Álverðið hækkar og hækkar...

 
 
 

 

Myndin hér fyrir ofan sýnir þróun álverðs síðastu 6 mánuði.
Eins og sjá má þá hækkar verð á áli jafnt og þétt.

 

 

 

Þróun álverðs síðastliðin 10 ár.

Takið eftir verðinu um það bil sem ákveðið var að ráðast í álver í Hvalfirði og á Austurlandi. Ætli það hafi ekki verið um 2002-2003...  Nú er álverðið orðið nær því sem það var um 2005-2006. Hrunið í október 2008 leynir sér ekki.

 

Reyndar hefur gengi Bandaríkjadollars fallið nokkuð þannig að hækkun í Evrum er eitthvað minni.

Heimild: www.infomine.com 

Ferlarnir uppfærast sjálfkrafa daglega.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gott að fá jákvæðar fréttir. Nú er bara að drífa sig í því að klára Álverið í Helguvík.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 09:15

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Dollarinn hefur verið að lækka miðað við ýmsar myntir á sama tíma en þetta er gott fyrir Landsvirkjun, Orkuveituna og þjóðarbúið

Sigurður Þórðarson, 19.12.2009 kl. 13:51

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það  væri fróðlegt að vita hvað álverð þarf að vera hátt til að Kárahnjúkar standi undir sér?

(Maður hefur heyrt ýmsar tölur og það ber mjög mikið á milli.  Manni skilst að það hafi hjálpað Landsvirkjun að margar gamlar framkvæmdir voru afskrifaðar. )

Sigurður Þórðarson, 19.12.2009 kl. 13:55

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Sigurður verði þarf að vera um 1450 til 1470 $ miða við 7% arð,  þar fyrir eyst afkoman verulega.

 Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 19.12.2009 kl. 14:55

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Sigurjón og þakka þér fyrir.

Ég hef heyrt þessa tölu og reyndar aðrar tölur svo sem 1600$, 1700$ og allt upp í 2200$ miðað við mun lægri arðsemistölur. Landsvirkjun hefur aldrei kostnaðargreint þetta og sundurliðað eftir virkunum og birt almenningi.  

Sigurður Þórðarson, 19.12.2009 kl. 16:43

6 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Sigurður þær tölur sem þú vitnar í er rekstrar afkoma álfyrirtækja  2000$ til 2200% ný álfyrirtæki þá eru yfirleitt skattaívilnanir fyrstu 5 árin í sumum tilfellum raforku verð eins og í Bernsku Kólumbíu.

Össur hf. og Marel hf. eru á meðal best þekktu iðnfyrirtækja landsins og eru bæði á hlutabréfamarkaði. Þessi félög eru í rekstri sem talinn er áhættumeiri en rekstur Landsvirkjunar. Arðsemi eigin fjár í þessum félögum ætti því að vera umtalsvert hærri en hjá Landsvirkjun. Svo er þó ekki eins og sjá má í töflunni að neðan sem unnin er úr ársreikningum Landsvirkjunar og þessara félaga. Skýrsla Sjónarrandar sýnir arðsemi orkufyrirtækja í Evrópu aðeins til 2007 og því er látið staðar numið þar.

 

2003

2004

2005

2006

2007

Meðaltal

Landsvirkjun

4%

14%

11%

6%

29%

13%

Marel

17%

31%

18%

0%

4%

14%

Össur

11%

31%

15%

3%

4%

13%

Orkufyrirtæki í USA*

11%

10%

9%

10%

11%

10%

Orkufyrirtæki í Evrópu*

11%

12%

12%

15%

15%

13%

*  Upplýsingar úr skýrslu Sjónarrandar

Eins og sjá má er meðalarðsemi eigin fjár fyrirtækjanna svipuð á þessu tímabili og

Þess ber að geta að ef bætt er við árinu 2008 lækkar meðalarðsemi Landsvirkjunar nokkuð en snörp lækkun álverðs kom illa við afkomu fyrirtækisins á liðnu ári. Álverð hefur nú hækkað verulega á nýjan leik sem eykur aftur arðsemi fyrirtækisins.

Útflutningsverðmæti áls mun í fyrsta sinn fara fram úr verðmæti útfluttra sjávarafurða á þessu ári samkvæmt útreikningum greiningardeildar Þjóðhagsstofnunar Háskólans og úttektar núverandi ríkisstjórnar og  á vef Samorku, Samtaka orku- og veitufyrirtækja.

Rauða Ljónið, 19.12.2009 kl. 23:16

7 identicon

Hvers vegna er talað um útflutningsverðmæti áls og það borið saman við sjávarafurðir?  Verður nokkuð eftir af álgróða nema kostnaður þeirra við rekstur, [skattar, gjöld - skatta og gjaldaívilnanir] og laun?  Þeir flytja gróðann út með sérsamningum og eða með því að selja sjálfum sér hráefnið á hærra verði.  Hafa bæði belti og axlabönd með að koma fé burtu frá skattmanni og 'gráðugum krumlum' almennings.

Það er gott ef satt að landsvirkjun verði ekki enn einn bagginn á okkur, en ég skil ekki hversvegna við fölsum okkar eigin þjóðhagsútreikning með því að telja þessar alþjóðlegu vampírur með.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 18:04

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ágæti Sigurjón ég þakka þér enn og aftur fyrir að svara þessu. Ég hef reynt að rýna í tölur frá Landsvirkjun t.d.  birti blaðafulltrúi Landsvirkjunar góðfúslega milliuppgjör á bloggi nýlega.  Þar var ekkert sundurgreint og eins breytti miklu að Landsvirkjun fór fyrir ekki svo löngu síðan að gera upp í dollurum.  Við vitum að margar virkjanir sem heyra undir Landsvirkjun eru löngu afskrifaðar og hafa verið greiddar að fullu. Þar kom líka fram að Landsvirkjun mun ekki lenda í lausafjárerfiðleikum fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár. Ég óttast að þú sért full bjartsýnn varðandi framleiðslukostnað raforku frá Kárahnjúkum þó raforkuframleiðslan hafi gengið betur en ætlað vara.  En þróun álverðsins er sannarlega jákvætt.

Sigurður Þórðarson, 21.12.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband