Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Vetrarsólstöður, og sólin áfram í ham næstu árin...

Sólsveiflur #24 og 25

 

 

 

 

 

 

 

Nú á vetrarsólstöðum eða vetrarsólhvörfum, þegar sólin kemst ekki hærra en 2,8 gráður yfir sjóndeildarhringinn í Reykjavík, er ástæða til að líta til þessarar dagstjörnu sem veitir okkur birtu og yl.

Það er alþekkt að virkni sólar er breytileg með um 11 ára sveiflu. Nú hefur NASA í annað sinn spáð fyrir um styrk næstu sólsveiflu, þ.e. sveiflu númer 24 sem verður í hámarki eftir um sex ár. Virkni sólar hefur verið með eindæmum mikil undanfarna áratugi og virðist sem næsta sólsveifla ætli ekki að láta deigan síga.

[Hugsanlega þarf að smella  hér  til að sjá allar myndirnar]

Myndin hér vinstra megin fyrir ofan er frá spá NASA sem birt var 10 maí.  Þar er reyndar verið að beina sjónum að þarnæstu sólsveiflu, sem væntanlega verður í hámarki um 2022.  

Önnur spá birtist síðan í gær 21. desember, og er þar fjallað um tilraun til að spá fyrir um næstu sólsveiflu. Sjá myndina hægra megin.

Nú erum við stödd í lægðinni mitt á milli sólsveiflu 23 og 24. 

Spáin fyrir næstu sólsveiflu: 

Scientists Predict Big Solar Cycle (21. des. 2006): "Solar cycle 24, due to peak in 2010 or 2011 "looks like its going to be one of the most intense cycles since record-keeping began almost 400 years ago," says solar physicist David Hathaway of the Marshall Space Flight Center. He and colleague Robert Wilson presented this conclusion last week at the American Geophysical Union meeting in San Francisco" .

Sem sagt, NASA spáir því að að næsta sólsveifla verði mjög virk. Það gæti þýtt það að áfram verði vel hlýtt og náttúaran fari mjúkum höndum okkur hér á Fróni eins og á undanförnum áratugum. Ekki verður lát á hnatthitun næsta áratuginn.

Sjá nánar hér á vefsíðu NASA: http://science.nasa.gov/headlines/y2006/21dec_cycle24.htm?list863667 

 

En hvernig hljóðaði spáin fyrir þarnæstu sólsveiflu, sem verður í hámarki um 2022? 

Solar Cycle 25 peaking around 2022 could be one of the weakest in centuries (10. maí 2006): "... The slowdown we see now means that Solar Cycle 25, peaking around the year 2022, could be one of the weakest in centuries, says Hathaway".

Hér spáir NASA því aftur á móti að þarnæsta sólsveifla geti orðið ansi slöpp. Gangi það eftir, þá gætum við átt von á kuldaskeiði um 2030.

Sjá nánar á vefsíðu NASA: http://science.nasa.gov/headlines/y2006/10may_longrange.htm?list156173

 

Svo er það vafinn: Ýmsir eru að reyna að spá fyrir um hámark næstu sólsveiflu, og hafa sést tölur á bilinu 42 til 185. 
Will the next solar cycle please stand up?

"Astronomers at the American Geophysical Union meeting in San Francisco are debating predictions of what the next solar cycle, number 24, which will start next year and will peak in 2011, will be like....Why does it matter? The level of solar activity affects satellite communications, the power grid, the airline industry's ability to fly polar routes and to keep passengers safe from radiation, deep space missions, GPS operations, the Space Station's viability, and climate change...".

 

Humm...    Kuldaskeið 2030. Er það nú alveg víst? Nei, auðvitað ekki alveg víst, en hver veit? Sjá vangaveltur undirritaðs hér: Öldur aldanna.

 

Menn hafa vissulega velt þessu fyrir sér.  Smellið á krækjur fyrir ítarefni:

VIEWPOINT: GLOBAL WARMING NATURAL, MAY END WITHIN 20 YEARS:  

New Little Ice Age
Instead of Global Warming?
by Dr. Theodor Landscheidt
 

MosNews: Russian Scientists Forecast Global Cooling in 6-9 Years 

BBC: Sunspots reaching 1,000-year high 

Max Plank Society:
The Sun is More Active Now than Over the Last 8000 Years 

Solar Cycles 24 and 25 and Predicted Climate Response

K.Lassen
Danish Meteorological Institute, Solar-Terrestrial Physics Division:
Solar Activity and Climate (M.a. fjallað um hafís við Ísland).

 --- --- ---

Jæja, vonandi verður hlýtt áfram, en ekki ís og óáran, eins og fram kemur í erindi Dr. Þórs Jakobssonar  "Um hafís fyrir Suðurlandi - frá landnámi til þessa dags":.

"1695. Óvanalega miklir hafísar. Ís rak um veturinn upp að Norðurlandi og lá hann fram um þing, norðanveður ráku ísinn austur fyrir og svo suður, var hann kominn fyrir Þorlákshöfn fyrir sumarmál og sunnudaginn fyrstan í sumri (14. apríl) rak hann fyrir Reykjanes og Garð og inn á fiskileitir Seltirninga og að lokum að Hvalseyjum og í Hítarós, fór hann inn á hverja vík. Hafði ís ei komið fyrir Suðurnes innan 80 ára, þótti því mörgum nýstárlegt og undrum gegna um komu hans. Þá mátti ganga á ísum af Akranesi í Hólmakaupstað (Reykjavík) og var ísinn á Faxaflóa fram um vertíðarlok rúmlega, braut hann skip undan 6 mönnum fyrir Garði, en þeir gengu allir til lands". 

Þetta var þegar sólin var í mikilli lægð, svokölluðu Maunder Minimum.  Þá var kalt víða um heim og Litla Ísöldin í algleymingi.

 

Ísilögð Thames árið 1677.

Sjá málverkið neðst á vefsíðunni. Smellið á myndina til að sjá stærri mynd. 

Málverkið er eftir Abraham Hondius (1630-1695). Museum of London. Fleiri myndir af "Frost Fairs" á Thames eru til.

Horft er niður eftir ánni í átt að gömlu Lundúnarbrúnni.  Lengst til hægri handan brúarinnar er Southwark Cathedral, og þar til vinstri sést í turn St. Olave's Church. 

Takið eftir ísjökunum, sem virðast um hálfur annar metri á þykkt. Hvernig stendur á þessum ósköpum? Eitt kaldasta tímabil Litlu ísaldarinnar svokölluðu stóð yfir meðan virkni sólar var í lágmaki sem kallast Maunder minimum. Það stóð yfir um það bil frá 1645 til 1715. Þá sáust hvorki sólblettir né norðurljós og fimbulkuldi ríkt víða. Málverkið er frá þessu kuldaskeiði.

  --- --- ---

 

Að lokum:

Enn og aftur er sólin lægst á lofti og nýtt ár hefur göngu sína innan fárra daga. Enn og aftur hefur jörðin nýja hringferð um sólina. Njótið fegurðar stjörnuhiminsins, en nú eru síðustu forvöð vegna vaxandi ljósmengunar. Hugsanlega verða afkomendur okkar að nýta sér tæknina og láta sér nægja að skoða stjörnuhimininn í rauntíma með hjálp gervihnattamynda, eins og  þeim sem eru hér. Þar sést sólin eins og hún er í dag á vetrarsólhvörfum, og síðan alla daga ársins. Falleg er þessi sanna dagstjarna, eins og hún er nefnd í hinum fornu Sólarljóðum. Hver veit nema orðið jól sé skylt orðinu sól?


Gleðileg Jól! 

 


Fleiri myndir

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 25
  • Sl. sólarhring: 143
  • Sl. viku: 248
  • Frá upphafi: 761645

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 226
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband