Auðlind sem má nýta til að komast úr kreppunni ...

 

Islenskur orkuidnadur  Urklippa 4 nov 08

 

 

Nú skiptir öllu máli að leita leiða til að reisa við efnahag þjóðarinnar á sem skemmstum tíma. Við þurfum að hlúa að gömlum og nýjum iðngreinum, hlúa að sprotafyrirtækjum og styrkja frumkvöðla til dáða. Allt tekur þetta tíma og er ekki raunhæft að búast við að árangur skili sér fyrr en með tíð og tíma. Á meðan er mikil hætta á verulegu atvinnuleysi og landflótta sem leiðir til fólksfækkunar. Hættan er sú að okkar bestu iðnaðarmenn og sérfræðingar flytjist úr landi. Sumir varanlega.

Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. nóvember var áhugaverð grein eftir Eyjólf Árna Rafnsson framkvæmdastjóra verkfræðistofunnar Mannvits og Svein I. Ólafsson framkvæmdastjóra verkfræðistofunnar VST-Rafteikningar.

Í greininni  benda þeir á að margir hafi lagt til að flýtt verði framkvæmdum við orkuiðnaðinn, en það kosti mikinn undirbúning sem taki mörg ár. Þörf sé á samstilltu átaki allra hlutaðeigandi aðila ef framkvæmdir í orkuiðnaðinum eiga að vera burðarás í verklegum fjárfestingum atvinnulífsins á næstu árum.

Þeir leggja áherslu á að ekki verði slakað á í umhverfismálum, fjalla um þær framkvæmdir sem eru í burðarliðnum, svo sem álver, netþjónabú og aflþynnuverksmiðju, og benda á aðra möguleika í framtíðinni.

Í greininni er síðan fjallað um mögulega nýtingu orkulinda Íslendinga næstu 8 árin og  kynnt hvernig framkvæmdir geti dreifst á tímabilið. Tekið er fram að fjárfestingar í orkuiðnaðinum sem hlutfall af landsframleiðslu geti þó tæplega orðið nema helmingur á við það sem var þegar þær voru mestar.

Niðurstaða þessarar áhugaverðu greinar er að mikilvægur þáttur þess að verja lífskjörin á Íslandi á næstu árum sé að fjárfesting, sem eykur atvinnu hérlendis og útflutning, stöðvist ekki. Því þurfi að halda áfram hóflegri nýtingu orkulinda landsins. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Það þurfi samstillt átak allra innlendra aðila sem eiga hlut að máli.

 

Greinina má lesa með því að smella þrisvar á myndina sem er efst á síðunni. Betra er þó að sækja hana sem pdf skjal hér, eða jpg mynd hér.

 

Það er ljóst, að með skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda okkar, án þess þó að slakað verði á í umhverfismálum, höfum við möguleika á að vinna okkur tiltölulega hratt út úr kreppunni. Á sama tíma verðum við að nýta tímann vel til að hlúa að ýmiss konar iðnaði og þjónustu, frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum, sem geta tekið við eftir áratug eða svo.

 

Við verðum að nýta tímann vel. Við megum engan tíma missa. Strax þarf samstilltar aðgerðir. Nú stefnir í 15-20.000 manna atvinnuleysi innan skamms ef ekkert verður að gert.

Við eigum auðlindir og við eigum mannauð. Hvort tveggja þarf að virkja.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sammála þér.   Við bara verðum að gera eitthvað og auðvitað á ekki að slaka á náttúruvernd.

Marinó Már Marinósson, 6.11.2008 kl. 08:42

2 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Það vill oft gleymast að það er mikil uppsöfnuð þekking og reynsla á Íslandi sem nýtist vel við virkjun fallvatna og jarðvarma. Það liggur beinast við að nýta þessa þekkingu áfram og virkja frekar landi og þjóð til hagsbóta. Það væru landráð af flónsku að gera það ekki.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 6.11.2008 kl. 09:25

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Fiskimiðin við Ísland eru gömul auðlind. Mesta atvinnuleysi og samfélagsleg niðurlæging hjá þessari þjóð er í þeim fjölda sjávarþorpa sem svipt hafa verið aðgengi að fiskinum í sjónum. Engum kemur nú í hug að þarna sé nærtækasta lausnin í dag.

Árni Gunnarsson, 6.11.2008 kl. 11:07

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svo er spurning hver mun hafa efni á því að nýta auðlindirnar. Mér finnst líklegt að verið sé að semja um afsal þeirra og eða leigu til fjölþjóðarisa í myrkum bakherbergju. Bretar ætla sér svo væntanlega að heimta veiðiréttindi upp í Icesave.  Þetta eru bara veð sem stendur og hvernig og hvort þeim verur ráðstafað ræður framtíð og sjálfstæði okkar. Það mun ekki skorta á hrægammana nú.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.11.2008 kl. 16:13

5 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

En Björk og Bubbi verða brjáluð ef við notum náttúruauðlindir Shocked

Rúna Guðfinnsdóttir, 6.11.2008 kl. 18:27

6 identicon

sæll frændi fór á íslendingabók og komst að því að ég og þú erum 4 liðum frá eyjólfi og guðrúnu felixdóttur grunaði  vegna þess að þú ert svo vísinda sinnaður.

bjarni pm (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 01:34

7 identicon

Legg til að verði reist olíuvinslustöð í helguvík og vinni olíu úr kolvetnis úrgangi sem heitir rusl svona verk smiðja býr til olíu úr til dæmis 3tonnum af rusli verður til 1 tonn af olíu ekki svo lítið sem myndi sparast af gjaldeyri og skapa störf og væri gott að nota háhita gufu við verkið  því ferlið notar hita að 300 gráður á celsíus

Bjarni p m (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 762104

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband