Hvers vegna er réttlætiskennd minni misboðið? Svarið nú ágætu bloggarar.

 Kvöldmáltíðin

Myndin hér  barst mér óvænt úr netheimum. Ekki veit ég hver höfundur myndarinnar er og ekki heldur hvernig hún kom.  Hún kom óvænt eins og svo margt annað.

Ég vona að höfundurinn fyrirgefi mér að ég skuli nota myndina. Reyndar vona ég líka að aðrir fyrirgefi mér einnig, því það er líklega ósmekklegt af mér að nota myndina af síðustu kvöldmáltíðinni hér. Á sama hátt og auglýsing Símans var að margra mati ósmekkleg. Stundum verður manni á í hita leiksins, en í ljósi þess alls þess ósmekklega sem hefur verið að gerast í stjórnmálunum undanfarið er hún höfð hér.

 

Í gær og í dag er allt mjög undarlegt. Ég veit hreinlega ekki hvaðan á mig stendur veðrið.  Skil hvorki upp né niður í því sem er að gerast. Er í lausu lofti.

Margar spurningar hringsnúast í hausnum á mér. Hér eru fáein dæmi sem ég man eftir í augnablikinu. Reyndar ritskoðaði ég listann til þess að fara ekki yfir velsæmismörk.

 - Hvað er eiginlega á seyði?
 - Hvernig maður er Björn Ingi?
 - Eru einhverjir eiginhagsmunir sem liggja að baki?
 - Hvaða áhrif hefur þetta á einkavæðingu auðlinda Íslands?
 - Hvaða áhrif hefur þetta á ýmislegt annað sem skiptir máli?
 - Hvað er að gerast í REI?
 - Má vænta tugmilljarða hagnaðar af útrásinni, eða er þetta tómur misskilningur?
 - Hefur Dr. Stefán Arnórsson jarðfræðiprófessor rétt fyrir sér varðandi útrásina?
 - Hver á símann sem er á myndinni?
 - Hvaða glannalega mynd er þetta hér?

 - O.s.frv.
 - O.s.frv. 

 

Getið þið bloggarar ekki hjálpað mér? Þið megið kommentera eins og ykkur lystir hér fyrir neðan og reyna að skýra út fyrir mér hvað er á seyði.  Hjálpið mér að ná áttum.

Gjörið svo vel...   Orðið er laust.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Undirferli og græðgi eru því miður einkunnarorð margra ´stjórnmálamanna.  Að mínu mati eru þarna bæði hefndaraðgerðir og græðgi í gangi. Menn hafa áður floppað á öruggum gróða eins og t.d. Íslensk erfðagreining. Það á alls ekki að einkavæða auðlindir landsins þetta er þá bara eins og kvótakerfið. Við sem lítið eigum af aur, verðum þá sjálfsagt í vatnslausum og rafmagnslausum kofum á elliárum. Guði sé lof að maður er búin að ná miðjum aldri, veit ekki hvert þessi nýja kynslóð fer með okkur, ekki er virðing þeirra nein fyrir eldra fólki og ekki batnar það.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 17:41

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þá er nú Gorinn betri.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2007 kl. 17:42

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ásdís. Þakka þér fyrir athugasemdina. Ég var búinn að leita mér sáluhjálpar á síðu þinni við lestur um þessi mál sem ég á erfitt með að fá botn í. Ég held að ég sé nokkuð sammála því sem þú skrifar, en þætti vænt um að fá andlegan stuðning frá fleirum.

Hvaða Goregeir er í þér Sigurður minn?  

Ágúst H Bjarnason, 12.10.2007 kl. 17:51

4 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Mér finnst þessi og aðrar myndir sem ganga um vegna þessa máls ósmekklegar. Skortir alveg húmor fyrir svona
En sumir og kannski margir hafa gaman að þessu.
Kannski er líka mikilvægt að taka háalvarlegt mál eins og þetta með ákvðenum léttleika.
Ég finn til með þessu fólki, fráfarandi meirihluta og fleirum sem flæktir eru í þetta allt   Vildi ekki vera í sporum sumra þeirra nú.

Kolbrún Baldursdóttir, 12.10.2007 kl. 20:16

5 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ég tek undir með þér Ágúst. Þetta er frekar torskilið alltsaman. Þó er nokkuð ljóst að á einhverjum tímapunkti sáu Geysismenn sér leik á borði og pressuðu á stjórnarmenn Orkuveitunnar eða útrásarhlutans þar sem þeir sáu möguleikann á að komast yfir gríðarlega verðmætan samning sem þegar hefur verið opinberaður. Á bak við Geysi er ekki sú þekking og viðskiptavild í orkugeiranum sem Orkuveitan býr yfir.

Þarna átti einfaldlega að hirða ómældan gróða sem liggur í Orkuveitunni.

Þórbergur Torfason, 13.10.2007 kl. 00:56

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er nú svo lítill stjórnmálagúrú í mér. held samt að það sé ekki nokkur leið að skilja þetta nema að komast inn í hausinn á þessu liði.

Jóna Á. Gísladóttir, 13.10.2007 kl. 02:27

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Kolbrún. Líklega má líta á svona myndasendingar á netinu sem gálgahúmor. Þegar fólki er alvarlega misboðið hagar það sér ekki endilega skynsamlega. Mynd eins og þessi er auðvitað tvíræð og má líta á hana frá ýmsum sjónarhornum.  

Eftir á að hyggja er það spurning hvort það sé smekklegt að nota mynd af síðustu kvöldmáltíðinni í svona tilgangi. Sjálfur tók ég þátt í að gagnrýna notkun myndarinnar í auglýsingaskyni fyrir skömmu. Í hita leikins hættir mönnum til að fara yfir strikið.

Ágúst H Bjarnason, 13.10.2007 kl. 07:31

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þórbergur og Jóna. Sjálfsagt skýrast málin á næstu dögum, en ýmislegt undarlegt hefur verið að koma í ljós eins og alþjóð veit. Ég er hræddur um að það beri þess merki að embættismenn og stjórnmálamenn eru að semja við þrælvana menn úr viðskiptalífinu. Leikurinn hlýtur að vera mjög ójafn. Annar aðilinn gæti leikið sér að hinum eins og köttur að mús, þó ég vilji ekki meina að svo hafi endilega verið. Eins er hraðinn það mikill, að engu líkara er að hægri höndin viti ekki alltaf hvað sú vinstri er að gera.

Ágúst H Bjarnason, 13.10.2007 kl. 07:39

9 Smámynd: halkatla

íslensk stjórnmál eru næstum aldrei fyndin, heldur bara sorgleg. ég vorkenni reyndar þessum fráfarandi meirihluta ekki neitt, það voru þau sem byggðu Björn Inga upp og það eru þau sem bera ekki virðingu fyrir einu né neinu sem skiptir í rauninni máli einsog almenni velferð og þjóðarauðlindum.

halkatla, 13.10.2007 kl. 08:25

10 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Þótt Svandís sé vel gerð manneskja (eins og Gísli Marteinn) er ég hræddur um að hún ráði ekki við Alfreð. Ég tel reyndar að ef skrattinn og Alfreð færu á samningafund myndi Alferð hirða af honum helvítið.

Afsakið orðbragðið.

Benedikt Halldórsson, 13.10.2007 kl. 08:57

11 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Í mínum huga eru stjórnarskiptin í borginni, og hvernig staðið var að þeim, ekki aðalatriði málsins. Ég hef mun meiri áhyggjur af því hvað menn hafa verið að bralla bakvið tjöldin og hvað menn enn eru að bralla. Borgarstjórnir eru ekki eilífar. Þær koma og fara, staldra í mesta lagi við í fáein ár. Gjörðir þeirra sem fara með völdin geta þó haft afleiðingar um alla framtíð.  

Ágúst H Bjarnason, 13.10.2007 kl. 09:33

12 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Ég tel að nú sé komið að því að aðskilja hafrana og sauðina.  Nú verður Svandís að sýna úr hverju hún er gerð.  Stendur hún við málssóknina (sem ég lít ekki á að sé beint gegn borgaryfirvöldum hver svo sem þau eru á hverjum tíma, heldur þeim sem boðuðu ólöglega til fundarins), eða bakkar hún út fyrir völdin???  Ég verð nú að játa að mér varð frekar skemmt yfir samlíkingu Benedikts frænda míns af Alfreð og skrattanum, en hvað myndina varðar, þá finnst mér þetta alveg jafn ósmekklegt og auglýsingin frá Símanum um daginn.  Boðskapurinn komst þó til skila.  

Sigríður Jósefsdóttir, 13.10.2007 kl. 11:20

13 Smámynd: Þórbergur Torfason

Hvað þessa mynd varðar, er hún pínulítið stolin hugmynd í hita leiksins. Gaman að sjá hvað hugmyndaflugið og húmorinn eru samstíga.

Fréttir sem ganga fram af manni hrannast upp þessa dagana. Forsíðufrétt í dag, Sigurður Gizzurarson og krónurnar. Getur verið að framsóknargen og fjármunir séu eins og Don Alfredo og andskotinn

Þórbergur Torfason, 13.10.2007 kl. 13:28

14 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Dr. Stefán Arnórsson prófessor í jarðfræði og Dr. Ingvar Birgir Friðleifsson skólastjóri Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna hafa bent á að fjölmargar þjóðir búi yfir þekkingu til að virkja jarðhita.  Jarðborunartæknin komi frá olíuiðnaðinum.  Ekki sé hægt að tala upp arð af jarðgufuvirkjunum á sama hátt og verð á hlutabréfamörkuðum. Töluverð áhætta og óvissa fylgir slíkum virkjunum og arðurinn oft óviss. Stefán og Ingvar hafa áratuga reynslu í þessum málum og er mark á þeim takandi.

Í aldarþriðjung hefur sá sem þetta ritar unnið við hönnun jarðvarmavirkjana og er því vel kunnugt um þessi mál og getur því ekki með nokkru móti skilið þær væntingar um arðsemi sem hafa verið í fréttunum. Telur það draumóra.

Ágúst H Bjarnason, 14.10.2007 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 762082

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband