Þriðjudagur, 11. júlí 2017
Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Gæti þetta verið ástæðan fyrir því að Apple valdi ekki Ísland?
Greinina, sem nær yfir opnu á blaðsíðum 20 - 21 í Bændablaðinu, má nálgast hér:
http://www.bbl.is/files/pdf/bbl-13tbl-2017-web.pdf
Reyndar vinnur fjarlægðin frá mörkuðum á meginlandinu á móti okkur.
Svartíminn (ping tíminn) er frekar langur. Hvort það hefur átt þátt
í þessu tilviki er ómögulegt að segja.
Apple fjárfestir í gagnaveri í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Tölvur og tækni | Breytt 29.10.2021 kl. 10:04 | Facebook
Athugasemdir
Ótrúlegt - 100% ómengandi orka orðin 79% hættuleg mengunarorka! Eru það orkufyrirtæki í almannaeigu sem standa að þessum fölsunum? Og hver nýtur góðs af sölu þessara 30 silfurpeninga? Það hljóta að vera okkar ráðnu fulltrúar persónulega því ekki má merkja neina lækkun á orkureikningum til almennings. Hvað selja þeir næst; hreina kalda vatnið?
Kolbrún Hilmars, 11.7.2017 kl. 16:26
Sæll Ágúst.
það er auðvitað eitthvað gruggugt við að tölvurisarnir með öll sín gagnaver sækist ekki eftir reisa þau hér með öllum þeim góðu störfum og lítilli sem engri mengun - ekki satt?
Ef þessi skýring þín og heimildir Bændablaðsins eiga við rök að styðjast, erum við þá ekki að tala um háar fjárhæðir sem skipt hafa um hendur á kostnað þjóðarbúsins?
Það er nánast sama hvert litið er á þessu skeri okkar, þá blasir við þessi sjálftaka og gengdarlaus spilling valdastéttarinnar.
P.S.
Þakka þér góða og eftirminnilega tíma úr M.T.
Jónatan Karlsson, 12.7.2017 kl. 02:44
Jónatan.
Kannski hefur þú ætlað að senda kveðjuna til alnafna míns og frænda sem er grasafræðingur og starfaði lengi sem menntaskólakennari. Ég er aftur á móti rafmagnsverkfræðingur hjá Verkís.
Ágúst H Bjarnason, 13.7.2017 kl. 11:30
Konráð vinnufélagi minn hjá Verkís sendi mér eftirfarandi með tölvupósti:
"Ástæðan fyrir því að stóru risarnir hafa ekki komið upp gagnaverum á Íslandi er sá að hér er dvergvaxin innanlandsmarkaður og svokallaður biðtími(latency) til og frá landinu er ofmikill".
Ég er sammála Konráði, enda veit hann miklu meira um tölvur en ég :-)
Svo er auðvitað spurning um hvort Apple sé annt um ímynd sína og vilji nota ómengaða orku. Reyndar er orkan í Danmörku í reynd miklu óvistvænni en hér á landi.
Ágúst H Bjarnason, 13.7.2017 kl. 11:35
Svo er það spurning hvort það sem ég bloggaði um 2015 sé bara bull?
Gagnaver lítt áhugaverð á Íslandi...
http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/1639248/
Ágúst H Bjarnason, 13.7.2017 kl. 11:42
Sæll Ágúst.
Mín mistök, en tímarnir hjá frænda þínum voru fræðandi og skemmtilegir rétt eins og segja má um bloggið þitt.
Jónatan Karlsson, 13.7.2017 kl. 14:28
Ágúst H Bjarnason, 29.10.2021 kl. 10:05
Ágúst H Bjarnason, 29.10.2021 kl. 10:24