Hvaða loftslagshlýnun? Þannig spyr prófessor Ole Humlum...

 

hvada_loftslagshlynun.jpg

 

 Frétt Morgunblaðsins í dag, bls. 17.

Allt bendir til þess að árið sem er að líða verði það kaldasta á öldinni og ekkert hefur hlýnað síðastliðin 10 ár.  Samt halda margir að hlýnun lofthjúps jarðar sé í fullum gangi. Er ástæða til að staldra aðeins við og íhuga málin? Það er einmitt það sem prófessor Ole Humlum er að gera.

Vissulega hlýnaði á síðustu áratugum síðustu aldar og enn sem komið er hefur lofthitinn haldist þokkalega hár. Hann hefur þú ekki haldið áfram að hækka í nokkurn tíma. Því verður ekki á móti mælt.

 

 

smoothedmonthlyco2vstemps_751318.jpg

 

Myndin sýnir þróun lofthita síðastliðin 10 ár, mælt á tvennan hátt.

Blái ferillinn er mæling frá gervihnöttum og rauði ferillinn hefðbundnar mælingar á jörðu niðri.

Græni ferillinn sýnir aukningu koltvísýrings.

Ferillinn er frá miðju þessu ári og er því ekki með nýjustu gögnum, en þau má sjá á vefsíðu prófessors Ole Humlum sem fjallað er um í fréttinni hér að ofan, www.climate4you.com

 

 

Umfjöllun Ole Humlum om loftslagsbreytingar

Greinar eftir Ole Humlum

Árið 2008 er kaldasta árið það sem af er öldinni. Blogg eftir Emil Hannes.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róbert Björnsson

Já, ekki er hlýjunni fyrir að fara hér í Minnesota, en í augnablikinu er 31° frost...sem er nýtt desember-met. 

Róbert Björnsson, 16.12.2008 kl. 08:17

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Sæll, þessi umræða er auðvitað ekki heppileg á sama tíma og verið er að berjast fyrir aðgerðum gegn loftslagshlýnun. En úr því fyrirsögnin er „Hvaða loftslagshlýnun?“ þá hefði þó alveg mátt koma fram í fréttinni að það hefur verið töluvert hlýrra á jörðinni undanfarin ár heldur en eftir hlýnunarskeiðið 1910-1940.

Emil Hannes Valgeirsson, 16.12.2008 kl. 09:56

3 identicon

Sá styrr sem stendur um meinta "hlýnun af mannavöldum" á sér mjög svo pólitíska undirrót. Ýmsir hafa haldið því fram að þetta sé þvæla frá upphafi til enda. Mörg umhverfisvandamál eru margfalt meira aðkallandi, má þar t.d. nefna jarðvegseyðingu, eiturefnamengun margskonar og ofnýtingu og rányrkju auðlinda. Allt þetta ætti að vera ofar á forgangslista hvað aðgerðir varðar.

"þá hefði þó alveg mátt koma fram í fréttinni að það hefur verið töluvert hlýrra á jörðinni undanfarin ár heldur en eftir hlýnunarskeiðið 1910-1940"

En aftur á móti er hægt að benda á tímabil þar sem hiti hefur verið mun hærri á norðurhveli en hann er nú og á þeim tímum var áhrifum mannsins ekki til að dreifa.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 10:11

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Skyldi þó ekki tengjast gömlu Sólinni okkar.  Það er ekkert að gerast á þeim bænum :)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 16.12.2008 kl. 13:15

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er gott að einhver heldur þessu máli gangandi og dregur fram gögn með og á móti. Annars hefur mér fundist loftlagshlýnunarumræðan bera svolítinn keim af trúarbrögðum; annað hvort trúa menn á hlýnun eða þeir eru einskonar heiðingjar í þessum loftslagsmálum.

Ómar Bjarki Smárason, 16.12.2008 kl. 15:49

6 identicon

Auðvitað eru þetta bara náttúrulegar sveiflur í veðurfarinu - og nú er að kólna á ný .. .. ísinn á norðurskautinu miklu stærri en undanfarin nokkur ár.

Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 21:02

7 Smámynd: Gísli Ingvarsson

eftir fjögur góð sumur sunnanlands í röð hvernig verður þá næsta sumar....? varla hægt að búast við því að þetta vari mikið lengur... vona samt í lengstu lög.

Gísli Ingvarsson, 16.12.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Bráðum hætta heimsendaspámennirnir að tala um hlýnunina og fara að einblína á c02 aukninguna eingöngu. Reyndar sýnist mér að áhersla þeirra sé þegar komin á það, sbr. hér: http://esv.blog.is/blog/esv/entry/746252/ Merkilegt

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.12.2008 kl. 08:01

9 identicon

The most popular article on the Guardian’s website last week was the report showing that 2008 is likely to be the coolest year since 2000(1). As the Met Office predicted, global temperatures have been held down by the La Nina event in the Pacific Ocean...

The new figures have prompted similar observations all over the web. Until now the “sceptics” have assured us that you can’t believe the temperature readings at all; that the scientists at the Met Office, who produced the latest figures, are all liars; and that even if it were true that temperatures have risen, it doesn’t mean anything. Now the temperature record (though only for 2008) can suddenly be trusted, and the widest possible inferences can be drawn from the latest figures, though not, of course, from the records of the preceding century. This is madness.

http://www.monbiot.com/archives/2008/12/09/a-beardful-of-bunkum/

Magnus Gudmundsson (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 08:40

10 identicon

Árið 1998 var óvenjulegt ár og það ár var slegið hitamet (sterkasti El Nino í áratugi).  Að nota það ár sem viðmiðunarpunkt er nánast hægt að kalla talnafölsun. Sýndu okkur línurit sem sýnir ekki eingöngu síðustu 10 ár, t.d. mynd eins og þessa hér fyrir neðan og þá erum við að tala saman. Á þessari mynd eru óvenjuleg ár tekin út (svarta línan sýnir meðaltal nokkurra ára).

Ertu ekki vísindalega þenkjandi Ágúst, hættu þá að nota línurit sem ljúga.

Höski (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 13:43

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takið eftir því hvað árin síðustu eru jafn hlý og jafn hlýrri en árin fyrir 1998 og mjög hátt uppi. Merkir það eitthvað?

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.12.2008 kl. 15:21

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Höski minn.

Í pistlinum hér fyrir ofan stendur: "Allt bendir til þess að árið sem er að líða verði það kaldasta á öldinni og ekkert hefur hlýnað síðastliðin 10 ár".

Tíu ár eru árin 1999, 2000, 2001, 2002, 2003, 2004, 2005, 2006, 2007 og 2008.   Árið 1998 sem þú ert að tala um er 11. árið. Ekki tíunda. Þess vegna var ég hvergi að miða við árið 1998.

Einnig skrifaði ég í þessum örstutta pistli þar sem efnið er greinin í Mogganum: "Vissulega hlýnaði á síðustu áratugum síðustu aldar og enn sem komið er hefur lofthitinn haldist þokkalega hár".  Nokkuð ofsagt þar?

Ég vísaði á bloggpistil Emils  "Árið 2008 er kaldasta árið það sem af er öldinni"  þar sem ferillinn sem þú birtir hér fyrir ofan er umræðuefnið.  

Einnig vísaði ég á vefsíðuna www.climate4you.com þar sem er mjög gott safn hitaferla sem eru reglulega uppærðir með nýjustu mæligögnum.

 Hér er svo nýjasti hitaferlillnn sem sýnir mælingar gerðar frá gervihnöttum í þrjá áratugi:

Global temperature variations (1979 through 2008) of the lower atmosphere as  			   measured by NOAA and NASA satellites.  The smooth curve is a 4th order polynomial fit to the data.

Ágúst H Bjarnason, 17.12.2008 kl. 18:58

13 identicon

Já, þetta er frekar ónákvæm bloggfærsla hjá þér. Sérstaklega þar sem þú gefur það í skyn í öllu þínu tali í þessu bloggi að loftslagshlýnun sé ekki staðreynd. Þú færð falleinkun hjá mér, mögulega nærðu þó að skríða upp fyrir fimm með því að takast ágætlega að þykjast vera á báðum áttum varðandi hlýnunina. Ég sá reyndar fyrirlestur hér á blogginu þínu sem þú hélst um þetta efni og greinilegt að þú ert með áróður gegn loftslagshlýnun og texti þinn í þessu bloggi ber þess merki.

Af hverju talarðu þá ekki hreint út og segir bara eins og er að þú sért ósammála því að um loftslagshlýnun sé að ræða, í stað þess að tala svona í kringum hlutina?

Komdu með rök, ekki birta brotabrot úr einhverjum ferlum sem sýna ekki neitt nema einhverjar smávægilegar sveiflur sem hafa ekkert með loftslagshlýnun að gera.

Annars hef ég mjög gaman af þessu bloggi þínu, þrátt fyrir allt og takk fyrir að nenna þessu

Höski (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 08:29

14 identicon

Höski, ég les síðuna hans Ágústar reglulega og ég minnist þess ekki að hafa nokkurntímann séð Ágúst fjalla um að hlýnun jarðar sé ekki raunveruleg. Ágúst hefur fyrst og fremst verið að færa rök fyrir efasemdum um mannlegan þátt í hlýnun jarðar.

Hitt er svo annað mál að síðan allaveganna 2002 hefur hitastig á jörðinni hnattrænt staðið í stað eða lækkað það lítið að það er ekki marktækt, en það hefur allaveganna ekki hækkað. Ég nenni ekki að finna tölur fyrir þessu í augnablikinu, þetta hefur verið mikið rætt og jafnvel að Ágúst sjálfur hafi minnst á þetta. Hitt er svo annað mál að ef punkturinn er settur við árin 1999,2000 eða 2001 og dregin lína til dagsins í dag þá leitaði sú lína eflaust upp á við.

Bjarni (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 14:26

15 identicon

Að sjálfsögðu átti að standa "af manna völdum". Mín mistök.

Eitt verkefni fyrir Ágúst, hvernig væri að bera saman virkni sólar og þetta línurit sem hann birtir í bloggfærslunni, fer það saman?

... og ég biðst velvirðingar ef ég var harðorður hér ofar, það er alls ekki meiningin hjá mér að vera með stæla :)

kv. Höski

Höski (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 15:36

16 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Höski.

Ég hafði ætlað mér að fjalla um virkni sólar innan skamms og bera saman við hitafar o.fl.  Þar sem svo stutt er eftir af árinu ætla ég að láta það bíða þar til um miðjan janúar eða svo þegar niðurstöður hitamælinga vegna ársins 2008 frá helstu stofnunum hafa verið birtar.

Sjálfsagt mun ég þá m.a uppfæra ferilinn um samspilspil lengdar sólsveiflunnar og hitafars, eins og er í þessum pistli, og sitthvað fleira.

Sólin er enn mjög óvirk  og meira og minna laus við sólbletti, þó annað slagið hafi örlað á stöku örsmáum blett með segulstefnu sem gefur til kynna að hann tilheyri sólsveiflu #24. Það er þó erfitt að sjá með vissu hvot botninum hafi verið náð og sólsveifla #24 sé hafin. Væntanlega er það alveg á mörkunum. Sama er að segja um útgeislun radíóbylgna á 10.7 cm sviðinu sem er líka mælikvarði á virkni sólar; þar er allt með kyrrum kjörum.  Segulsvið sólar (Interplanetary Magnetic Field) er með minnsta móti. Heildarútgeiskun sólar hefur ekki verið minni síðan nákvæmar mælingar hófust. Sólsveifla #23 er orðin óvenju löng. Það er því margt áhugavert að gerast sem gaman er að skoða. Það er þó alveg ljóst að lítil virkni sólar skilar sér ekki alveg strax sem lækkað hitastig. Það getur tekið allmörg ár. 

Sem sagt, meira í byrjun næsta árs...

Ágúst H Bjarnason, 19.12.2008 kl. 06:43

17 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hvað er að gerast með segulsvið Jarðar?  Rakst á þessa frétt á NASA síðunni.  Er ekki alveg að skilja málið

Ásgeir Kristinn Lárusson, 19.12.2008 kl. 19:02

18 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Ásgeir

Ég verð að viðurkenna að ég skil þetta ekki alveg ennþá. Greinilega um einhvern mikinn leka að ræða. Alla vega mjög forvitnilegt, enda hefur það komið mönnum mjög á óvart.

 

"At first I didn't believe it," says THEMIS project scientist David Sibeck of the Goddard Space Flight Center. "This finding fundamentally alters our understanding of the solar wind-magnetosphere interaction."

Spurning hvort skýringarnar hér hjálpi eitthvað: http://spaceweather.com/glossary/imf.html   og  http://www.nasa.gov/mission_pages/themis/main/index.html

Ég rakst á umfjöllun veðurfræðingsins Antony Watts http://wattsupwiththat.com/2008/12/16/earths-magnetic-field-has-massive-breach-scientists-baffled/    og strengjafræðingsins Lubos Motl  http://motls.blogspot.com/2008/12/giant-breach-in-earths-magnetic-field.html

Hugsanlega skýrir þetta video málið best http://www.nasa.gov/mpg/297403main_THEMIS_svsLG.mpg

Svo hér: Leaks Found in Earth's Protective Magnetic Field http://www.livescience.com/space/081216-agu-solar-storm-shield-break.html

Hole discovered in Earth's magnetic field that protects planet from sun's rays

http://www.dailymail.co.uk/sciencetech/article-1096360/Hole-discovered-Earths-magnetic-field-protects-planet-suns-rays.html

Ágúst H Bjarnason, 19.12.2008 kl. 22:53

19 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þróun heildarútgeislunar sólar undanfarið, sem ekki hefur verið minni síðan mælingar utan gufuhvolfsins hófust:

 

Ágúst H Bjarnason, 20.12.2008 kl. 07:28

20 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Takk - þetta eru vægast sagt „magnaðar“ upplýsingar...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 20.12.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 761782

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband