Einstein gengur aftur...

Ekki er annað að sjá en Einstein gangi aftur í þessu stutta myndbandi...

 

 

 

 

 

 ---

 

 En þetta fagra fljóð sem nefnist Repliee Q1:

 

 

 

Ég er handviss um að þetta er stúlkan sem ég sá ganga á Laugaveginum í gær. Augun í henni voru svo undarlega fjarræn og seiðandi...   Hver var þessi stúlka?  Var hún hugsanlega af hinni nýju kynslóð sem kallast Android? Ný kynslóð? Hafa ekki Android verið á ferli síðan á þrettándu öld?

 

Android kallast mannvélar sem líta út og haga sér eins og ég og þú.  Þær gætu þess vegna verið á sveimi hér og þar án þess að við gerum okkur grein fyrir því Alien

Android er ekki nýyrði. Albertus Magnus (~1193-1280) notaði þetta orð yfir svona fyrirbæri sem hann smíðaði á sínum tíma. Um það má t.d. lesa hér.

 

 

albertus_magnus_5629-400w.jpg
 
 
mchem3.jpg
 
Magnus Magia - Major Philosophia - Maximus Theologia

 Albert mikli, eða Albertus Magnus, hönnuður fyrstu android mannvélarinnar

 

 

Eins og sjá má á myndskeiðunum, þá virðist þessi tækni vera komin ótrúlega langt. Hvernig get ég verið viss um að þú sért raunverulega þú næst þegar ég mæti þér, eða er það kannski Android sem heilsar mér?  En sjálfur ég?

 

Viltu sjá myndband sem náðist af Repliee Q1 heima hjá sér? Prófaðu hér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það er annars merkilegt hvað japanir hafa mikinn áhuga á svona mannvélum, eða vélmennum eins og maður hefur vanist á að kalla þetta. Hér á vesturlöndum er áhuginn ekki mikill enda virðumst við hugsa allt öðru vísi en japanir. Við viljum ekki búa til fólk úr vélum og viljum ekki að fólk sé eins og vélar á meðan japanir virðast hafa það sem takmark hjá sér að búa til mennskar vélar. Sjálfir eru þeir kannski vélrænni í hugsun en við.

En hvað sem þeir fá annars út úr þessu föndri sínu þá gefur þetta þeim allavega tækifæri til að þróa áfram tækni sem kannski nýtist til einhvers gagns á öðrum sviðum.

Emil Hannes Valgeirsson, 29.11.2009 kl. 12:03

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Emil.

Sammála þér varðandi áhuga Japana á að smiða véla sem líkjast mannfólkinu.

Þetta tengist væntanlega rannsóknum á svokölluðum vitvélum sem hægt væri að setja í "vélmenni" og smíða þannig vélar sem gætu orðið geimfarar framtíðarinnar á öðrum plánetum. Þetta eru vélar sem þurfa að geta ferðast um, skoðað umhverfið, og tekið sjálfstæðar ákvarðanir til að ná settu markmiði.

Ég notaði viljandi orðið mannvél í stað vélmenni vegna þess að ég var í vandræðum með gamla orðið android. Humanoid hefur einnig verið notað yfir vélar sem líkjast manninum. Android, sem sagt er að Albertus Magnus hafi smíðað, var ekki endilega mjög mennskt í útliti.

Vélmenni sem þýðing á robot er heldur ekki nógu gott, því robotar líkjast yfirleitt ekki mönnum. Svona robota þekkir maður sem hálfgerða berserki af myndum úr bílaverksmiðjum. Í daglegu tali er farið að kalla þannig robota þjarka.

Þá er eiginlega spurning, er til gott íslenskt orð fyrir android eða humanoid?  Eitthvað annað en vélmenni, mannvél, þjarki,...   Það væri fróðlegt að frétta af slíku orði.

Ágúst H Bjarnason, 29.11.2009 kl. 14:09

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þetta vélmenni eða android er frá því um 1500.

Það gat hreyft augun og tunguna, gefið frá sér hljóð og blásið reyk út um munninn.

. http://agbjarn.blog.is/users/fa/agbjarn/img/old-android--300w.jpg

Ágúst H Bjarnason, 29.11.2009 kl. 15:22

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Flottur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.11.2009 kl. 16:03

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 29.11.2009 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 762106

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband