Hellt í glas meðan flugvélin er á hvolfi!

Fjöllin eru íslensk, en hver er flugmaðurinn sem hellir úr flösku í glas meðan flugvélin er á hvolfi? Hann fer létt með það sem Bob Hoover var frægur fyrir.

 

 "Flying a Yak-18T in Iceland and rolling it while pouring a glas of soda"
 

 
Hér er svo Bob Hoover sjálfur sem stundaði það að fljúga listflug á tveggja hreyfla flugvél, en með dautt á báðum hreyflum W00t     

Í lok myndbandsins má sjá gamla manninn hella íste í glas meðan hann veltir vélinni í heilan hring og að vanda er hann búinn að drepa á báðum hreyflunum.  

 
 
 
 
Bob Hoover tribute:
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Veit ekki hver sá fyrri er, en ansvítisárans er hann flottur!!!

Hrönn Sigurðardóttir, 27.1.2008 kl. 22:20

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Flott.    

Er ekki Esjan í baksýn á fyrri myndinni? 

Marinó Már Marinósson, 27.1.2008 kl. 23:34

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Fyrra myndbandið er blöff, ekki satt?? Er þetta nokkuð hægt? Þetta virðist eins og að hella í glas heima í stofu.

Rúna Guðfinnsdóttir, 28.1.2008 kl. 00:04

4 Smámynd: Halldór Jónsson

þetta er gott hjá honum Er þetta rússavélin ? Hún er alveg kreisí þessi litla twinvél sem er þarna með. Eiginlega módel með manni innanborðs. Veistu eitthvað meira um þetta ?

Halldór Jónsson, 28.1.2008 kl. 00:10

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Á Youtube stendur með fyrri myndinni "Flying a Yak-18T in Iceland and rolling it while pouring a glas of soda". Meira veit ég ekki. Rakst á hana fyrir tilviljun.

Halldór, sástu ekki Bob Hoover fljúga svona í Oskosh?

Rúna, vatni er hellt í glas aftarlega í seinna myndbandinu. Þetta er virkilega hægt en ekki auðvelt, sérstaklega ef önnur hönd er á stýrinu.  

Ágúst H Bjarnason, 28.1.2008 kl. 06:22

6 identicon

sæll Gústi, ólíkt skenmmtilegra innlegg frá þér en spaugstofuinnleggið, annars eru þeir ekki í vandræðum með að hella í glösin í náð....sri....ráðhúsinu þó þar sé allt á hvolfi um þessar mundir og svo hlægja þeir sig eflaust máttlausa yfir einfeldni okkar og hefja sigurgönguna á að gefa einhverjum gæðingum milljarð fyrir ónýta hjalla á Laugaveginum.

Jón Þ Jónsson (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 07:38

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þegar menn kveikja elda allt í kringum sig eins og Ólafur hefur núna gert í borgarpólitíkinni, þá verða menn að taka þeim reyk sem því fylgir.

Marta B Helgadóttir, 28.1.2008 kl. 10:53

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það má kanski segja að ástandið í borgarmálunum sé eins og í flugvélinni, allt á hvolfi og uppíloft.  Æjá, maður á víst ekki að hafa þetta í flimtingum, en stundum veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta, og víst er maður hissa og hugsi yfir öllu bramboltinu undanfarna daga.  Sjálfsagt allt rétt sem fram kemur hjá hjá Jóni Þ og Mörtu. 

Ágúst H Bjarnason, 28.1.2008 kl. 11:26

9 identicon

Svona til upplýsinga þá er flugmaðurinn í fyrra myndbandinu Snorri Bjarnvin Jónsson flugmaður hjá Icelandair, einstaklega góður listflugsmaður.

Geiri (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 12:05

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæl Geiri.

Takk fyrir að upplýsa okkur um hver flugmaðurinn er.

Ágúst H Bjarnason, 28.1.2008 kl. 12:29

11 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta er flott og skemmtilegt.

Einn misskilningur er þó í gangi þegar sagt er að einhver leiki eftir heimsfrægt atriði Bob Hoovers. Mér vitanlega hefur enginn leikið það eftir í heild að fljúga drjúgstórri tveggja hreyfla flugvél yfir flugvelli, drepa á báðum hreyflunum, fara í lykkju og fljúga síðan með dauða hreyfla í lágt "low-pass" eftir flugbrautinni, hækka flugið og fara í umferðarhring og koma inn til lendingar, aka eftir brautinni og beygja inn á stæði, stöðva vélina og koma út og veifa hattinum, - og alltaf var dautt á hreyflunum.

Ég tók af þessu myndir á flughátíðinni "Sun´n fun" í Florida og átti viðtal við kallinn, sem þá var 77 ára og hafði verið "grándaður" af FAA með tilbúnu læknisvottorði en vann mál sitt gegn yfirvöldum. Ég spurði hann hvort hann óttaðist ekki að sú stund gæti komið að honum brygðist bogalistin, - margir hefðu áhyggjur af því að svo gæti gerst eftir því sem aldurinn færðist yfir hann.

Hann svaraði: "Don´t worry, I´ll be the first to know."

Hoover átti að verða fyrsti flugmaðurinn til að fljúga í gegnum hljóðmúrinn en framdi lítilvægt agabrot áður og flaug því í fylgdarflugvél með félaga sínum Chuck Yeager sem fékk heiðurinn.

Ég sýndi hluta af viðtalinu við Hoover í fréttum sjónvarpsins en á það allt og stefni að því að hafa það í flugþætti síðar ef aldur og heilsa leyfa.  

Ómar Ragnarsson, 28.1.2008 kl. 13:12

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir þitt skemmtileag innlegg Ómar.

Það er auðvitað alveg á hreinu að enginn hefur komist með tærnar þar sem gamli maðurinn hafði hælana. Ég ætla að setja inn annað myndskeið sem ég fann og kallast "Bob Hoover Tribute". Þar sést vel hvernig hann nýtir sér eðlisfræðina og breytir staðarorku í hreyfiorku, aftur í staðarorku, o.s.frv.

Það verður gaman að sjá viðtalið sem þú áttir við Hoover. 

Ágúst H Bjarnason, 28.1.2008 kl. 13:28

13 identicon

Og enn fleiri upplýsingar varðandi þetta fyrra myndband.

Þetta er tekið úr heimildamynd sem að Snorri (listflugmaðurinn) í samstarfi við aðra gerði á síðasta ári og var sýnd í Háskólabíoi fyrir áramót fyrir félagsmenn FÍA.  Var hún alveg stórskemmtileg, með viðtölum við gamla og nýja flugmenn, gömul og ný myndbrot voru notuð veit ég að hugmyndin var að reyna að koma þessu inn á einhvern ljósvakamiðilinn til sýninga og vonandi gengur það upp.

Geiri (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 13:28

14 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Flott video og Snorrasynir klikka ekki frekar en fyrri daginn þegar flug er annars vegar, enda ekki langt að sækja þessa hæfileika :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 28.1.2008 kl. 19:52

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flott, rosa flott.  Takk fyrir.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 20:21

16 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Gaman og fróðlegt.   Ég er búin að prófa þetta í Simmanum mínum.  Ferlega erfitt nema vera á svaka hraða.  Þessi vél er ótrúlega flott.    Gaman af innleggi Ómars.   Enda eins og hann segir.  Flugmenn gera bara ein mistök.  

Meira af þessu.   

Marinó Már Marinósson, 28.1.2008 kl. 23:01

17 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ertu með vatnskönnu og glas í simmanum Marinó?

Galdurinn við að geta hellt vatni í glas meðan vélin er á hvolfi í veltunni er að passa upp á að þyngdarkrafturinn (g) verði aldrei neikvæður þannig að flugmaðurinn hangi í ólunum. Veltan þarf þá væntanlega að vera "barrel roll" frekar en "axial roll".  Í "barrel roll" flýgur vélin nánast eftir ferli sem líkist tappatogara og er því sífellt að breyta stefnunni þannig að miðflóttakrafturinn sér til þess að skapa gervi þyngdarkraft.   

Ágúst H Bjarnason, 29.1.2008 kl. 08:49

18 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Nei nei    Engin simmi sem bíður uppá svoleiðis þó ég sé með hristigræju í stólnum.    Enda er ég eins og Ford forseti, get ekki gengið í takt ef ég þarf að tyggja tyggjóið um leið.          

Nei, nei,   ég prófaði að slökkva á hreyflunum og framkvæma svifflugið. Allt hægt í simmanum.  AIM HIGH NEVER FLY

Marinó Már Marinósson, 29.1.2008 kl. 15:38

19 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

gaman að sjá ...interesting

Guðríður Pétursdóttir, 31.1.2008 kl. 03:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband