Föstudagur, 26. september 2008
Píanósnillingurinn margbrotni Martin Berkofsky, radíóamatörinn og mannvinurinn
Vinur minn Martin Berkofsky píanóleikari mun halda tónleika í Salnum Kópavogi Laugardaginn 27. september klukkan 17. Martin er um margt óvenjulegur maður, sem ekki fer troðnar slóðir, og mun ég koma að því síðar í pistlinum. Fyrst smávegis sem ég nappaði af vef Tímarits Máls og Menningar hér:
Draumar, dulhyggja og þjóðlegir tónar er yfirskrift Töfratónleika Einars Jóhannessonar klarínettuleika og Martins Berkofskys píanóleikara í Salnum á laugardaginn kl. 17. Efnisskráin er fjölbreytt, m.a. leika þeir verk eftir Schumann, Þorkel Sigurbjörnsson, Brahms, Howhaness og Beethoven.
Martin B.erkofsky er hreint ævintýralegur píanisti Hann hefur ekki spilað á Íslandi í 20 ár, en það muna margir eftir honum frá því að hann bjó hér á landi. Árið 1982 lenti hann í mótorhjólaslysi hér heima og fór fljótlega af landi brott. Hann var allur negldur saman en var farinn að spila á tónleikum nokkrum vikum síðar. Slysið breytti lífi Martins. Hann var svo þakklátur fyrir lífgjöfina auk þess sem hann lifði af krabbamein árið 2000, að hann ákvað að helga líf sitt góðgerðarstarfsemi það sem eftir væri. Hann kemur aðeins fram á styrktartónleikum og spilar ekki lengur fyrir peninga handa sjálfum sér, heldur rennur allur ágóði til góðgerðarmála. Eftir krabbameinsmeðferðina ákvað hann að hefja maraþonhlaup. Hann hljóp t.d. frá Tulsa í Oklahoma til Chicago og safnaði nógu miklu fé til að kaupa krabbameinsleitartæki handa sjúkrahúsinu í Tulsa þar sem hann hafði fengið lækningu. Það eru stórir og miklir andar með Martin hann er ekki alveg af þessum heimi", segir Einar Jóhannesson.
Einar hefur spilað mikið með Martin í gegnum tíðina. Martin hefur inspírerað mig. Þegar mikið liggur við og ég get aðstoðað hann spila ég með honum og legg honum lið í þessu kærleiksríka starfi. Ég fæ líka mikið út úr því að geta notað listina til að styrkja góð málefni. Martin er í þessu af lífi og sál og þegar mér bauðst að halda tónleikana í TÍBRÁ í SALNUM núna í september, fannst mér alveg rakið að fá hann heim.Því má bæta við að Martin var undarabarn í tónlistinni. Hann byrjaði að leika á tónleikum átta ára gamall. Á æskuárum ferðaðist hann viða um heim og lék með m.a. London Symphony Orchestra og Konzerthausorchester Berlin. Sjá umfjöllun um meistarann hér á Wikipedia.
Þetta er það sem flestir vita um Martin Berkofsky, en færri vita að hann hefur í frístundum sínum verið að gera tilraunir m.a til að hafa fjarskipti milli landa með því að endurvarpa radímerkjum frá loftsteinum og norðurljósum, svokallað meteor-scatter og aurora-scatter, auk þess að nota jónahvolfið. Enn er hann að gera tilraunir með að nota tunglið til að endurvarpa radíómerkjum milli heimsálfa, nokkuð sem kallast moon-bounce og fjarskipti um AMSAT gervitungl radíóamatöra reyndi hann vissulega. Martin hefur lengi verið radíóamatör með kallmerkin KC3RE og TF3XUU og stundaði það áhugamál sitt af kappi meðan hann var búsettur á Íslandi. Ef minnið svíkur mig ekki, þá kom hann sem ungur maður að viðhaldi einnar af fyrstu tölvanna. Gott ef það var ekki UNIVAC. Lampatölva smíðuð úr 5.200 lömpum, enda var það fyrir daga transistorsins. Reyndar er svo langt síðan Martin sagði mér frá þessu að vel getur verið að mig misminni. Kannski var það sama dag og hann lék Stars and Stripes Forever eftir Sousa á flygilinn heima af svo miklum eldmóði að við lá að þakið færi af húsinu Á einhvern undraverðan hátt getur hann látið píanóið hljóma eins og heila hljómsveit sem spilar þennan fræga mars.
Martinn var mikill áhugamaður um mótorhjól, en lenti því miður í slæmu slysi á Hringbrautinni árið 1982. Hann margbrotnaði og var negldur saman á fjölmörgum stöðum með stálnöglum. Af þeim sökum setur hann yfirleitt málmleitartæki á flugvöllum í uppnám, en bjargar sér úr klípunni með því að sýna öryggisvörðunum röntgenmyndir af handleggnum. Þetta slys varð til þess að hann fór að hugsa um gildi lífsins og varð m.a. til þess að hann helgaði líf sitt góðgerðarstarfssemi.
Það er varla maður einhamur sem hleypur rúmlega sextugur, nýkominn úr krabbameinsmeðferð, 1400 kílómetra vegalengd til að safna 80.000 dollurum til kaupa á krabbameinslækningatæki !
Svo má ekki gleyma The Cristofori Foundation - Mucic to Serve Humanity. Stofnun Martins Berkofsky sem vinnur að velgjörðarmálum. (Nafnið vísar til Bartolomeo Cristofori 1655-1731 sem fann upp píanóið).
Það verður ánægjulegt að hlusta á þennan margbrotna snilling og mannvin á laugardaginn
28.9.2008: Tónleikarnir í gærvöld voru hinir ánægjulegustu. Húsfyllir var. Leikur þeirra Einars og Martins var einstaklega góður og fágaður eins og við mátti búast og hlutu þeir mikið lof fyrir. Eftir tónleikana gafst smá tækifæri til að heilsa upp á Martin baksviðs og skiptast á fáeinum orðum. Þar sagði hann mér frá jeppanum sínum sem myndin er af hér fyrir neðan. |
Á vefsíðu Jordell Bank Center for Astrophysics stendur hér eftirfarandi í tilefni 50 ára afmælis stóra Lovell radíósjónaukans árið 2007, en Martin hafði þá samband við England frá Bandaríkjunum með því að endurvarpa merkjunum frá tunglinu, en tunglið er í um 385.000 kílómetra fjarlægð frá jörðu:
...I was then able to return to Jodrell Bank to join in the proceedings whilst they listened out for Martin, KC3RE, to call from Virgina. He was running ~150 watts in to a single 25 element yagi mounted horizontally on his Range Rover. He can thus only work the Moon at Moonrise or Moonset. We really wanted him to call during the event when the Moon was getting a little high in Virginia, so Martin went out to Walmart and bought a pair of wheel ramps to give him a few degrees additional elevation. Fantastic! Though not strong, Keith had no problem copying Martin whose message was:
"GB50EME de KC3RE FM18dp Casanova, VA, USA GB50EME de KC3RE FM18dp Casanova, VA, USA please accept my congratulations to the Lovell Telescope on its 50th anniversary." 73 Martin
Meginflokkur: Tónlist | Aukaflokkar: Menning og listir, Tölvur og tækni, Vísindi og fræði | Breytt 28.9.2008 kl. 10:15 | Facebook
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 66
- Frá upphafi: 764863
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Kvitt og kærleikskveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 13:23
Guð minn góður, Berkofsky. Vá, hvað það er langt síðan ég frétti af honum. Fór á nokkra tónleika með honum hérna á Íslandi á sínum tíma, þá unglingur. Ég man eftir slysinu sem hann lenti í. En það er gott að lesa þetta innlegg frá þér og sjá að kallinn er að "meika það feitt" eins og maður myndi segja í dag, ef maður væri unglingur. Takk fyrir þetta innlegg.
Sigurjón Sveinsson, 26.9.2008 kl. 14:00
Ég sá hann í Kastljósi...getur það verið? Þú segir "vinur minn..?" Meinar þú þá hvað? Er hann meira vinur þinn en Bobby McFerrin vinur minn?
Það væri virkilega gaman að fara á tónleikana. Aldrei að vita..ég er í helgarfríi.
Góða helgi!
Rúna Guðfinnsdóttir, 26.9.2008 kl. 19:58
En gaman að lesa meira um þennan merka mann..ég sá hann í kastljósinu og heillaðist svo mikið af honum og tek undir það með Einari að það er eitthvað alveg einstakt við hann og í kringum hann.
Takk fyrir myndirnar..þær eru líka æðislegar!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.9.2008 kl. 20:17
Rúna. Við Martin þekktumst nokkuð vel áður en hann flutti aftur út. Eitt sinn var ég líka svokallaður radíóamatör (TF3OM) þó svo ég kæmist ekki í hálfkvist við Martin. Hann kom alloft heim og ég til hans. Ég sé reyndar ekki betur en eitt tækjanna á næstneðstu myndinni sé það sama og eitt sinn var á skrifborðinu mínu og skipti um heimili...
Var Bob McFerrin oft á Ströndinni?
Ágúst H Bjarnason, 26.9.2008 kl. 20:38
Ágúst...ég var að draga í efa vinskap þinn við Martin! Ég er aðeins aðdáandi McFerrins...ekki vinur...því miður...ég hef því miður aldrei komið heim til hans....né hann til mín
Það væri vissulega gaman að fara og hlusta á Berkofsky. Sjáum til. Ætlar þú?
Rúna Guðfinnsdóttir, 26.9.2008 kl. 21:26
Rúna. Þú spyrð hvort ég ætli að fara á tónleikana. Auðvitað! Miðarnir eru þegar í vasanum fyrir okkur hjónakornin...
Ágúst H Bjarnason, 26.9.2008 kl. 21:30
Getur maður keypt við inngang eða getur maður keypt á netinu?? Hvar???
Rúna Guðfinnsdóttir, 26.9.2008 kl. 21:34
Það er hægt að kaupa á netinu. Síðustu forvöð því aðsókn verður mikil. Sjá hér. Smella síðan á bláa takkann ["Kaupa miða á þessa tónleika"]. Líklega eru hvítu sætin laus.
Ágúst H Bjarnason, 26.9.2008 kl. 21:45
Alveg stórbrotinn listamaður.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.9.2008 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.