Ljósmengun í þéttbýli og dreifbýli...


 

 

Auðlind sem er að hverfa. 

Ljósmengun frá illa hannaðri lýsingu er helsti óvinur þess sem vill njóta fegurðar himinsins. Þetta er ekki aðeins vandamál hérlendis, heldur víða um heim. Nú er að vaxa upp kynslóð sem varla hefur séð stjörnur aðrar en þær allra skærustu. Hve margir skyldu hafa séð okkar eigin Vetrarbraut? Jafnvel norðurljósin hverfa í glýjuna.

 

 


hale bopp reykjavik 800w

Ljósmengum er af ýmsum toga. Algengasta orsök er slæmur frágangur á ljósastæðum. Ljós berst þá til hliðar eða upp og verður sýnilegt sem bjarmi yfir borgum eða gróðurhúsum.

Myndin er tekin árið 1997 frá Garðabæ og sér yfir hluta Öskjuhlíðar. Rétt má greina halastjörnuna Hale-Bopp, sem var mjög björt. Aðrar stjörnur sjást varla vegna bjarmans.

Ljósmengun í Reykjavík er verulega mikil.

(Smella á mynd til að sjá stærri. Ljósm. ©ÁHB)

Víða erlendis hafa menn gert sér grein fyrir þessu vandamáli og gert bragarbót: Lýsing hefur orðið þægilegri, orkunotkun verulega minni, og fjárhagslegur ávinningur hefur því verið töluverður af þessum lagfæringum. Allir eru ánægðir þegar vel tekst til, ekki síst stjarneðlisfræðingar, stjörnuáhugamenn, og allir þeir sem unna fallegri náttúru.

 

 

Alþjóðleg samtök áhugamanna og hagsmunaaðila á þessu sviði, International Dark-Sky Association - IDA (http://www.darksky.org), hafa víða náð góðum árangri á þessu sviði með því að benda á vandamálið og úrlausnir. IDA er með mjög gagnlega vefsíðu.

 

Hér á landi hefði mátt ætla að við værum blessunarlega laus við þessa mengun eins og aðrar, en það er öðru nær. Ljósmengun hér er engu minni en víða í hinum stóra heimi. Bjarmi yfir höfuðborginni er ótrúlega mikill, svo og bjarmi frá gróðurhúsum í dreifbýlinu.  

 

Hér til hægri eru tvær myndir teknar í mars 1997:

 

Fyrri myndin er tekin frá Garðabæ  yfir hluta Reykjavíkur. Vel má sjá bjarmann, sem liggur eins og hjúpur yfir borginni. Aðeins allra skærustu stjörnur sjást, og  Vetrarbrautin sést ekki lengur. Ein bjartasta halastjarna sem sést hefur á síðustu árum prýddi stjörnuhimininn. Mjög erfitt var að ljósmynda hana frá Reykjavík.

 

Næsta mynd sýnir Hale-Bopp og aragrúa stjarna. Hér var myrkrið það gott, að hægt var að hafa ljósop myndavélarinnar opið í 10 mínútur. Þá koma fram ótal stjörnur, sem venjulega sjást ekki með berum augum. Einnig má sjá bláan rafhala halastjörnunnar, en hann sést ekki með berum augum. Myndin var tekin frá Keilisnesi, áður en Reykjanesbrautin var lýst upp með illa skermuðum ljósum. Lýsing utanbæjar er sífellt að aukast, og oftar en ekki gleymist að huga að góðri lýsingartækni. Lýsingin veldur óþarfa bjarma, og ekki síður óþarfa glýju.


haleBopp andromeda aurora crop saturation 700

Þessi mynd af Hale-Bopp er tekin utan Reykjavíkur í mars 1997. Mjög lítil ljósmengun og aragrúi stjarna er sýmilegur. Grænleita slæðan er norðurljós. Neðst til hægri má sjá Andromeda stjörnuþokuna. Þar eru milljarðar sóla.  Á þessari mynd má einnig sjá aragrúa stjarna, sem eru ósýnilegar með berum augum.

(Smella á mynd til að sjá stærri. Ljósm. ©ÁHB)

 

 

Hefur þú lesandi góður prófað að horfa til himins þar sem himininn er ómengaður? Prófaðu að fara út úr bílnum og horfa til himins ef þú ert á ferðalagi utan þéttbýlis í stjörnubjörtu veðri. Þú verður ekki fyrir vonbrigðum Smile

 

Vonandi fara menn að gera sér grein fyrir þessu vaxandi vandamáli. Ef heldur áfram sem horfir verður stjörnuhimininn ósýnilegur flestum innan skamms. Þetta eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra!

 

 

Hvað veldur ljósmengun?

Ljósmengum er af ýmsum toga. Algengasta orsökin er slæmur frágangur á ljósastæðum. Ljós berst þá til hliðar eða upp og verður sýnilegt sem bjarmi yfir borgum eða gróðurhúsum.  

 

Sum götuljós eru mjög illa hönnuð, og þekkja margir kúlu- eða keilulaga ljósakúpla sem einkum eru algengir í íbúðahverfum. Í stað þess að beina ljósinu niður er því varpað um allar trissur, mest beint í augu vegfarenda.

 

Ljóskastarar, sem ætlaðir eru til að lýsa upp byggingar, geta verið slæmir, því töluvert ljós fer fram hjá byggingunni beint upp í háloftin.

 

Önnur gerð af ljósmengun stafar af skærum ljósum sem skína beint í augun og valda glýju, þannig að augun verða ónæmari og krefjast meiri lýsingar, sem veldur enn meiri ljósmengun,..... o.s.frv! 

 

 


nordurljos 1   800wide

Norðurljós eru oft falleg. Einar Benediktsson reyndi eitt sinn að selja norðurljósin, segir sagan, en nú er tækifæri fyrir ferðamannaiðnaðinn að selja erlendum ferðamönnum beina yfir vetrarmánuðina og norðurljósin þannig óbeint, það er að segja, ef ljósmengun hefur ekki þegar skemmt fyrir. Á myndinni má sjá lítið upplýst gróðurhús í fjallshlíðinni, en hvað er í vændum? Er þetta byrjun á enn meiri ljósmengun? Hvað finnst sumarhúsafólki um upplýsta bústaði nágranna sinna? Sumarhúsafólkið er nefnilega farðið að nýta bústaðina allt árið, einnig yfir vetrarmánuðina, til að njóta fallegra norðurljósa og stjörnuhimins.

(Smella á mynd til að sjá stærri. Ljósm. ©ÁHB)

Hvað er til ráða?

Ljósabúnaður: Nota góðan ljósabúnað sem varpar ljósinu eingöngu niður. Ljós sem berst til hliðar eða upp er til einskis nýtt, en veldur bjarma og glýju í augum. Vel skermuð ljós (og þar með minni glýja í augun) gera það að verkum, að skyggni að nóttu til verður meira en ella! Þannig má komast af með minni perur og spara orku og peninga. Ekki nota óþarflega stórar perur.

 

Gróðurhús: Gróðurhúsabændur ættu að huga vel að þeim kostnaði sem stafar af því að senda ljósið upp í háloftin. Þarna er væntanlega fundið fé. Með betri nýtingu á ljósinu gætu þeir vafalaust sparað stórfé, og jafnframt aukið uppskeruna.

 

Þjófavörn: Stundum telja menn að gott sé að hafa útiljós kveikt í öryggisskyni, þ.e. til að minnka líkur á innbrotum. Ljós sem síloga draga athygli að mannvirkinu sem ætlunin var að verja, en mun áhrifameira er að hafa ljós sem kvikna við merki frá hreyfiskynjara, en eru að öllu jöfnu slökkt. Nágrannar verða þá varir við mannaferðir, og hinir óboðnu gestir hörfa.

 

Sumarhús: Vaxandi sumarhúsabyggð utan þéttbýlis veldur áhyggjum. Tilheiging virðist vera hjá sumum sumarhúsaeigendum að vera með útljós kveikt, jafnvel þegar enginn er við. Ljósin hjálpa óboðum gestum að finna sumarhúsið. Það er einnig tillitsleysi við nágrannana að vera með logandi og illa skermuð útiljós að óþörfu.

 

Hvers vegna  að hafa kveikt á útiljósum, þegar enginn er útivið?

  - Munið eftir slökkvaranum!

  - Notið hreyfiskynjara við útiljósin, ef ætlunin er að fæla burt óvelkomna gesti. 

  - Veljið ljósastæði sem lýsa eingöngu niður.

  - Notið ljósadimmi.

  - Notið minni perur. 

 

Einstaklingar, sem setja upp ljós utanhúss, ættu að taka tillit til nágranna sinna!

 

Munið eftir leynivopninu gegn óboðnum gestum; þ.e. hreyfiskynjaranum sem kveikir útiljósin þegar einhver nálgast!   Ekki gera þeim lífið auðveldara með því að lýsa upp sumarhúsið í tíma og ótíma Bandit.

 

 

Þjóðvegalýsing: Aukin lýsing á þjóðvegum landsins veldur áhyggjum, en þar þyrfti að huga betur að vali á ljósastæðum en gert hefur verið hingað til.Til að varðveita fegurð himinsins væri æskilegt að sjá tekið á þessum málum í greinargerðum aðal- og deiliskipulags, svo og í umhverfisstefnum. Aðeins ætti að nota fullskermuð ljós á þjóðvegum.

 

Hönnun: Verkfræðingar, tæknifræðingar, arkitektar og aðrir sem hanna lýsingu utanhúss ættu að taka höndum saman og taka tillit til þessarar mengunar við hönnun á nýframkvæmdum og við lagfæringar á eldri búnaði.

 

Aðal- og deiliskipulag: Skipulagsfræðingar og landslagsarkitektar, sem vinna að aðal- og deiliskipulagi, ættu að setja ákvæði um skynsamlega lýsingu í greinargerð skipulagsins.

 


Í umhverfisstefnu Borgarbyggðar, sem samþykkt á fundi bæjarstjórnar 25. apríl 2000 stendur m.a:

“11.  Ljósmengun:     Við uppsetningu og endurnýjun götulýsingar verður þess gætt að ljósmengun utan svæðis verði í lágmarki”.

Þetta er til mikillar fyrirmyndar.

 

Ýmislegt er hægt að gera til að minnka ljósmengun. Hér fyrir aftan eru nokkrar tengingar að vefsíðum þar sem fræðast má nánar um aðgerðir. Nokkrar ljósmyndir hér fyrir neðan varpa ljósi á vandamálið. Aðalatriðið er að menn séu meðvitaðir um málið og láti skynsemina ráða.

 

 

Hver er reynsla annarra þjóða?

Minni orkunotkun er ótrúlega fljót að skila sér. Sem dæmi má nefna San Diego þar sem ráðist var í að lagfæra götulýsingu með því að skipta um ljósker. Eftir aðeins þrjú ár hafði minni orkunotkun greitt allan kostnað, og nú nemur sparnaðurinn milljónum dollara á ári! Ótrúlegt en satt. Stjörnur eru aftur farnar að skreyta himinhvelfingua eftir þessar lagfæringar.

 

 

Nokkrar myndir.

Myndirnar hér á síðunni eru frá ýmsum áttum. Sumar varpa skýrara ljósi á vandamálið og úrlausnir, en aðrar eru af ómenguðum stjörnuhimi og sýna hvers menn eru að fara á mis þar sem ljósmengun er mikil.

 

Oft, en ekki alltaf, má smella á mynd til að kalla fram aðra stærri.

 

 


Ljosmengun grodurhus 800W

Þetta er ekki eldgos.  Ljósmengun frá gróðurhúsum getur verið gríðarleg. Hér má sjá bjarmann frá Flúðum og Reykholti. Er virkilega þörf á þessari orkusóun og mengun?

(Smella á mynd til að sjá stærri. Ljósm. ©ÁHB)


sumarhus ljosmengun 600

Sumarhúsaþyrping að kvöldi dags. Hvers vegna öll þessi ljós, jafnvel þegar enginn er við? Er þetta tillitsleysi, eða bara myrkfælni? Ef til vill bara athugunarleysi, en þá er auðvelt að ráða bót á því með því að teygja sig í slökkvarann! Öllum mun líða betur!

(Smella á mynd til að sjá stærri. Ljósm. ©ÁHB)

ljos jardar stor

Samsett mynd tekin utan úr geimnum af jörðinni sýnir hve vandamálið er gríðarlegt. Enn er dreifbýli á Íslandi lítt mengað, en ástandið versnar með hverju ári sem líður.

(Smella þrisvar á mynd til að sjá stærri)

 

 

 

Slæmt. Ljósið fer um allar trissur.

Fáránlegt. Ljósið ratar ekki einu sinni niður.

Gott. Lítil ljósmengun. Lítil glýja.

Slæm götuljósker varpa glýju í augun. Ljósið dreifist meira og minna um allar trissur og veldur óþarfa ljósmengun.

 

 

 

Góð götuljósker skerma ljósið af, þannig að það beinist aðeins niður. Engin glýja í augum.

 

Sama gildir um val á útiljósum húsa. Þau eiga að vera skermuð og lýsa niður.

Ráðið við ljósmengun er einfalt!

 

 

Látum ljós okkar skína af skynsemi!

Rétt val á ljósabúnaði skiptir sköpum. Ljós, sem fer upp eða til hliðar, er orkusóun og veldur ljósmengun og glýju í augum.

Tökum höndum saman. Notum góðan ljósabúnað og látum ekki skær útiljós loga að óþörfu.

 

 

 

 

Ört vaxandi sumarhúsabyggð er eitt helsta áhyggjuefni stjörnuskoðunarmannsins. Hvers vegna? Jú vegna þess að margir virðast telja sér skylt að flytja ljósmengun þéttbýlisins út í sveitir landsins og setja upp skær ljós utanhúss sem skera í augu nágrannans. Ekki aðeins þegar einhver er í bústaðnum, heldur dag og nótt, árið um kring. Þetta er mikill misskilningur ef ætlunin er að fæla óboðna gesti frá. Góð útiljós hjálpa þeim að rata að bústaðnum og athafna sig. Tvö ráð eru miklu áhrifameiri: Nota útiljós sem tengt er hreyfiskynjara og vekur athygli nágranna á mannaferðum, og/eða dauft ljós bak við gluggatjöld. Hinn óboðni veit ekki hvort einhver er heima og fælist ljósið sem kviknar.

 

Venjið ykkur á að slökkva á útiljósum ef enginn er útivið. Takið tillit til nágranna ykkar. Notirð dauf og vel skermuð útiljós, ljós sem lýsa niður, en ekki fram.

 

 

Njótið þess að vera án ljósmengunar utan þéttbýlis. Lærið að njóta fegurðar himinsins. Venjulegur handsjónauki (t.d. 8x40) er allt sem til þarf auk hinnar frábæru bókar Snævarrs Guðmundssonar Íslenskur stjörnuatlas. Á einfaldan og fróðlegan hátt er greint frá því hvernig best er að stunda stjörnuskoðun. Í bókinni, sem er 144 blaðsíður, er mikill fjöldi mynda og stjörnukorta og aftast í henni er örnefnakort af tunglinu. Bókinni fylgir snúningsskífa með stjörnuhvelfingunni þar sem sést hvernig næturhimininn ber fyrir á öllum tímum ársins og hvaða svæði hans hentar að skoða hverju sinni. Íslenskur stjörnuatlas er fyrsta bókin um íslenska stjörnuhimininn.
 

 

 

haleboppesja5.jpg

 

Hale Bopp, stjörnur og norðurljós í tunglskini í mars 1997. Skálafell í baksýn. ©ÁHB


 

Krækjur:

 

Vísindavefurinn:

Hvað er átt við með ljósmengun, er það mikið vandamál á Íslandi og hvað er til ráða gegn því?

 

Stjörnuskoðun:

Stjörnufræðivefurinn

 

Til fyrirmyndar:

Umhverfisstefna Borgarbyggðar tekur á ljósmengun.  (Sjá grein 11).

 

Alþjóðasamtök:

International Dark Sky Association

 

Meira um ljósmengun:

Áhyggjur stjörnuskoðunarfélags af vaxandi mengun (PDF grein á íslensku)

 

Gap Ginnunga. Vefsíða

 

Ekki láta útiljósin loga að óþörfu! 

 

 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þörf og góð ámminning til okkar allra. Meðal þeirra minninga, sem Fjallarefur á í sjóði er um að sitja í heita pottinum við gamla skálann á Hveravöllum á stjörnubjörtu febrúarkvöldi og horfa á fegurð himinsins. Óviðjafnanlegt. En jafnvel þar uppfrá sér maður stundum við tiltekin skilyrði bjarmann af ljósum höfuðborgarsvæðisins endurvarpast í skýjum yfir Langjökli.

Fjallarefurinn (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 07:14

2 Smámynd: Ragnar Ágústsson

Sæll

Frábær pistill. Merkileg myndin af Flúðum og Reykholti! Gott ef maður sér ekki gróðurhúsin utan úr geimnum sbr. samsettu myndina

Ragnar Ágústsson, 1.9.2009 kl. 07:34

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ragnar. Þetta sést betur hér:

 Mynd af Íslandi um nótt

Ágúst H Bjarnason, 1.9.2009 kl. 07:44

4 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Loksins loksin eitthvað sem hittir mann beint í hjartað. Takk fyrir þennan pistil. Ég beið eftir að einhver myndi  taka þetta upp því ég treysti mér ekki til þess sjálfur. Vel gert.

Gísli Ingvarsson, 1.9.2009 kl. 09:15

5 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Orð í tíma töluð. Við erum alltaf að reyna að vekja athygli á þeirri miklu orkusóun sem það er að lýsa upp í himinninn, engum til gagns og sumum til ama. Því miður hefur ljósmengun færst í aukana á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár. Ég tók þessa mynd frá Þingvöllum í fyrra þegar ég fór þangað í stjörnuskoðun. Eins og sjá má er bjarminn frá borginni mjög áberandi, en einn nýr, risastór ljósastaur hefur bæst við.

DSC_6064

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 1.9.2009 kl. 09:15

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Takk fyrir þennan frábæra pistil.

Tek undir með lesanda þínum þarna Gísla Ingvarssyni, þetta hittir mann beint í hjartað.

Vandað og vel gert.

Marta B Helgadóttir, 1.9.2009 kl. 20:04

7 Smámynd: Auður Matthíasdóttir

Þetta er fínn pistill. Takk fyrir.  Mér eru minnisstæðar þær stundir sem ég hef átt á hálendinu um miðja nótt.  Stjörnubjartur himinn, alveg stórkostleg sjón.  Og reyndar þarf ég ekki að fara lengra en í fjörðinn minn fagra til að sjá stórkostlegan stjörnuhiminn.  Kær kveðja

Auður Matthíasdóttir, 1.9.2009 kl. 20:53

8 Smámynd: Heimir Tómasson

Frábær pistill. Ég veit ekkert skemmtilegra en að vera úti á sjó um miðja stjörnubjarta nótt. Það er galdrastund að get horft upp í óljósmengaðann himininn.

Heimir Tómasson, 1.9.2009 kl. 21:01

9 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sjá greinina Our Vanishing Nigh í National Geographic, nóv. 2008, sem helgað er ljósmengun.  Á síðnni eru einnig krækjur að góðum myndum á vinstri jaðar.

 

Ágúst H Bjarnason, 1.9.2009 kl. 21:28

10 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Hjartanlega sammála þessu með ljósamengun. Hvar eru norðurljósin ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 2.9.2009 kl. 03:23

11 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hildur. Það eru fleiri en þú sem sakna norðurljósanna, en þau sjást mjög sjaldan núorðið. Ástæðan er sú að sólin er mjög óvirk um þessar mundir. Hugsanlega er hún að stefna í dýpstu lægð sem komið hefur í marga áratugi. Fjalla væntanlega um það í pistli á næstu dögum.

Ágúst H Bjarnason, 2.9.2009 kl. 06:11

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vel gert og vandað eins og þín er von og vísa, takk kærlega fyrir. Þetta er svo sannarlega eitthað sem á að hugsa miklu meira um.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2009 kl. 12:44

13 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Orð í tíma töluð. Ljósmengunin á Reykjavíkursvæðinu er hræðileg. Myndin af Íslandi hér í athugasemdunum (kl. 7:44) er stórkostleg. Kannski er hægt að ráða bót á þessu með einföldum hætti. Norðurljós sjást nú reyndar stöku sinnum hér í Reykjavík en það er ekki oft.

Sæmundur Bjarnason, 2.9.2009 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 764859

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband