Miðvikudagur, 5. desember 2007
Refur á ferli í Garðabæ
Ég varð heldur betur hissa í þegar refur í vetrarbúningi hljóp yfir götuna fyrir framan bílinn í morgun. Datt fyrst í hug köttur, síðan hundur, en ekki fór á milli mála að þarna var lágfóta á ferð, enda hef ég oft séð hana utanbæjar.
Ég var að aka klukkan hálftíu suður eftir Reykjanesbrautinni í Garðabæ. Um hundrað metrum fyrir norðan brúna á móts við Ikea rölti refur í austurátt þvert yfir veginn. Það var enginn sérstakur asi á honum og staldraði hann smástund við þegar yfir veginn var komið um leið og ég ók fram hjá.
Hvort hann heldur til þarna í hrauninu eða hafi bara verið að koma af fjöllum í fylgd jólasveina veit ég ekki, en fallegur var rebbi.
Í uppsveitum þar sem bloggarinn á landskika hefur refnum farið fjölgandi síðustu ár. Hann sést þar allt árið, og að vetri til sjást oft spor í snjónum. Hann virðist ekki mjög styggur. Á sama tíma og refnum hefur fjölgað er nokkuð ljóst að fuglum hefur fækkað, enda þarf tófan auðvitað að nærast á einhverju.
Ég þykist vita að einn tryggur lesandi bloggsíðunnar er vanur að sjá ref í garðinum heima hjá sér, en hann býr í úthverfi London. Refurinn er þar að gramsa í leit að æti. Hér á landi er refurinn ekki ennþá svo heimakær, en hver veit hvað verður. Megum við búast við að hann fari í auknum mæli að sækja í þéttbýli til að leita sér að æti, eins og hann gerir erlendis? Það er ljóst að ref hefur fjölgað mjög hér á landi á undanförnum árum og æti fyrir hann í náttúrunni ekki ótakmarkað.
Nú væri gaman að vita. Hafa fleiri orðið varir við ref á höfuðborgarsvæðinu?
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vísindi og fræði | Breytt 6.12.2007 kl. 07:08 | Facebook
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.2.): 29
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 113
- Frá upphafi: 765636
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
majab
-
ragu
-
amadeus
-
andres08
-
apalsson
-
asabjorg
-
askja
-
astromix
-
baldher
-
biggibraga
-
bjarkib
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
bjorn-geir
-
blindur
-
bofs
-
brandarar
-
daliaa
-
darwin
-
duddi9
-
ea
-
egillsv
-
einari
-
einarstrand
-
elinora
-
elvira
-
emilhannes
-
esv
-
eyjapeyji
-
fhg
-
finder
-
finnur
-
fjarki
-
flinston
-
frisk
-
gattin
-
geiragustsson
-
gillimann
-
gretaro
-
gthg
-
gudmbjo
-
gudni-is
-
gummibraga
-
gun
-
gutti
-
haddi9001
-
halldorjonsson
-
halldors
-
hlini
-
hof
-
hordurhalldorsson
-
hreinsamviska
-
hronnsig
-
hugdettan
-
icekeiko
-
ingibjorgelsa
-
jakobbjornsson
-
jakobk
-
johannesthor
-
johnnyboy99
-
jonaa
-
jonasgunnar
-
jonmagnusson
-
jonpallv
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
karljg
-
katrinsnaeholm
-
kikka
-
kje
-
klarak
-
kolbrunb
-
krissiblo
-
ksh
-
kt
-
lehamzdr
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalea
-
lucas
-
maeglika
-
maggij
-
maggiraggi
-
marinomm
-
martasmarta
-
marzibil
-
mberg
-
midborg
-
minos
-
morgunbladid
-
mosi
-
mullis
-
naflaskodun
-
nimbus
-
nosejob
-
omarbjarki
-
ormurormur
-
palmig
-
perlaoghvolparnir
-
peturmikli
-
photo
-
possi
-
prakkarinn
-
raggibjarna
-
rattati
-
ravenyonaz
-
redlion
-
rs1600
-
rynir
-
saemi7
-
sesseljamaria
-
sigfus
-
sigurgeirorri
-
sjalfstaedi
-
sjerasigvaldi
-
skari60
-
skulablogg
-
sleggjudomarinn
-
stebbix
-
steinibriem
-
steinnhaf
-
stinajohanns
-
stjornuskodun
-
storibjor
-
straitjacket
-
summi
-
tannibowie
-
thil
-
thjodarskutan
-
throsturg
-
toro
-
tryggvigunnarhansen
-
valdimarjohannesson
-
valdinn
-
vefritid
-
vey
-
vidhorf
-
vig
-
visindin
-
vulkan
-
kristjan9
-
arkimedes
-
kliddi
-
eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Síðasta hvíta tófa sem ég sá var 1968. Kær kveðja.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2007 kl. 21:48
Ekki kannski á höfuðborgarsvæðinu, en hún sést nokkuð oft á rölti við Reykjanesbrautina nálægt álverinu og suður fyrir Kúagerði. Ég hef séð eina mjallhvíta rölta yfir brautina rétt við sjóinn hjá Staumi. Mjög falleg.
Björg Árnadóttir, 5.12.2007 kl. 22:08
Eitt sem ég sakna mjög frá englandi en það eru refirinir. Þeir komu oft á kvöldin og þvældust um göturnar í leit að æti og um nætur mátti heyra þá arga í skógunum allt um kring. Suma morgna var ekki fagurt um að litast ef þeir fundu leið í ruslapokana...en ég gat nú alltaf fyrirgefið þeim atganginn. Falleg dýr refirnir.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.12.2007 kl. 08:53
Eg sá ref þarna á þessum slóðum fyrir nokkrum árum, og hagaði hún alveg eins og er þú lýsir, fór yfir veginn og tók sér sæti og horfði út á brautinn.
Eg álít að séu að minnsta kosti tvö greni neðalega í Heiðmörkinni, og annað einungis um 5oo metar frá innkeyrslunnni í Heiðmörk, og hitt nálægt rafmagnslínunni rétt hjá skátaskálanum. Undanfarinn ár hafa verið nokkar tófur með yrðlinga á golfvellinum hjá oddf. Eg veit að þar hafa nokkrir refir verið skotinr á hverju ári.
haraldurhar, 6.12.2007 kl. 17:21
Ekki ref á fjórum fótum, en þeir eru margir tvífættu"refirnir" og til þeirra sést á hverjum degi, a.m.k. í umferðinni
Marta smarta, 6.12.2007 kl. 18:01
Einhvertímann heyrði ég að það væru u.þ.b. 10.000 rauðir rebbar í London. Ég get vel trúað því þar sem ég sé yfirleitt a.m.k. einn ref á leiðinni í vinnuna á morgnanna. Þetta eru yfirleitt vænstu grey en eiga það til að vekja mann upp með andkvölum þegar tilhugalífið er í fullum gangi í janúar-febrúar
óhljóðin eru með ólíkindum 
Ég held að það sé ekki skipulega verið að halda fjölda þeirra í skefjum, bílarnir sjá um það...
Ragnar Ágústsson, 6.12.2007 kl. 20:16
Já refirnir eru falleg dýr og gaman að rekast á þá úti í náttúrinni.
Ágúst H Bjarnason, 6.12.2007 kl. 21:32
Katrín og Ragnar. Það er gaman að lesa frásögn ykkar af refunum í þéttbýli á Englandi.
Björg. Ég hef oftar en einu sinni séð ref við Reykjanesbrautina einhvers staðar á svipuðum slóðum og þú nefnir. Það var þó nokkuð fjarri Hafnarfirði og alls ekki í þéttbýli.
Haraldur. Takk fyrir þessar fróðlegu upplýsingar.
Það er alveg óþarfi að hafa áhyggjur af refnum þarna, jafnvel bara gaman að vita af honum og sjá hann annað slagið. Í þéttbýli í Englandi er hugsanlega heldur mikið af honum, sérstaklega nærri skóglendi, en fólk virðist ekki hafa miklar áhyggjur.
Ágúst H Bjarnason, 7.12.2007 kl. 07:47
Það var eitt vorið/sumarið þegar við vorum að vinna við dælustöðina að Fitjum að við sáum eitthvað hvítt útundan okkur. Þegar betur var að gáð var þar á ferð rebbi, kominn í sumargalla en skottið hvítt.
Sverrir Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 14:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.