Ótrúlegar kvikmyndir af geimskutlunum...

 

Discovery-HDRmynd
  

 

Í hvert sinn sem geimskutlunni er skoti á loft eru yfir 125 hágæða kvikmyndavélar notaðar af verkfræðingum NASA til að fylgjast með skotinu í návígi. Nú, þegar til stendur að leggja geimskutlunum,  hefur verið safnað saman hinu besta úr öllu þessu gríðarlega magni kvikmynda sem til er.

Matt Melis flugverkfræðingur (aerospace engineer) hjá NASA útskýrir það sem fyrir augu ber á mjög greinargóðan hátt.

Í kynningunni segir:

“This compilation of film and video presents the best of the best ground-based Shuttle motion imagery from STS-114, STS-117, and STS-124 missions. Rendered in the highest definition possible, this production is a tribute to the dozens of men and women of the Shuttle imaging team and the 30yrs of achievement of the Space Shuttle Program.”

Þetta er nokkuð langt myndband, heilar 45 mínútur. Í fyrstu myndunum sjást eldflaugahreyflarnir í návígi, en myndbandið endar á myndum sem teknar eru með einum bestu linsum sem til eru af flugi geimskutlunnar upp í himinhvolfið.

Þó myndbandið sé langt, þá er óhætt að mæla með því. Sérstaklega fyrir þá sem áhuga hafa á tækni og vísindum.  Þegar horft er á goshverfla geimskutlunnar í návígi rifjast upp tilfinningin sem fer um mann þegar staðið er nálægt öflugri gufuholu sem blæs milljónum watta upp frá iðrum jarðar...

Auðvitað má horfa á myndbandið í nokkrum áföngum ef mönnum finnst það í lengra lagi, en best er að smella á myndflötinn og stækka hann upp í fulla skjástærð, því gæði myndbandsins eru mikil.

 

Þesss má geta að Matt Melis verkfræðingur hjá NASA og kynnir myndbandsins hefur haldið fyrirlestur við Háskólann í Reykjavík. Sjá hér.


 

 

 


 


Bloggfærslur 14. desember 2010

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 112
  • Frá upphafi: 766608

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband