Fjármálafræði fyrr á öldum

 

 


...Speculum regale...


 

Úr Konungsskuggsjá frá um 1260:


"En ef fé þitt tekur vöxt mikinn í kaupferðum, þá skiptu því til félags í aðra staði, þangað sem þú fer eigi sjálfur, og ver þó vandur að félagsmönnum. Jafnan skaltu Guð almáttkan og hina helgu Maríu láta eiga nokkuð í félagi með þér og þann helgan mann, er þú heitir oftast á þér til árnaðarorðs. Og gæt þess fjár rækilega, er helgir menn eiga með þér og fær það jafnan trygglega til þeirra staða, er það var til heitið í öndverðu.

En ef þú átt allmikið fé í kaupferðum, þá skipt því í þrjá hluti. Legg einn þriðjung í félagsgerð með þeim mönnum, er jafnan sitja í góðum kaupstöðum og sé þeir tryggir og kunni vel við kaup. En tveim hlutum skipt þú í ýmislega staði og kaupferðir. Þá er sízt von, að allt verði senn fyrir tjónum, ef í mörgum stöðum er fé þitt senn, og er þá helzt von, að í nokkrum stöðum haldist, þó að fjár háskar kunni oft að að berast.

En ef þú sér, að alhugað tekur fé þitt stórum að vaxa í kaupförum, þá tak þú af tvo hluti og legg í góðar jarðir, því að sá eyrir þykir oftast vís vera, hvort er manni er heldur auðið sjálfum að njóta eða frændum hans. En þá máttu gera, hvort er þér sýnist við hinn þriðja hlut, að hafa í kaupferðum lengur eða viltu allt í jarðir leggja."

 

Svei mér þá ef það er ekki meira vit í þessu en komið hefur fram hjá ráðamönnum banka- og fjármálastofnana undanfarið.  Wink

 

 

Um Konungsskuggsjá á Vísindavefnum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Konungsskuggjá líklega skrifuð af íslenskum ritara en lesin fyrir af norskum vísmönnum þess tíma. Við höldum áfram að skrifa sögur sem er mergur í en vísmennirnir eru ennþá erlendis að lesa okkur lexíuna.

Gísli Ingvarsson, 5.11.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Maður er orðinn svo hringlandi ruglaður yfir stöðugum fjármálaóreiðufréttum að maður veit hvorki upp né niður í sinn haus. Þetta eru líklega bestu leiðirnar í dag.

Kveðjur og heilsanir

Rúna Guðfinnsdóttir, 6.11.2008 kl. 00:01

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þeir hafa greinilega haft áhyggjur þá af hverfulleika heimsins og lagt fyrir mönnum skynsama áhættustjórnun.  Þarna er bent á að hafa ekki allt á sama stað, fjárfesta í landi og fela fleirum en einum ávöxtun fjársins.  Síðan má ekki gleyma að láta aðra njóta góðs árangurs í viðskiptum.  Loks er skotið inn skattheimtu kirkjunnar.

Marinó G. Njálsson, 6.11.2008 kl. 09:23

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Góðurrr frændi ! Það hefðu betur einhverjir kunnað þetta sem lögðu allt undir á eitt spil.

Halldór Jónsson, 6.11.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 84
  • Frá upphafi: 761784

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband