Ætla ráðamenn virkilega að samþykkja forhertar stríðsskaðabætur Breta?

Financial Times segir að verið sé að ganga frá 600.000.000.000 króna láni svo Íslendingar geti greitt skaðabætur vegna Icesave.  Til viðbótar eru svo kröfur Hollendinga. Íbúar Íslands eru aðeins um 300.000.  Þetta eru því 3.000.000 krónur á hvert mannsbarn, þar með taldir hvítvoðungar og gamalmenni. 12.000.000 á hverja 4-manna fjölskyldu.

 

Eru Bretar endanlega gengnir af göflunum?  Bretar eru um 60 milljónir, eða um 200 sinnum fleiri en við. Þessir 600 milljarðar jafngilda því aðeins 10.000 krónum (50 sterlingspundum)  á hvern Breta. Ætli það sé ekki svipað hjá Hollendingum.

 

Ég held að Bretar kunni ekki að reikna. Þetta eru ekkert annnað en stríðsskaðabætur. Nú vitum við endanlega hverjir eru vinir okkar og hverjir ekki. Eru Bretar sérfræðingar í að sparka í þá sem eru minnimáttar, og helst þá sem liggja? Hvað kallast þannig menn?

 

Í þessa einfölduðu útreikninga vantar að minnsta kosti aðra eins upphæð vegna annarra lána. Hver Íslendingur mun væntanlega skulda yfir 6.000.000 þegar upp er staðið, og hver 4-manna fjölskylda 25.000.000, þ.e. íbúðarverð. Svo megum við ekki gleyma vöxtunum af þessum lánum...

Segjum að allt fari  á versta veg og þriðjungur landsmanna flytjist úr landi. Skuldin deilist þá á 200 þúsund manns og hækkar úr 25 milljón krónum á fjölskyldu í næstum 40 milljónir. Ekki falleg framtíðarsýn sem gæti blasað við ef menn fara ekki gætilega.

 

Vonandi átta ráðamenn sig á því hvað hangir á spýtunni og hvaða afleiðingar þetta hefði fyrir land og þjóð.  Að sjálfsögðu verður fjöldaflótti frá Íslandi nái þessi arfavitleysa í gegn. Fátækt og volæði hjá þeim sem eftir sitja.

 

Pétur Blöndal alþingismaður og tryggingastærðfræðingur segir kröfur Breta og Hollendinga hlutfallslega 3-4 sinnum hærri en stríðsskaðabætur þær sem Þjóðverðum var gert að greiða eftir fyrri heimsstyrjöldina !!!  Við vitum hvernig það endaði...

 

 

480571.jpg

Gordon Brown

 

 

 

Dr. Martin Scheinin, finnskur lagaprófessor og sérlegur sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi í baráttunni gegn hryðjuverkum segir að ákvörðun breskra stjórnvalda um að nota lög um varnir gegn hryðjuverkum til að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi sýni hvernig hægt sé að misnota slíka löggjöf.

 

Institute for Human Rights - Prófessor Dr. Martin Scheinin. Sjá ummæli hér.

"Britain's use of anti-terror laws to freeze the assets of failing Icelandic banks shows how such legislation can be abused for purposes other than originally intended, according to Martin Scheinin, the UN special rapporteur on the protection of human rights in the fight against terrorism".

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Góð herhvöt hjá þér Ágúst.

Ég hef verið að hvetja til að við setjum okkar eigin hryðjuverkalög, til að geta yfirtekið Bretskar eignir. Til dæmis, er von á stórri sveit Bretskra þotuflugvéla til landsins. Þær eigum við að taka sem veð fyrir bótagreiðslum Bretanna.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.10.2008 kl. 11:12

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Virkilega sorglegt allt saman.   Ég vil uppstokkun líka í pólitíkinni hér næsta vor.   Ég efast um að okkur beri lagaleg skylda til að borga þetta allt?

Marinó Már Marinósson, 23.10.2008 kl. 13:29

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Lögin eru alveg skýr. Þess vegna eigum við íslendingar ekki að greiða innistæðueigendum vegna útibúa bankanna erlendis neitt umfram það sem kveðið er á í lögunum. Annað væri mikil fásinna.

Loftur benti í athugasemdum hér á lög Tryggingasjóðs sem taka af allan vafa. Lögin má lesa hér.   Loftur bendir á þennan kafla laganna:

10. gr. Fjárhæð til greiðslu.
Nú hrökkva eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða heildarfjárhæð tryggðra innstæðna, verðbréfa og reiðufjár í hlutaðeigandi aðildarfyrirtækjum og skal þá greiðslu úr hvorri deild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. er bætt að fullu en allt sem umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 5. janúar 1999. Sjóðurinn verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu.

Nánar í athugasemdunum hér.

Ágúst H Bjarnason, 23.10.2008 kl. 14:20

4 Smámynd: Ívar Pálsson

Geir er sem betur fer farinn að taka undir andstöðu við greiðslu. Þá er „bara“ Samfylkingin eftir, sem virðist ákveðin í að semja, sem þýðir að greiða nokkur hundruð milljarða.

Ívar Pálsson, 23.10.2008 kl. 16:16

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Í neyðarræðu sinni, sem hann flutti áður en Neyðarlögin voru samþykkt, gerði Geir grein fyrir því að erlendar kröfur yrðu ekki greiddar, umfram greiðslur úr Tryggingasjóðs innlána og fjárfesta. Davíð endurtók þetta atriði á mjög skýrann hátt í sjónvarpsviðtalinu sem andstæðingar hans eru alltaf að hrópa um. Þessi stefna hefur alltaf verið skýr í mínum huga, hvaða lendingu sem hún kann að hljóta.

Hvað hefur Samfylkingin sagt ? Spyr sá sem ekki veit.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.10.2008 kl. 17:00

6 Smámynd: Ragnar Ágústsson

Ég tel við ættum að bjóða borgun til baka sem nemur að hámarki €20000 per innlánsreikning. Borgað yrði til baka sem nemur X% hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu í Y ár. X og Y yrði ákvarðað m.t.t. skynsamlegrar hámarks greiðslubyrgði.

Það vinnur enginn upp tap með því að keyra þjóðina í þrot. Þetta þarf að vera eitthvað skynsamlegt plan sem gerir þjóðinni kleyft að vinna sig upp úr þessu kviksyndi.

Ragnar Ágústsson, 23.10.2008 kl. 17:42

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Við bjóðum enga borgun umfram lagalegar skuldbindingar. Raunar eigum við þúsundir milljarða inni hjá Bretum, þannig að nærst þegar þeir koma, ættu þeir að koma hlaðnir Evrum, því að við viljum ekki Pund. Allar verslanir og bankar á landinu ættu að neita að taka við Pundum.

Annars er sendinefnd Bretanna farin heim, með öngulinn í rassinum. Það sem er þó mikilvægast í stöðunni er, að IMF lýtur ekki stjórn Bretsku hryðjuverka-mannanna. Skipan Alexander Gibbs í framkvæmdastjórn IMF dugði þeim ekki. Morgunblaðið sagði fyrir tveimur klukkustundum:

Bæði Geir, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sögðu nú undir kvöld, að hugsanlegt lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum væri ekki háð því skilyrði að niðurstaða lægi fyrir í viðræðunum við Breta.

Nú erum við loks komin á beinu brautina. Nú gildir að reka flótta Bretanna með málshöfðunum fyrir Bretskum og alþjóðlegum dómstólum.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.10.2008 kl. 21:24

8 identicon

þjóðkosningu um þetta mál takk fyrir  snýr að þjóðinni allri og við heimtum kosningu um svo alovarlegan görning

bpm (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 18:16

9 identicon

Sæll Gústi,

 Skrýtið hvað umræðan snýst alltaf upp í að gera grýlu úr útlendingum, þegar vandinn sem við stöndum frammi fyrir er að öllu leyti ÍSLENDINGUM að kenna. Eru menn eitthvað hræddir við að viðurkenna vandann. Er útlendingahatur á Íslandi á uppleið??!!

Jóhannes (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 12:18

10 identicon

Loftur,

  Það er sorglegt þegar lífsreynt fólk eins og þú byrjar að spúa eitri á vinaþjóð. Þú talar allavega ekki fyrir mína hönd.

 Í fyrsta lagi að þó að þessi lög sem Bretar beittu hafi í titlinum orðið terror, þá var þeim kafla laganna ekki beitt gagnvart íslendingum, heldur öðrum sem fjallaði um frystingu eigna, eða sértækar ráðstafanir. Það er spurning hvort að þú vísvitandi misskiljir það Ég trúi því reyndar ekki.

 Ótrúlegt líka hvað menn leggja sig fram um að gera sig að einhverjum fórnarlömbum Breta, þegar þeir sjálfir eru að reyna bjarga sínu eigin fólki, og að þeir sjálfir eiga í miklum vandræðum með bankana sína.

Hvað gerðist eiginlega hérna. Nokkrum aðilum voru veitt gríðarleg tækifæri þegar bankarnir voru einkavæddir, og þeir mokuðu inn peningum inn á sína reikninga(hvar sem þeir eru), með yfirtökum og kaupum á eignum á yfirverði(allt meira og minna fengið að láni), og síðan þegar eignabólann springur þá taki þeir óhjákvæmilega Ísland með í fallinu. Þeir (þ.e. háttsettir starfsmenn, stórir eigendur, sumir hluthafar) sitja eftir örruggir sem eftir er ævinnar, á meðan Ísland er setta 30-40 ár aftur í tímann.

...............síðan er verið að röfla um Breta............GROW UP!!

Jóhannes (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 13:35

11 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Hverra hagsmuna ert þú að gæta John Growup (Jóhannes Uppvöxtur) ?

Ert þú að halda því fram, að Bretsku lögunum um hryðjuverk, sem sett voru 2001 í framhaldi af hryðjuverka-árásinni á Bandaríkin 11.september 2001, hafi ekki verið beint gegn hryðjuverkum ? Voru þau kannski alltaf sett til að klekkja á Íslendingum ?

Auðvitað var það ekki, því að þeim hefur oft verið beitt gegn raunverulegum hryðjuverka-mönnum. Þessi lög nefnast: The Anti-Terrorism, Crime and Security Act 2001 og þeim var svo sannarlega beint gegn hryðjuverkum, á sama hátt og hliðstæð lög voru víða um heim. Það er aumt yfirklór yfir skítlegt eðli, að halda því fram að svo hafi ekki verið.

Það er svo annað mál, að þessi lög hafa ekki haldið gegn hryðjuverkamönnum og Hæstiréttur Bretlands úrskurðaði fyrir nokkrum mánuðum, að einmitt ákvæðið um frystingu eigna brjóti í bága við Stjórnarskrá Bretlands.

Þú talar John um Breta sem vinaþjóð, eftir að þeir hafa komið stærsta félagi Íslendinga í þrot og valdið okkur tjóni sem nemur þúsundum milljarða. Ég veit að fleirri en ég hafa lítinn skilning á þessari afstöðu þinni. Þú ert sannarlega undarlegur uppvöxtur.

Loftur Altice Þorsteinsson, 25.10.2008 kl. 21:06

12 identicon

Já en samkvæmt samtali þeirra Dralings og Árna þar sem Árni sagði að íslenska ríkið ætlaði að tryggja innistæður í íslönskum bönkum og það í topp en ekki Icesave sem eru íslenskir reikningar þó þeir séu ekki hér á landi er það ekki lögbrot og mismunun? Ef þeir hefðu haldið sig við að tryggja lágmarkið sem er tæplega 21 þús evrur þá hefðu bretarnir ekkert á okkur.

Hörður (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 00:55

13 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Bretarnir hafa ekkert á okkur Hörður, því að ekki hefur verið leitt í ljós hverjar lagalegar skuldbindingar okkar eru. Um það stendur siðaði hluti deilunnar. Má Íslendska ríkið ekki tryggja allar innlendar innistæður, eins og Írar og aðrir ? Bretar eða aðrir sem eiga innistæður hérlendis, njóta sömu innistæðutryggingar og Íslendingar.

Þegar Bretar höfðu tekið ákvörðun um að koma okkur á kné, sem var um mitt sumar eða fyrr, ákváðu þeir að tefja breytingar á útibúum Landsbankans í dótturfélög. Hvers vegan ætli það hafi verið ?

Það erum við sem höfum kröfur á Bretana, sem nema þúsundum milljarða.

Loftur Altice Þorsteinsson, 26.10.2008 kl. 11:08

14 identicon

Ég sé það núna að Lofti er ekki viðbjargandi. Hann hefur það greinilega ekki í sér að viðurkenna um hvað málið snýst. Það snýst um það að Íslendingar, og um það er ekki deilt(ekki einu sinni hjá bankamönnum), þar sem þeir eru að deila á mistök stjórnmálamanna á Íslandi. Þetta snýst einungis um það hvar ábyrgðin liggur, þ.e. hjá bankamönnum, stjórnmálamönnum, seðlabanka, fyrrv. stjórnmálamönnum o.s.frv. Líklega hjá öllum.

       ......en þú, í þínum barnaskap, talar einungis um ábyrð Breta?!  T.d. eru nýjustu fréttir af því að Kaupþing ætlar ekki að fara í mál við Breta, Landsbankinn var búinn að lofa ábyrgð sbr. viðtal við Björgólf og símtal Árna, æðstu stjórnendur Kaupþings voru að taka pening út úr bankanum, sbr. Bankastjórinn. Þetta eru allt staðreyndir sem blasa við núna....toppurinn á ísjakanum!!!

   ....og þú ferð í einhverja fýlu út í Breta.........þú ert ekki einu sinni hlægilegur.

Jóhannes (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:35

15 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Jóhannes er enn að viðra sína annarlegu hagsmuni. Það er hans mál, en það kemur sér líklega vel fyrir hann að leynast undir dulnefni.

Hvað varðar skaðabótakröfu Kaupþings á hendur Bretskum stjórnvöldum, þá er það mál í eðlilegum farvegi. Í vikunni munu hluthafar halda fund um málið og ákveða nærstu skref. Lögfræði-álit hafa fram að þessu, öll verið á þann vega að Bretar muni verði dæmdir til mikilla skaðabóta.

Nýjustu fréttir af Alistair Darling eru þær, að hann heldur áfram sinni haturs-för gegn Íslendingum. Hann hefur opinberlega lýst því yfir, að Bretar muni misbeita aðstöðu sinni í stjórn Alþjóða-gjaldeyrissjóðsins. Alexander Gibbs, sérlegum sendimanni Gordon Brown, er ætlað að reyna að hindra fjárhags-aðstoð IMF við okkur.

Jóhannes er í þokkalegum félagsskap, eða hitt þó heldur. Allir sæmilega siðaðir Bretar hafa skömm á tví-eykinu Brown og Darling, en Jóhannes er greinilega aðdáandi þessara varmenna.

Loftur Altice Þorsteinsson, 27.10.2008 kl. 16:13

16 identicon

Ég held nú að þú munir smám saman átta þig á því að sökudólgurinn á því hvernig komið er fyrir Ísland, er hvorki Brown né Darling.

   Þetta tekur kannski tíma, en dropinn holar steininn

Jóhannes (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 84
  • Frá upphafi: 761784

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband