Þriðjudagur, 23. október 2007
Sjörnuhimininn snemma að morgni ...
Þrálát úrkoma og leiðinda veður sunnanlands hefur komið í veg fyrir að hægt hafi verið að njóta fegurðar stjörnuhiminsins að nokkru marki. Það er eiginlega synd því þessa dagana prýða þrjár reikistjörnur himininn snemma dags. Þetta eru Venus, Satúrnus og Mars. Ein þeirra er lang skærust á suð-austur himninum og fer ekki fram hjá neinum. Það er auðvitað Venus. Þar skammt frá, dálítið til hægri, er Satúrnus, en Mars er nánast í hásuðri. Það er vel þess virði að líta upp í himininn snemma morguns og reyna að koma auga á þessar reikistjörnur eða plánetur.
Á stjörnukortinu hér fyrir neðan má sjá þessa þrjá nágranna okkar. Stærra og skýrara kort má sækja hér. Kortið er tölvuteiknað með SkyMapPro9 og gildir fyrir nokkra næstu daga. Þó svo að kortið sé teiknað fyrir stjörnuhimininn yfir Reykjavík, þá gildir það nokkurn vegin fyrir allt landið. (Eftir að kortið hefur verið opnað þarf hugsanlega að smella á það til að sjá kortið í fullri stærð. Einnig má hægrismella á krækjuna og nota Save-As til að vista kortið á diskinn).
Fallega myndin hér fyrir ofan er af Satúrnusi. Myndin er tekin frá Cassini geimfarinu í maí s.l. Litirnir eru því sem næst réttir. Myndin prýðir Astronomy Picture of the Day í dag 23/10. (Hér eftir daginn í dag). Þar stendur eftirfarandi:
Explanation: Saturn never shows a crescent phase -- from Earth. But when viewed from beyond, the majestic giant planet can show an unfamiliar diminutive sliver. This image of crescent Saturn in natural color was taken by the robotic Cassini spacecraft in May. The image captures Saturn's majestic rings from the side of the ring plane opposite the Sun -- the unilluminated side -- another vista not visible from Earth. Pictured are many of Saturn's photogenic wonders, including the subtle colors of cloud bands, the complex shadows of the rings on the planet, the shadow of the planet on the rings, and the moons Mimas (2 o'clock), Janus (4 o'clock), and Pandora (8 o'clock). As Saturn moves towards equinox in 2009, the ring shadows are becoming smaller and moving toward the equator. During equinox, the rings will be nearly invisible from Earth and project only an extremely thin shadow line onto the planet.
Bloggarinn minnsist með ánægju þegar hann smíðaði sér lítinn stjörnusjónauka um það leyti sem Sputnik var skotið á loft 1957. Ekki var hann flókinn; meters langur pappahólkur, sjónglerið var gleraugnalinsa með 100 cm brennivídd og augnglerið lítið stækkunargler með 2ja cm brennivídd. Hann stækkaði 50 sinnum sem var nóg til að skoða tunglin sem snúast umhverfis Júpiter og gígana á tunglinu okkar.
Á þeim tíma var ljósmengun í Reykjavík miklu minni en í dag. Því miður er nú svo komið, að stjörnuhimininn yfir höfuðborginni er nánast horfinn í glýju. Aðeins björtustu stjörnurnar sjást. Sjá grein bloggarans um ljósmengun hér.
Myndina sem er efst á síðunni má sjá í gríðarmikilli upplausn með því að smella hér. Myndin er miklu stærri en skjárinn, þannig að það getur verið nauðsynlegt að smella á hana til að hún birtist í öllu sínu veldi.
Ítarefni:
Astronomy Picture of the Day (APOD) skjáhvíla sem sjálfvirkt birtir mynd dagsins frá APOD vefnum. Mjög áhugavert.
(Norður er upp og austur vinstra megin).
Stærra og skýrara kort má sækja hér.
Kortið er miðað við stjörnuhimininn í vikulokin. Vonandi verður farið að stytta upp þá.
(Eftir að kortið hefur verið opnað þarf hugsanlega að smella á það til að sjá kortið í fullri stærð. Einnig má hægrismella á krækjuna og nota Save-As til að vista kortið á diskinn).
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Tölvur og tækni | Facebook
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 66
- Frá upphafi: 764863
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Þetta finnst mér merkilegt. Mig dreymdi svo sérkennilegan draum í nótt. Í honum var jörðin, sólin, tunglið og svo risastór stjarna sem ég taldi vera Merkúr. Það sem var svo skrítið var stærð stjarnanna og hvað þær voru nærri jörðinni. Ég fylltist af rosalega ójafnvægi og svimaði rosalega og þorði ekki að horfa, heldur tók myndir og það sem var svo skrítið var að sólin gekk til viðar og slokknaði á kvöldin og þá kom önnur í staðin, náði rosalega flottum myndum, en þær voru ekki í vélinni minni í morgun skil ekki svona drauma.Langaði bara að deila þessu með einhverjum
Ásdís Sigurðardóttir, 23.10.2007 kl. 18:52
Þetta er merkileg tilviljun Ásdís. Svo er ég með þennan risastóra hnött efst á síðunni Þetta hefur greinilega verið óvenjulegur og sérstakur draumur, en verst af öllu er að engar myndir voru í myndavélinni í morgun
Annars er mjög gaman að ferðast um himingeiminn með hjálp netsins. Þar er að finna margar ótrúlega skýrar myndir sem hafa verið teknar með hjálp Hubble sjónaukans sem er á braut um jörðu, og mannlausra geimskipa sem hafa verið á siglingu um sólkerfið. Það getur svo sannarlega kynnt undir ímyndunaraflið að skoða slíkar myndir.
Mér er minnisstætt þegar ég sá fyrst hringa Satúrnusar með litla sjónaukanum mínum (mynd hér). Man vel eftir hrifningunni sem ég fann fyrir, og því hve nálægur mér fannst hnötturinn vera þó ég vissi vel hve óralangt hann væri í burtu, eða í um 1500 milljón km fjarlægð. Samt var hann eitthvað svo nálægur í huganum.
Ágúst H Bjarnason, 23.10.2007 kl. 20:41
Takk fyrir þetta - að horfa til stjarnanna fyllir mig lotningu og um leið depurð - finnst einsog ég hafi verið skilinn eftir í skammarkróknum...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 23.10.2007 kl. 22:02
Ég man eftir slíkum draum þegar ég var unglingur. Þá hafði ég skoðað nýútkomna bók hjá mági mínum, um himingeiminn. Stórkostlegar myndir hvernig um væri að litast ef ég stæði á t.d. Júpíter eða Venus o.s.frv. Ég varð fyrir svo miklum áhrifum að mig dreymdi hnetti og tungl allt í kringum mig alla nóttina. Þetta er dásamlegt hugðarefni, jafnframt því að vera hræðilega ergjandi vegna ófullkomleika okkar í að þekkja óendanleika alheimsins.
Rúna Guðfinnsdóttir, 25.10.2007 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.