Fasteignagjöld hækka óheyrilega milli ára. 14% - 20%

 

 
 

- Fasteignagjöld af miðlungsíbúð í Reykjavík hækka um 14%.

- Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis í Reykjavík hækka um 20%

- Fasteignagjöld af sumarhúsum og sumarhúsalóðum í uppsveitum hækka um 20%

 

- Þetta er  þrefalt meira en hækkanir á almennu verðlagi og launum. 

 

Þannig er þetta víða um land. Álagningaseðlar hafa ekki enn verið bornir út, þannig að fólk er ekki farið að átta sig á þessum ósköpum. Hvað er á seyði? Eru sveitarfélögin alveg úti að aka og gjörsamlega stikkfrí? Þessi hækkun er með öllu óskiljanleg og gjörsamlega út í hött.

 

Sjá upplýsingar á vef Fasteignamats ríkisins hér

Ég vona bara að þetta sé tómur misskilningur hjá mér.   Undecided
Er mig að dreyma, eða er þetta rétt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta endurspeglar bara hina raunverulegu verðbólgu. Það er ekkert að marka reikningskúnstir einhverra opinberra blýantanagara. Það stýrist allt af pólitískum hagsmunum og áróðri.

Baldur Fjölnisson, 10.1.2008 kl. 19:03

2 identicon

Ji hvað hann Baldur hér fyrir ofan er líkur honum Georg Bush

En Ágúst takk fyrir síðast. Gaman að hitta þig þarna um daginn

Bryndís R (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 20:10

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það vantar alltaf meiri pening í rekstur sveitarfélaganna þannig að þeir mjólka okkur til blóðs.  Kær kveðja.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2008 kl. 20:36

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Maður spyr sig: hvenær ætlar almenningur að rísa gegn þessum yfirgangi og hroka?  Er bara eitt í stöðunni, að kjósa yfir sig á 4ja ára fresti sömu FramsóknarÍhaldsSamfylkinguna?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.1.2008 kl. 20:47

5 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Já fáránlegt að Reykjavík lækki ekki prósentuna.  Kannski ekki að undra, vinstrimenn.  Verst að ég er ekki viss um að fyrri meirihlutinn hefði lækkað heldur

Þorsteinn Sverrisson, 10.1.2008 kl. 21:27

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það kemur ekki fram í pistlinum hvernig þú reiknar út þessa prósentutölu, er það útfrá hækkun í krónutölu eða sem hlutfall af verðmæti eignar? Eignir hafa hækkað mikið að verðmæti...

Marta B Helgadóttir, 10.1.2008 kl. 22:42

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæl Marta.

Á vef fasteignamats ríkisins www.fmr.is er auglýsing um nýtt fasteignamat. Þar stendur "Fasteignamat er framreiknað árlega og á að endurspegla gangverð fasteigna í nóvember síðastliðnum".

Einnig kemur þar fram að matsverð íbúðahúsa í Reykjavík hefur hækkað um 12% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,12.  (Framsetningin á vefsíðu FMR er reyndar ansi ruglingsleg finnst mér).

Í pistlinum hjá mér er notuð talan 14% í stað 12% og er það vegna þess að ýmis gjöld sem tengjast fasteignagjöldunum hafa hækkað miklu meira. Sorphirðugjaldið í Reykjavík hefur þannig hækkað um yfir 30%.

Í Vefþjóðviljanum www.andriki.is er í pistlinum 8. janúar mjög góð samantekt á þessum gjöldum, og ennbetri á undirsíðunni "Sneið til stjórnvalda"  þar sem þetta er allt saman reiknað fyrir dæmigerða 90 fermetra íbúð.

Sum sveitarfélaög, mig minnir m.a. Garðabær og Seltjarnarnes, hafa lækkað álagningaprósentu fasteignagjalda til að minnka áhrif hækkunar húsnæðisverðs milli ára.

Mér finnst 14% hækkun fasteignagjalda ansi mikil, t.d. ef tekið er mið af verðbólgumarkmiði Seðlabankans sem er aðeins 2,5%.

Svo er það annað. Verð á fasteignum hefur rokið upp. Við höfum auðvitað ekki notið þess á neinn hátt, þar sem við eigum okkar húsnæði og ætlum ekki að selja það. Þetta er eins og með hlutabréfinn. Hugsanlegaur hagnaður myndast ekki fyrr en við sölu.

Ágúst H Bjarnason, 10.1.2008 kl. 23:51

8 Smámynd: Sturla Snorrason

Já ekki veitir af, það verða að vera til peningar fyrir öllum þessum jarðgöngum svo hægt sé að hreinsa til í 101 og byggja glerhallir, ekki er hægt að bæta 20,000 - 30,000 manns við núverandi umferðateppur. Ja ég segi bara svona ég veit að ríkið á að borga öll þessi jarðgöng . En vissir þú Ágúst það eiga að koma jarðgöng frá 101 og næstum inn í Garðabæ. 

Sturla Snorrason, 11.1.2008 kl. 00:10

9 Smámynd: Ólafur Als

... og svo hækkar verðbólgan, sem hefur áhrif á verð húsnæðis, sem áfram veldur hækkun fasteignagjalda á næsta ári - glæsilega að verki staðið hjá fulltrúum okkar í sveitarfélögunum - sannir mannvinir!

Ólafur Als, 11.1.2008 kl. 06:52

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Í blöðunum í dag má sjá eftirfarandi:

Í Hafnarfirði liggur fyrir tillaga bæjarstjóra um að lækka álagningastofna íbúðarhúsnæðis þannig:
Fasteignaskatur úr 0,27% í 0,24%, lóðaleiga úr 0,295% í 0,27% og vatnsgjald úr 0,119% í 0,115%.

Þetta er umtalsverð lækkun sem gerð er vegna þess að fasteignamatið hefur hækkað um 12%. Lækkunin er um 10%.

Í Grindavík liggur fyrir tillaga um 16-20% lækkun.

Í Reykjavík er haft eftir borgarstjóra að engar lækkanir eru fyrirhugaðar.

Ágúst H Bjarnason, 11.1.2008 kl. 08:07

11 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Fasteignagjöld af sumarhúsum og sumarhúsalóðum í uppsveitum hækka um 20% eftir því sem ég best fæ séð. Hef ekki komið auga á annað en að hækkun fasteignamats muni koma fram af fullum þunga. Fyrir ári var einnig veruleg hækkun, þannig að á fáeinum árum hefur hækkunin verið óheyrileg.

Ágúst H Bjarnason, 11.1.2008 kl. 08:11

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ragnar. Ég get ekki litið á það sem launahækkun hjá mér ef fasteignamatið á húsnæðinu mínu hækkar vegna þess að einhverjir aðrir en ég voru að kaupa eða selja húsnæði á síðasta ári. Ef ég sel til að kaupa annað húsnæði, þá hefur það hækkað jafn mikið og mitt, þannig að ég hef ekkert hagnast. Hagnaður kemur ekki fram fyrr en húsnæðið er selt endanlega og ekkert húsnæði keypt í staðinn. Þess vegna er þetta skattahækkun í raun.

Ágúst H Bjarnason, 11.1.2008 kl. 11:29

13 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Hafa verður í huga að annars vegar er um að ræða hækkun á því verði sem hægt er að fá fyrir fasteignirnar í sölu miðað við þær sölur á svipuðum eða eins fasteignum á tímabilinu og hins vegar er þá um að ræða að sú tala er síðan stofn skattlagningar hjá sveitarfélögum. Þú bendir síðan réttilega á Ágúst að sum sveitarfélög "leiðrétta" hækkað fasteignamat með lækkun fasteignagjaldaprósentunnar. Eitt vandamálið í þessu er það að hækkun fasteignagjaldanna hjá FMR er ekki birt fyrr en í lok árs en þá á allri fjármálavinnu sveitarfélaga næsta árs að vera lokið. T.d. fjárhagsáætlun og gjaldskrárvinnu (breytingum sem taka þá gildi um áramót).

Ragnar Bjarnason, 13.1.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband