Al Gore væntanlegur. Fróðlegur ritdómur um An Inconvenient Truth

 

Í Mogganum í dag kemur fram að Al Gore sé væntanlegur hingað til lands á næstunni.

Nýlega las ég “A Skeptic’s Guide to An Inconvenient Truth“  eftir Dr. Marlo Lewis (http://www.cei.org/dyn/view_Expert.cfm?Expert=10).  Í þessu 120 blaðsíðna verki (draft) er krufin til mergjar bók (og kvikmynd) Al Gore og borin saman við fjölmargar vísindagreinar o.fl. (302 tilvitnanir), sem sjálfsagt er að skoða.   Fjöldi mynda.

Fróðlegt að fletta þessu og glugga í sumt.  Vekur áleitnar spurningar. Hvað er eiginlega rétt og satt í þessum málum? Er ástandið virkilega ekki eins slæmt og fram kemur hjá Al Gore?

Mæli eindregið með þessu! 

Ritdómurinn (drög) er ókeypis hér  (Best er að hægrismella á krækjuna og vista þetta 5 Mb skjal).

Stuttur úrdráttur: http://www.cei.org/pdf/5539.pdf

Hér er síðan greinin í endanlegri útgáfu ásamt stuttum video-fyrirlestrum og Power-Point kynningu:   http://www.cei.org/pages/ait_response.cfm

 

Annar góður ritdómur sem kallast Gore Gored eftir Christhopher Monckton er hér.


mbl.is Al Gore hélt fyrirlestur á ráðstefnu Kaupþings banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í skugga Satúrnusar

Í skugga Satúrnusar-2

Í gær (11. okt.) voru birtar myndir frá Cassini geimfarinu sem teknar voru í skugga Satúrnusar. Þetta eru ótrúlegar myndir, nánast eins og úr öðrum heimi. Sólin skín í gegn um hringi reikistjörnunnar, sem verða einstaklega skýrir.

Myndin hér til hliðar er samsett úr 165 myndum sem teknar voru á 12 klukkustundum meðan ómannaða geimfarið sveif framhjá reikistjörnunni.

 

(Smellið á myndina til að sjá stærri mynd, og síðan aftur til að sjá enn stærri). 

 

Sjá vefsíðuna http://ciclops.org/view.php?id=2230&flash=1
Þar er þessi mynd ásamt fleiri myndum og skýringum. Þar má einnig sjá mun stærri og skýrari myndir en hægt er að birta hér.

Sjá einnig:

http://saturn.jpl.nasa.gov/home/index.cfm

http://ciclops.org/index.php

http://ciclops.org/view_event.php?id=56 

 


Myrkvun höfuðborgarsvæðisins, stjörnuskoðun og ljósmengun

c_documents_and_settings_agust_desktop_temp_hale-bopp-reykjavik-800w.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Til stendur að slökkva á allri götulýsingu á höfuðborgarsvæðisins í hálftíma 28. september, það er að segja ef veður leyfir. Hugmyndin er að vekja athygli á stjörnuhvelfingunni sem margir borgarbúar hafa gleymt að sé til. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur mun lýsa í útvarpi því sem fyrir augun ber, og vel getur verið að félagar í Stjörnuskoðunarfélaginu verði með sjónauka sína á almannafæri.

[Hugsanlega þarf að smella  hér  til að sjá allar myndirnar]

Fáein orð um Ljósmengun:

Ljósmengun frá illa hannaðri lýsingu er helsti óvinur þess sem vill njóta fegurðar himinsins. Þetta er ekki aðeins vandamál hérlendis, heldur víða um heim. Nú er að vaxa upp kynslóð sem varla hefur séð stjörnur aðrar en þær allra skærustu. Hve margir skyldu hafa séð okkar eigin Vetrarbraut? Jafnvel norðurljósin hverfa í glýjuna frá borgarljósunum.

Víða erlendis hafa menn gert sér grein fyrir þessu vandamáli og gert bragarbót: Lýsing hefur orðið þægilegri, orkunotkun verulega minni, og fjárhagslegur ávinningur hefur því verið töluverður af þessum lagfæringum. Allir eru ánægðir þegar vel tekst til, ekki síst stjarneðlisfræðingar, störnuáhugamenn, og reyndar allir þeir sem unna fallegri náttúru.

Hér á landi hefði mátt ætla að við værum blessunarlega laus við þessa mengun eins og aðrar, en það er öðru nær. Ljósmengun hér er engu minni en víða í hinum stóra heimi. Bjarmi yfir höfuðborginni er ótrúlega mikill, svo og bjarmi frá gróðurhúsum í dreifbýlinu.

Vaxandi sumarhúsabyggð utan þéttbýlis veldur áhyggjum. Tilheiging virðist vera hjá sumum sumarhúsaeigendum að vera með útljós kveikt, jafnvel þegar enginn er við. Ljósin hjálpa óboðum gestum að finna sumarhúsið. Það er einnig tillitsleysi við nágrannana að vera með logandi og illa skermuð útiljós að óþörfu. 

Hér fyrir ofan eru tvær myndir teknar í mars 1997.

Myndin vinstra megin er tekin frá Garðabæ  yfir hluta Reykjavíkur. Vel má sjá bjarmann, sem liggur eins og hjúpur yfir borginni. Aðeins allra skærustu stjörnur sjást, og  Vetrarbrautin sést ekki lengur. Ein bjartasta halastjarna sem sést hefur á síðustu árum prýddi stjörnuhimininn. Mjög erfitt var að ljósmynda hana frá Reykjavík.

Myndin hægra megin sýnir Hale-Bopp og aragrúa stjarna. Hér var myrkrið það gott, að hægt var að hafa ljósop myndavélarinnar opið í nokkrar mínútur. Þá koma fram ótal stjörnur, sem venjulega sjást ekki með berum augum. Einnig má sjá bláan rafhala halastjörnunnar, en hann sést ekki með berum augum. Myndin var tekin frá Keilisnesi, áður en Reykjanesbrautin var lýst upp með illa skermuðum ljósum. Lýsing utanbæjar er sífellt að aukast, og oftar en ekki gleymist að huga að góðri lýsingartækni. Lýsingin veldur óþarfa bjarma, og ekki síður óþarfa glýju.

Neðst er mynd sem sýnir bjarmann frá gróðurhúsum í uppsveitum Árnessýslu.  Þetta er ekki eldgos, ef einhverjum skyldi hafa komið það til hugar!

Hér á landi hafa ýmsir áhugamenn reynt að vekja áhuga á þessu sívaxandi vandamáli með greinaskrifum og vefsíðum:

Krækjur:

Ljósmengun - auðlind sem er að hverfa

Stjörnufræðivefurinn, frábær vefsíða

Ljósmengun er sívaxandi vandamál,  frétt á Stjörnufræðivefnum

Ljósmengun, grein á Stjörnufræðivefnum 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness (og allra landsmanna !)

Gap ginnunga, stjörnuskoðunarsíða frá 1997

 

Snúum okkur aftur að myrkvuninni:

Jæja, nú er víst komið nóg af barlómi. Ef vel tekst til með myrkvun Stór-Reykjavíkursvæðisins verða allir ánægðir. Stjörnuhiminninn mun tindra næstum eins og þegar Ingólfur nam hér land fyrir meira en þúsöld. Hvernig er best að njóta stjarnanna? Þarf stjörnusjónauka? Nei alls ekki. Reyndar sést að mörgu leyti meira með venjulegum handsjónauka en stórum stjörnusjónauka, þ.e ef maður vill njóta fegurðar vetrarbrautarinnar. Það er kjörið að heimsækja Stjörnufræðivefinn til að búa sig undir sjónarspilið.

Nú er bara að vona að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir 28. september!

Eldgos á myndinni hér fyrir neðan? Nei. Sjá textann hér fyrir ofan.


Fleiri myndir

« Fyrri síða

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 133
  • Frá upphafi: 767517

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 97
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband