before anyone expected. No spacecraft has ever been outside the heliosphere before and no one knows what the Voyagers may find there.

NASA is about to launch a new spacecraft named IBEX (short for Interstellar Boundary Explorer) that can monitor the dimensions of the heliosphere without actually traveling to the edge of the solar system. IBEX may actually be able to "see" the heliosphere shrinking and anticipate the Voyager's exit. Moreover, IBEX will reveal how our solar system's cosmic ray shield reacts to changes in solar wind.

"The potential for discovery," says McComas, "is breathtaking."

SEND THIS STORY TO A FRIEND

Author: Dr. Tony Phillips | Credit: Science@NASA

more information

Ulysses home page

NASA's Future: US Space Exploration Policy

 

Artist concept of Heliosphere

 

Uppfært 24. sept: Sævar Helgi Bragason vísaði á íslenska útgáfu af þessari mynd af sólvindshvolfinu (heliosphere) sem er ásamt fróðlegum skýringum hér á Stjörnufræðivefnum.

 

--- --- --- 

 

 Óneitanlega lifum við á spennandi tímum!

 

 

Mælkevejens magtfulde stråling
Sune Nordentoft Lauritsen, informationsmedarbejder, Dansk Rumforskningsinstitut

 

 

Kosmiske stråler og Jordens klima

Jens Olaf Pepke Pedersen
Center for Sol-Klima Forskning, Dank Rumforskningsinstitut

 

Greinin "Cosmoclimatology: a new theory emerges"  eftir Henrik Svensmark er hér á pdf formiGreinin er mjög auðlesin og auðskilin. Þar er útskýring á kenningunni u samspil geimgeisla og hiatfars.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka þér fyrir Ágúst.  Þetta var í einu og öllu mjög áhugaverð lesning.  
 Þetta gefur til kynna að CO2 sé etv. ekki aðal orsaka valdurinn í hlýnun jarðar og mega það teljast mikil tíðindi.  

Sigursteinn (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 09:29

2 identicon

Hér má annars finna íslenskaða mynd af þessu.

Ég geri svo ráð fyrir að þessi frétt birtist á íslensku á Stjörnufræðivefnum síðar í dag.

Sævar Helgi (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 10:15

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir þetta Sævar Helgi.  Stjörnufræðivefurinn er frábært framtak, svo og vísindaþátturinn á Sögu. Ég var einmitt að hlusta á viðtalið við Guðna Sigurðsson um CERN í gærkvöld. Það er ómetanlegt að geta nálagst þættina á Stjörnufræðivefnum.

Ágúst H Bjarnason, 24.9.2008 kl. 10:47

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sigursteinn. Við verðum líka að hafa í huga að kenningin um samspil geimgeisla og veðurfars er enn nokkuð umdeild, en þó það trúverðug að CERN er að fara af stað með tilraun sem kallast CLOUD. Sjá CERN vefsíðu um málið hér

"...The CLOUD experiment involves an interdisciplinary team of scientists from 18 institutes in 9 countries, comprised of atmospheric physicists, solar physicists, and cosmic-ray and particle physicists. The PS provides an artificial source of ‘cosmic rays’ that simulates natural conditions as closely as possible. A beam of particles is sent into a reaction chamber and its effects on aerosol production are recorded and analysed..."

Ágúst H Bjarnason, 24.9.2008 kl. 10:57

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Mér hefur alltaf fundist kenningin um áhrif sólarinnar á hitafar vera áhugaverð en vandamálið virðist þó vera að tengja sólina við hlýnun síðustu áratugi þar sem virkni sólarinnar hefur ekki aukist á þeim tíma - frekar að það hafi dregið úr virkninni. Svo má líka velta fyrir sér hvort aukin skýjamyndun hafi bara áhrif til kælingar því aukin skýjahula ætti líka að koma í veg fyrir varmatap. En sjálfsagt hefur sólin þó sín áhrif en kannski ekki alveg ljóst með hvaða hætti.

Emil Hannes Valgeirsson, 24.9.2008 kl. 14:51

6 identicon

"Mér hefur alltaf fundist kenningin um áhrif sólarinnar á hitafar vera áhugaverð en vandamálið virðist þó vera að tengja sólina við hlýnun síðustu áratugi þar sem virkni sólarinnar hefur ekki aukist á þeim tíma"Emil H

Veðurathuganir sýna að hitastig jarðar hætti einmitt að hækka fyrir rúmlega 10 árum, þegar sólvindarnir fóru að minnka. Hitastig jarðarinnar í heild sinni hefur lækkað síðastliðin 10 ár, þrátt fyrir hærri hitastig nálægt pólunum. Það er því ekkert vandamál að tengja virkni sólar við hitastig jarðarinnar!

Kannski er ástæða til þess að fara gera athugasemdir við FOX-NEWS fréttamennskuna hér á landi? Eða á bara að leyfa Mogganum að flytja fréttir af hlýnun jarðar fram í rauðan dauðann? Hvað þarf til? Þurfum við bullandi ísöld til að VAKNA?

  "En sjálfsagt hefur sólin þó sín áhrif en kannski ekki alveg ljóst með hvaða hætti."Emil H

Ekki ljóst með hvaða hætti sólin hefur áhrif á hita jarðar???? Er þetta í alvörunni svona mikið voodooo science?

Þetta er kannski ekki svo flókið ef menn hvíla sig aðeins á áróðrinum í Imbakassanum, og svo Mogganum?

magus (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 15:48

7 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Það stefnir í að trúverðugleiki vísindamanna tengdum IPCC nefnd Sameinuðu þjóðanna verði álíka mikill og fjármálasérfræðingar á vegum bandarískrar fjárfestingalánasjóða njóta núna.

Finnur Hrafn Jónsson, 24.9.2008 kl. 16:12

8 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég vil bara benda á að kenningin um áhrif geimgeisla er enn umdeild eins og Ágúst segir sjálfur. Hér borgar sig ekki að slá neinu föstu og hvað þá að æsa sig. Ég vil svona til mótvægis við það sem kemur fram hér í pistlinum benda á niðurstöður breskra vísindamanna frá því í vor:
„Scientists have produced further compelling evidence showing that modern-day climate change is not caused by changes in the Sun's activity“
http://news.bbc.co.uk/2/hi/science/nature/7327393.stm

Emil Hannes Valgeirsson, 24.9.2008 kl. 16:58

9 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Eitthvað vesen áðan með linkinn (prófa aftur):

http://news.bbc.co.uk/2/hi/science/nature/7327393.stm

Emil Hannes Valgeirsson, 24.9.2008 kl. 17:04

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir krækjuna Emil.
 
Þegar Sloan kom fram með þessa gagnrýni fyrr á þessu ári voru heldur ekki allir sáttir með hans innlegg og urðu nokkrar ritdeilur. "The IPCC has got it right, so we had better carry on trying to cut carbon emissions" sagði Sloan, svo hann virðist ekki alveg hlutlaus.  Þetta er greinilega hitamál.

Náttúran sjálf mun hafa síðasta orðið í þeirri deilu, því svo virðist sem hún sé  í þá mund að gera tilraun sem vert er að fylgjast með. Virkni sólar virðist fara minnkandi þó hún hafi haldist mikil fram á síðustu ár. Fjöldi sólbletta var ekki lítill í síðustu sólsveiflu, en ýmislegt bendir til þess að næstu sólsveiflur verði frábrugðnar. Lengd síðustu sóslveiflu virðist ætla að verða óvenju löng, styrkur sólvindsins hefur farið minnkandi og geimgeislar aukist. Fari nú svo að virkni sólar minnki hratt og ef jafnframt hitastig lofthjúpsins fer lækkandi á næstu árum, þá hljóta menn að þurfa að endurskoða margt í vísindaheiminum.

Við fylgjumst spenntir með

Ágúst H Bjarnason, 25.9.2008 kl. 07:36

11 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Í framhaldi af athugasemd um trúverðugleika vísindamanna og fjármálasérfræðinga má benda á að Lehman bræður voru sannfærðir um hlýnun af mannavöldum sbr. skýrslur þeirra hér: http://www.lehman.com/who/intcapital/. Skýrslur þessar vöktu þó nokkra athygli á alþjóðavettvangi, bæði hjá stjórnmálamönnum og fjárfestum sem sáu möguleika á að græða á kvótabraski.  Helsti loftslagsráðgjafi þeirra var James nokkur Hansen hjá NASA, sem vill lögsækja olíufélög fyrir glæpi gegn mannkyni og náttúrunni.

Ekki töldu þeir neina ástæðu til að draga í efa skýrslu Stern sem þó hefur fengið mjög harkalega gagnrýni hjá hagfræðingum víða um heim.

Nú er orðið nokkuð ljóst að Lehman bræður voru ekki góðir spámenn um fjármál, er nokkur ástæða til að ætla að þeir verði eitthvað sannspárri í loftslagsmálum?

Finnur Hrafn Jónsson, 26.9.2008 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 762109

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband