Strong December Cooling Leads to 2016 Being Statistically Indistinguishable from 1998
Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Þriðjudagur, 7. febrúar 2023
Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir Kína...
Myndin sýnir ferðalag loftbelgsins sem fór frá Bandaríkjunum 35 sinnum umhverfis jörðina.
Loftbelgurinn kínverski, sem Bandaríkjamenn óttuðust það mikið að þeir sendu sína öflugustu orrustuþotu búna flugskeytum upp í háloftin til að sprengja blöðruna, hefur vakið athygli víða um heim. Það tókst og þeim létti mikið, enda voru þeir sannfærðir um að þetta hefði verið hátækni njósnaverkfæri sem Kínverjar hefðu sent þeim í óleyfi án þess að spyrja kóng eða prest. Þeim kom heldur ekki til hugar að veðurguðirnir sem ráða háloftavindunum ráði mestu um för loftbelgjarins. Það gleymdist líka, að Bandaríkjamenn hafa oft sent á loft belgi með rafeindabúnaði, stórar gasblöðrur með búnaði sem sendir upplýsingar til viðtækja á jörðu niðri. Myndin sýnir nákvæmlega ferðalag þess loftbelgs sem líklega á metið. Hann fór 35 sinnum umhverfis jörðina á 277 dögum, samtals 1.514.000 kílómetra. Á ferðalagi sínu fór hann oft yfir Kína eins og sést á myndinni, og ekki reyndu Kínerjar að skjóta hann niður. Þeir eru greinilega ekki mjög taugaveiklaðir . Þetta er aðeins einn af mörgum lotbelgjum sem radíóamatörinn Alan Adamson, W7QO, hefur sent upp í sal vindanna, en það hafa fleiri gert, og ekki hafa þeir belgir verið skotnir niður. Þessir loftbelgir eru búnir WSPR (Weak Signal Proapgation Reporter) senditæki sem sendir til jarðar merki frá GPS tæki, og APRS (Automatic Packet Reporting System) sendi sem getur sent upplýsingar frá mælitækjum um borð. WSPR sendirinn notar hugbúnað sem Dr. Joe Taylor, radíóamatör með kallmerkið K1JT þróaði. Þessi samskiptaháttur gerir kleift að senda upplýsingar um óravegu með litlu sendiafli. Joe (Joseph) Taylor er stjarneðlisfræðingur og hlaut hann Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1993. Myndin, sem sýnir braut loftbelgsins sem Bandaríkjamaðurinn sendi á loft, er fengin hér:
--- --- ---
|
Hugarflug: www.agust.net/wordpress/
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 15. janúar 2019
Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fengið þannig fleiri birtustundir yfir daginn?
Á Vísindavefnum stendur meðal annars í svari Þorsteins og Gunnlaugs: Seinkun klukkunnar hefði þau áhrif að bjartara yrði á morgnana þegar börn fara í skóla og menn til vinnu. Þetta er tvímælalaust sterkasta röksemd þeirra sem vilja fara þessa leið. Á hinn bóginn eru bjartari morgnar keyptir því verði að fyrr dimmir síðdegis þegar umferð er meiri og börn á leið úr skóla. Menn getur greint á um það hvort þeir kjósi fremur bjartari morgna eða bjartara síðdegi. En umferðarþunginn bendir til þess að menn nýti almennt síðdegið fremur en morgnana til að sinna erindum sínum. Það virðist gilda að sumri ekki síður en vetri og stjórnast því ekki af birtunni einni saman..." Smellið á krækjuna til að sjá alla greinina á Vísindavefnum: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fengið þannig fleiri birtustundir yfir daginn? Að lokum: Mun árangursríkara er að breyta skólatíma þannig að kennsla hefjist ekki fyrr en klukkan 9, í stað klukkan 8. Áhrifin af því yrðu varanleg, auk þess sem það hefði jákvæð áhrif á umferðaröngþveiti sem mest er um klukkan 8 á höfuðborgarsvæðinu. Ekki má gleyma því hve góð áhrif það hefur á heilsuna að koma heim úr vinnu í vel björtu að sumri til og geta notið dagsbirtunnar og sólar mun lengur. Hverjir vilja fórna þeim munaði?
Sjá bloggpistil frá árinu 2014: "Myrkurstundum á vökutíma fjölgar um 131 til 190 klukkustundir eða 5 til 8 sólarhringa ef klukkunni verður seinkað"
Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur hefur séð um útgáfu Almanaks Háskólans í áratugi og reiknað út hinar margbreytilegu töflur sem þar eru, en það er mikil nákvæmnisvinna. Hann er því manna fróðastur um tímatal og klukkuna. Þorsteinn var um áratugaskeið deildarstjóri Háloftadeildar Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur er núverandi deildarstjóri Háloftadeildar Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Raunvísindastofnun Háskólans - Háloftadeild
|
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 11. júlí 2017
Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Gæti þetta verið ástæðan fyrir því að Apple valdi ekki Ísland?
Greinina, sem nær yfir opnu á blaðsíðum 20 - 21 í Bændablaðinu, má nálgast hér:
http://www.bbl.is/files/pdf/bbl-13tbl-2017-web.pdf
Reyndar vinnur fjarlægðin frá mörkuðum á meginlandinu á móti okkur.
Svartíminn (ping tíminn) er frekar langur. Hvort það hefur átt þátt
í þessu tilviki er ómögulegt að segja.
Apple fjárfestir í gagnaveri í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 29.10.2021 kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 19. maí 2017
Höfðinginn Már Sigurðsson, Geysi í Haukadal, er allur...
Mikill sveitarhöfðingi hefur nú kvatt okkur.
Nokkur orð um vin minn eru hér:
Már Sigurðsson, Geysi í Haukadal
Miðvikudagur, 22. febrúar 2017
Hópferðarbíll slítur þjóðvegi 10.000 sinnum meira en fólksbíll...!
Um helgina ók ég um uppsveitir sunnanlands. Hrikalegt var að sjá hvernig slitlag veganna er víða illa farið. Jafnvel nýir vegir sem voru gerðir sumarið 2015 eru farnir að molna upp og djúpar holur með skörpum brúnum víða. Niðurbrot vega fylgir öxulþunganum í fjórða veldi samkvæmt "Fjórða veldis reglu" Evensen og Senstad. Það þýðir að jeppi með öxulþunganum 1 tonn skemmir veginn 10.000 (10 þúsund) sinnum minna en t.d. rúta með 10 tonna öxulþunga. Álag bílsins sem er 10 sinnum þyngri en fjölskyldujeppinn er því 10x10x10x10=10.000 sinnum meira! Venjulegir fólksbílar, jeppar meðtaldir, eiga því hverfandi þátt í hrörnun vega. Ein rúta getur því valdið sömu skemmdum á veginum og 10.000 fólksbílar, sé hún 10 sinnum þyngri en fólksbíllinn. Ein rúta eða eða þungaflutningabifreið getur því valdið sömu skemmdum og öll umferð fólksbíla eftir sama vegarkafla í nokkra daga, jafnvel marga daga. Á vinsælum leiðum túrista, t.d. Gullna hringnum, er kannski ekki fjarri lagi að 100 rútur aki daglega. Nú er 100 x 10.000 sama og milljón. Umferð þessara þungu bíla á einum degi veldur því sama skaða og milljón fólksbíla !!! Þetta er væntanlega svona því sem næst, en líklega ekki mjög fjarri lagi. Þeir sem þekkja burðarþolsfræði vega betur en ég mega gjarnan leiðrétta mig ef með þarf, eða taka undir það sem skrifað er hér... Öxulþungi hópferðabíls sem fullur er af túristum er heldur ekki nákvæmlega 10 sinnum meiri en öxulþungi jeppans sem er kannski um 2 tonn eða með 1 tonna öxulþunga, en Yaris er ekki nema 1 tonn án faþega, en fjórðaveldisreglan gildir eftir sem áður.
--- --- --- Vegagerðin: Vegirnir okkar http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/Vegirnir_okkar/$file/Vegirnir%20okkar.pdf Með vaxandi umferð hefur slit á vegum aukist til muna en þar vega þungt auknir vöruflutningar. Þungar bifreiðar slíta þjóðvegunum margfalt meira en léttar fólksbifreiðar því þungaumferðin brýtur niður burðarlög veganna smátt og smátt og veldur því að með tímanum minnkar burðarþol þeirra. Í grófum dráttum er talið að áhrif þyngdar hafi fjórða veldis áhrif á niðurbrot veganna. Þetta þýðir að öxull, sem er 10 tonn að þyngd, hefur 10 þúsund sinnum meiri áhrif á niðurbrot vegar en öxull sem er 1 tonn.
--- --- ---
Nú stendur jafnvel til að setja upp tollhlið á vegi umhverfis höfuðborgarsvæðið og rukka íbúa þar um vegatoll í því skyni að safna fé svo hægt sé að lagfæra skemmdir á vegum sem ljóst er að þungaflutningar, m.a. hópferðabílar fullir af ferðamönnum, valda. Hinn almenni heimilisbíll á nánast engan þátt í þessum skemmdum á þjóðvegakerfinu.
Mynd: Birkir Hrafn Jóakimsson: Hjólför í íslensku malbiki
--- --- ---
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íslendingar freistast til að reyna að hafa fé af ferðamönnum. Grani bóndi á Stað reyndi það eitt sinn og fór illa fyrir honum: "Á Stað á Ölduhrygg (Staðastað) bjó í gamla daga bóndi sá, er Grani hét; var hann bæði ágjarn og auðugur. Alfaravegurinn lá um landeign hans eptir endilaungum Ölduhrygg sem nú er kallað Staðarholt, og verður enn í dag að fara um þennan veg, er ferðast er vestur undir Jökul eða þaðan inn á Mýrar eða í Dali, enda er vegur sá mjög fjölfarinn, bæði til kauptúnanna Ólafsvíkur og Búða, og til skreiðarkaupa vestur i pláss", sem kallað er, en það er Hjallasandur, Keflavík, Ólafsvik, og Brimilsvellir. Grani bóndi þóttist nú geta náð miklu fé, ef hann tollaði veginn; byggði hann því afar mikinn torfgarð neðan frá sjó og upp í Langavatn (Staðarvatn). Hlið hafði hann á garðinum, þar sem vegurinn er, en veitti eingum fararleyfi, nema þeim, er greiddu Granatoll. Óljóst er með öllu, hve hár hann hefir verið, en illa undu menn tollgreiðslu þessari, enda launuðu þeir Grana bónda hana "því einhvern morgun fanst hann dauður hangandi við annan dyrastafinn í garðshliðinu. Hefir sá vegur aldrei verið tollaður síðan. Það er auðséð á garðrúst þeirri, sem eptir er, að hann hefir verið ákaflega hár og þykkur, og leingd hans hér um bil 300-400 faðmar." Þjóðsögur og Munnmæli. Jón Þorkelsson. 1899.
|
Telja vegaskemmdir ógna öryggi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 24.2.2017 kl. 07:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þriðjudagur, 17. janúar 2017
Flöskuskeytið víðförla. Myndband sem tekið var þegar skeytið fannst...
Myndband sem tekið var þegar flöskuskeytið fannst
Á sunnudag lenti flöskuskeytið Iceland-1 á eyjunni Tiree sem er skammt austan við Skotland. Tiree tilheyrir hinum innri Suðureyjum, Inner Hbridges. Þar bjó Ketill flatnefur faðir Auðar djúpúðgu. Þegar ljóst var í hvað stefndi var reynt að ná sambandi við einhverja íbúa eyjarinnar með ýmsu ráðum. Fljótt flýgur fiskisagan
Við bíðum svo eftir að Ævar vísindamaður geri þátt um fundinn og birti fleiri myndir...
Verkfræðistofan Verkís hannaði og smíðaði flöskuskeytin á eigin kostnað, enda telja starfsmenn Verkís að Ævar vísindamaður vinni gott starf í þágu barna og unglinga. |
Vísindi og fræði | Breytt 17.9.2021 kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 15. janúar 2017
Uppfært 18:00 >>> Iceland-1 flöskuskeytið er komið í fjöruna á eyjunni Tiree...
Uppfært klukkan 18:00
Samkvæmt skeyti sem kom klukkan 17:20 er skeytið komið upp í fjöru á eyjunni Tiree.
Uppfært. Ný staðsetning kom 13:20.
Annað flöskuskeytanna, Iceland-1, er rétt í þann mund að taka land á
Suðureyjum (Hebrides) við Skotland.
Stefnan er annað hvort á Eyjuna Coll eða Tiree, en smáeyjan Gunna þar á milli virðist bíða spennt.
Uppfært 13:30
Skeyti barst fá flöskunni klukkan 13:20.
Nú er nokkuð öruggt að hún mun lenda eftir nokkrar mínútur á eyjunni Tiree
sem er næsta eyja fyrir sunnan Gunnarseyju.
Þar er byggð og jafnvel flugvöllur.
https://en.wikipedia.org/wiki/Tiree
Næsta skeyti mun berast 17:20.
Smella á mynd til að stækka og sjá betur.
Síðasta skeyti barst klukkan 13:20 og er næsta skeyti væntanlegt 17:20.
Hér sést ferðalag skeytanna frá því í janúar 2016
Skeytið Iceland-1 stefnir á smáeyjuna Gunna
Gunna er aðeins 69 hektarar.
Á Gelísku hetir hún Gunnaigh, en það þýðir Gunnaeyja eða eyjan hans Gunna,
eða Gunnarseyja.
Flöskuskeytin hafa nú ferðast um 15.000 kílómetra síðan þau voru sjósett í janúar fyrir einu ári um 40 km sunnan við Reykjanesvita. Flöskuskeytin hafa staðist þessa þolraun og senda enn skeyti um gervihnetti með nákvæmum staðsetningarupplýsingum. Myndin neðst á síðunni er beintengd við líkanið sem sýnir hvar flöskuskeytin eru stödd. Með því að smella á blöðrurnar er hægt að kalla fram upplýsingaglugga eins og er á efstu myndinni. Með músarbendlinum er hægt að færa kortið.
Skoðið nánar á þessum vefsíðum: Vefsíða Ævars vísindamanns: http://krakkaruv.is/floskuskeyti
Stórt kort sem sýnir ferðalag flöskuskeytanna:
Bloggsíða með fjölda mynda og kortum, en þar má lesa um aðdraganda ævintýrisins og sjá hvernig flöskuskeytin líta út: agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/2163995
Verkfræðistofan Verkís hannaði og smíðaði flöskuskeytin á eigin kostnað, enda telja starfsmenn Verkís að Ævar vísindamaður vinni gott starf í þágu barna og unglinga.
|
Beintengd mynd sem sýnir hvar flöskuskeytin eru stödd núna.
Prófið að draga til kortið með músinni og nota músarhjólið.
Líkan sem sýnir vindakerfið akkúrat núna.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 15. janúar 2017
Annað flöskuskeytanna er núna að taka land í Skotlandi. Verður Gunna fyrir valinu? Sjá myndir...
Annað flöskuskeytanna, Iceland-1, er rétt í þann mund að taka land á
Suðureyjum (Hebrides) við Skotland.
Stefnan er annað hvort á Eyjuna Coll eða Tiree, en smáeyjan Gunna þar á milli virðist bíða spennt.
Smella á mynd til að stækka og sjá betur.
Síðasta skeyti barst klukkan 09:20 og er næsta skeyti væntanlegt 13:20.
Hér sést ferðalag skeytanna frá því í janúar 2016
Skeytið Iceland-1 stefnir á smáeyjuna Gunna
Gunna er aðeins 69 hektarar.
Á Gelísku hetir hún Gunnaigh, en það þýðir Gunnaeyja eða eyjan hans Gunna,
eða Gunnarseyja.
Flöskuskeytin hafa nú ferðast um 15.000 kílómetra síðan þau voru sjósett í janúar fyrir einu ári um 40 km sunnan við Reykjanesvita. Flöskuskeytin hafa staðist þessa þolraun og senda enn skeyti um gervihnetti með nákvæmum staðsetningarupplýsingum. Myndin neðst á síðunni er beintengd við líkanið sem sýnir hvar flöskuskeytin eru stödd. Með því að smella á blöðrurnar er hægt að kalla fram upplýsingaglugga eins og er á efstu myndinni. Með músarbendlinum er hægt að færa kortið.
Skoðið nánar á þessum vefsíðum: Vefsíða Ævars vísindamanns: http://krakkaruv.is/floskuskeyti
Stórt kort sem sýnir ferðalag flöskuskeytanna:
Bloggsíða með fjölda mynda og kortum, en þar má lesa um aðdraganda ævintýrisins og sjá hvernig flöskuskeytin líta út: agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/2163995
Verkfræðistofan Verkís hannaði og smíðaði flöskuskeytin á eigin kostnað, enda telja starfsmenn Verkís að Ævar vísindamaður vinni gott starf í þágu barna og unglinga.
|
Beintengd mynd sem sýnir hvar flöskuskeytin eru stödd núna.
Prófið að draga til kortið með músinni og nota músarhjólið.
Líkan sem sýnir vindakerfið akkúrat núna.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. janúar 2017
Niðurstaða mælinga: Árið 2016 var hlýtt á heimsvísu, en ekki tölfræðilega hlýrra en árið 1998...
Í dag voru birtar niðurstöður hitamælinga frá gervihnöttum til loka desembermánaðar 2016. Samkvæmt þeim var árið 2016 hlýtt, en munurinn á árunum 1998 og 2016 er ekki tölfræðilega marktækur, eða 0,02°C. Þetta er mikil einföldun á fyrirbærunum El-Niño og La-Niña. Sjá góðar skýringar Trausta Jónssonar á fyrirbærinu hér. Verður árið 2017 hlýtt á heimsvísu? Við skulum ekki fullyrða neitt, en brjóstvitið segir okkur að svo muni ekki verða. Enn síður árið 2018. Það er nefnilega svo að svala fyrirbærið La-Liña fylgir oft í kjölfar hins hlýja El-Niño. Takið t.d. eftir ferlinum árið 2000, þ.e. um tveim árum eftir hið öfluga El-Niño árið 1998. Sjórinn dempar allar svona hitasveiflur, ekki síst hjá okkur sem lifum í nábýli við hann. Við skulum því sjá til hvað gerist hér á landi eftir svo sem fáeina mánuði. Sjá nánar á vefsíðu Dr. Roy Spencer með því að smella á krækjuna: Global Satellites: 2016 not Statistically Warmer than 1998January 3rd, 2017 by Roy W. Spencer, Ph. D.
Hvað tekur svo við eftir að La-Nina lýkur? - Hækkandi hiti? Enginn veit svarið. Sumir telja að það muni halda áfram að hlýna hægt og rólega vegna aukins styrks koltvísýrings í loftinu, aðrir að nú muni taka að kólna vegna minnkandi sólvirkni og sveiflna í hafinu, og enn aðrir gera ráð fyrir meira og minna kyrrstöðu... Kannski það verði bara sambland af þessu öllu?
Hafi einhverjum ekki litist á blikuna þegar hitinn hækkaði hratt fyrir rúmu hálfu ári, þá getur hinn sami andað rólega núna. Að minnsta kosti í fáein ár ef að líkum lætur :-)
Myndin efst á siðunni: Hnattrænn lofthiti til loka desembermánaðar samkvæmt gervihnattamælingum og úrvinnslu UAH. Heimild: Dr. Roy Spencer. Blái ferillinn er mánaðagildi. Rauði ferillinn er 13 mánaða meðaltal. (Meðaltalsferillinn sýnir meðaltalsgildi fyrir tímann fyrir aftan og fyrir framan hvern punkt á ferlinum, svo að hann nær ekki alveg til endanna. "Centered average"). Mælingar á hitastigi lofthjúpsins með hjálp gervihnatta hófust árið 1979.
Yfirborðshiti sjávar í Kyrrahafinu þar sem El-Niño átt sér stað nýlega. Beintengdur ferill frá Áströlsku veðurstofunni. Sjá hér
Rétt er að minna á að þessi pistill fjallar ekki um hnatthlýnun af mannavöldum, heldur eðlilegar sveiflur í náttúrunni.
--- --- --- Allur lóðrétti skalinn á þessari mynd nær yfir 0,8 gráður. Munur (0,02°) milli áranna 1998 og 2016 er örlítill, miklu minni en óvissumörk mælinganna sem gætu verið +/- 0,1 gráða.
Þessar upplýsingar koma að gagni ef einhverjir fara að deila um keisarans skegg |
Vísindi og fræði | Breytt 4.1.2017 kl. 08:45 | Slóð | Facebook
Laugardagur, 26. nóvember 2016
Er "endurheimt votlendis" oft tilgangslítil...?
Hve lengi losar mýri sem hefur verið þurrkuð koltvísýring eða CO2? Að því hlýtur að koma, að órotnuðu jurtaleyfarnar í fyrrum mýrinni hafi að mestu rotnað og breyst í frjósama gróðurmold. Það tekur ekki mjög langan tíma. Eftir það er losunin ekki meiri en frá venjulegum úthaga og þörfin fyrir að endurheimta votlendið til að minnka losun á CO2 þá engin. Hver þessi tími er virðast fáir vita, ef þá nokkur. Hugsum okkur skurð sem opnaður var fyrir 100 árum. Jarðvegurinn er fyrir löngu orðinn þurr og hefur breyst í frjósama gróðurmold. Rotnun jurtaleyfanna sem hófst skömu eftir að skurðurinn var opnaður hefur að mestu stöðvast. Losun koltvísýrings frá þessu þurra landi er orðin óveruleg. Þetta skilja allir sem vilja. |
Svo má ekki gleyma því, að þó að blautar mýrar losi ekki nema takamarkað af CO2, þá losa þær metan. Metan er um 25 sinnum virkara gróðurhúsagas en koltvísýringur, svo það kann að vera að fara úr öskunni í eldinn að bleyta upp land til að endurheimta votlendi! Nokkrar spurningar sem menn ættu að kunna svar við:
Fáir eða enginn virðist kunna svar við þessum spurningum, sem þó eru grundvallaratriði í umræðunni um loftslagsmál.
Oft hefur mér komið til hugar að endurheimt votlendis með því að fylla í skurði sé ekki endilega rétt aðferð til að minnka losun koltvísýrings. Annar möguleiki til að binda kolefni, og jafnvel betri, er að rækta skóg á landinu, eða einfaldlega friða það og leyfa sjálfsáðum trjáplöntum að vaxa. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá hvernig fyrrum votlendi hefur gerbreytt um svip á fáum áratugum. Þarna var landið ræst með mörgum skurðum, en hefur lengi verið laust við ágang hesta og kinda. Svona skógur er væntanlega duglegur að binda koltvísýring og auðvitað miklu fallegri en einhver dýjamýri. Þarna hefur engu verið plantað. Allt er sjálfsáð. Landið er ofarlega í uppsveitum og er alllangt síðan það var þurrkað með skurðgreftri. Fræ hefur meðal annars borist frá skóginum í fjallinu. Til þess að flýta fyrir að skógur vaxi upp nánast af sjálfdáðum mætti planta fáeinum birkiplöntum hér og þar, jafnvel aðeins 100 stk. í hvern hektara, þ.e. um 10 metrar milli pantnanna. Eftir nokkur ár fara þessi tré að bera fræ og verða frælindir. Sjálfsáðar plöntur fara að skjóta upp kollinum vítt og breitt. Á fáeinum áratugum verður birkiskógurinn þéttur og fallegur. Þetta kostar lítið sem ekkert, eða þrjá bakka af birkiplöntum í hvern hektara. Um 15.000 krónur kosta plönturnar samtals. Auðvitað verður einnig að girða landið fjárheldri girðingu. Tíminn vinnur með okkur. Að sjálfsögðu má planta þéttar, nota fleiri tegundir en birki og jafnvel stunda formlega skógrækt. En til að koma til meira og minna sjálfsáðum skógi þarf litla fyrirhöfn. Fyrst og fremst þarf að friða landið og girða, og tryggja að frælindir skorti ekki. Síðan er auðvitað einfalt að flétta svona birkiskóg við votlendissvæði með því að fylla í skurði í hluta landsins. Þannig má fara bil beggja og tryggja fjölbreytt fugla- og plöntulíf ásamt skjólgóðum skógi.
Hvað skyldi skurðurinn sem fólkið er að moka ofan í vera gamall? Líklega mjög gamall, enda greinlega nánast uppgróinn. Hver mikil ætli árleg losun per hektara landsins þarna sé? Varla mikil.
Myndin efst á síðunni er fengin að láni af vefsíðu Ríkisútvarpssins hér. Myndin neðst á síðunni er fengin að láni af vef Garðabæjar hér. |
Vantar vísindin við endurheimt mýra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 5.12.2017 kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.12.): 10
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 70
- Frá upphafi: 764727
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði