Dihydrogen mónoxíð eða tvívetnisoxíð í íslenskri náttúru

ÞingvallavatnHefur þú lesandi góður fundið lyktina sem stafar frá gufuaflsvirkjuninni á Hellisheiði? Lyktin stafar að dihydrogen sulfide eða brennisteinstvívetni, H2S. Í litlu magni gefur það frá sér frekar óþægilega lykt, en er banvænt í miklu magni. Húsmæður í Reykjavík hafa kvartað yfir því að það geri muni úr silfri ljóta og jafnvel svarta. Orkuveita Reykjavíkur mun bráðlega hefja tilraunir til að takmarka þessa mengun.

Fáir hafa leitt hugann að því hvort ástæða sé til þess að takmarka aðgengi að dihydreogen mónoxíði eða tvívetnisoxíði, sem oft er skammatafað DHMO. Vitað er að það getur valdið dauða innan tveggja mínútna sé því andað að sér, og skipta þeir Íslendingar líklega þúsundum sem þannig hefur farið fyrir frá því er land byggðist.  Hætt er við tímabundinni vitfirringu sé þess neytt blönduðu etanóli. Það er einnig ljóst að margir eru orðnir það háðir dihydrogen mónoxíði að þeir verða gjörsamlega viðþolslausir hafi þeir ekki fengið það í nokkurn tíma.  Fráhvarfseinkennin eru mjög sterk og líkjast einna helst miklum þorsta. Pistlahöfundur getur staðfest af eigin reynslu að svo er. Ekki þarf nema eitt glas af tvívetnisoxíði til að slá á fráhvarfseinkennin, og er þá ekki verra að efnið sé blandað koltvisýrlingi.

Dihydreogen mónoxíð er víða í íslenskri náttúru. Vitað er að kvikasilfrið sem mælst hefur í Þingvallavatni er  blandað þessu efni, en þar finnst Dihydreogen mónoxíð einmitt í stórum stíl. Í sundlaugum landsins er það blandað klór.  Efnið berst reglulega til landsins, oft með hjálp skotvindsins í háloftunum (jet stream).  Stundum er það í svo miklu magni að hægt er að finna það sem hvítleitt duft, sérstaklega á hálendinu.

Það er einnig vitað að efni þetta veldur um 90% gróðurhúsaáhrifanna í lofthjúp jarðar, og er því lang öflugasta gróðurhúsalofttegundin, mun árifameira en kolsýran CO2. Þetta er þó ekki á allra vitorði.

Efnið hefur valdið miklu rofi í íslenskri náttúru, það miklu að hugsanlega er ástæða til þess að láta náttúruna njóta vafans og reyna að uppræta það alfarið. Það kann þó að reynast mjög erfitt og hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Einnig er vitað er að það finnst í miklu magni í mýrlendi, en á árum áður voru bændur einmitt mjög duglegir við að útrýma tvívetnisoxíði þar, þannig að í dag eru þar iðagræn tún. Sumir telja þó að þessar aðgerða bænda orki tvímælis með tilliti til hlýnunar lofthjúpsins.

Er ekki kominn tími til að hugleiða næstu skref? Hvað segja náttúruverndarsinnar? Bloggarinn telur dmrdlogo_1227375.gifsig meðal hófsamra náttúruverndarsinna og er hóflega bjartsýnn á að lausn finnist á málinu.

Í Bandaríkjunum starfa samtökin      
National Consumer Coalition Against DHMO  sem hafa það á sefnuskrá sinni að rannsaka áhrif Dihydrogen Mónoxíðs, sérstaklega hin neikvæðu. Lesa má um DHMO hér: www.dhmo.org  og  www.dhmo.org/NCCA.html.

Ekki er vitað hvort Landvernd eða Neytendasamtökin séu aðilar að DHMO.

 

Hér fyrir neðan eru tvö myndbönd. Fyrra myndbandið er tæknileg lýsing á eiginleikum dihydrogen mónoxíðs (beðist er afsökunar á ítrekuðum myndtruflunum), en  seinna myndbandið sýnir átak erlendis þar sem  dihydreogen mónoxíð eða tvívetnisoxíð er kynnt fyrir almenningi og undirskriftum gegn notkun þess safnað. Er ekki kominn tími til að gera eitthvað í málinu hér á landi?   Ég bara spyr.   Við megum engan tíma missa.

Dihydrogen sulfide H2S, carbon dioxide CO2 og  dihydreogen mónoxíð H2O hafa mjög keimlíka efnaformúlu. Það er því varla tilviljun að fjallað hefur verið um þau hér í pistlinum. Tvö síðastnefndu efnin eru þekktar gróðurhúsalofttegundir, CO2 er þekktast, en H2O veldur þó langmestum gróðurhúsaáhrifum, eins og áður hefur komið fram. Latneska nafnið á dihydrogen mónoxíð er aqua.               

Öll þessi efni finnast í ríkum mæli í gufuholum jarðvarmavirkjana. 

 

Hvert er álit þitt lesandi góður? Hefur þú ekki áhyggjur af tvívetnisoxíði í íslenskri náttúru?

 

 
 Dihydrogen Mónoxið
 
 
 
 
 
Undirskriftasöfnun í gangi í Bandaríkjunum
 
 
 
 
 
Að lokum: Er ekki kominn tími til að svala fráhvarfseinkennunum og fá sér glas af ísköldu dihydreogen mónoxíði?   Það þarf þó að gæta þess að það sé ómengað.
 
Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Við sjáum á seinna myndabandinu hvernig fólk bregst við þegar það er spurt hvort það vilji banna H2O sem er auðvitað bara venjulegt vatn. Flestir létu blekkjast og skrifuðnu nafn sitt á listann. Getur verið að fólk sé yfirhöfuð hrætt við að hafa sjálfstæða skoðun og trúi hverju sem er?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég hef aldrei fundið lykt á minni æfi.... jamm..ég er meingölluð.. Ég er stundum fegin þegar aðrir eru að kafna úr skítalykt, þá finn ég ekkert og bara hvái við??

Ég held að áhyggjur vegna hlýnandi loftlags og breytingar þess efnis séu stórlega ýktar.

Rúna Guðfinnsdóttir, 18.4.2008 kl. 14:55

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Má ég hvísla því að þér Rúna að þessi pistill er hálfgert grín.

Ágúst H Bjarnason, 18.4.2008 kl. 14:59

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hahaha, skemmtilegur pistill. stórvarasamt þetta tvívetnisoxíð. skál

Brjánn Guðjónsson, 18.4.2008 kl. 16:56

4 Smámynd: Eyvindur karpi

Mér er svo sem sama um þessa skítalykt.  Ég skil þó ekki hvers vegna húsmæður í Vesturbænum kvarta ekki meira.  Það  fellur líka á silfrið.  það sem pirrar mig mest við þessar gufuaflsvirkjanir er öll helvítis röraflækjan.  Hvers vegna er ekki hægt að grafa þetta í jörð ?

Eyvindur karpi, 18.4.2008 kl. 18:57

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sprenhlægilegt  Undirskriftarlistar eru notaðir í mörgum mótmælum. Ég held að það sé alltaf slatti af fólki sem skrifar hugsunarlaust undir hvað sem er. Ef það er verið að mótmæla einhverju, þá hlýtur það að vera göfugt!!

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.4.2008 kl. 19:39

6 Smámynd: Eyvindur karpi

Ég tjái mig ekki um  umfjöllunina  um skaðsemi vatnsins.  Ég veit ekki hversu fyndin hún er.

Eyvindur karpi, 18.4.2008 kl. 19:49

7 Smámynd: Elinóra Inga Sigurðardóttir

GÓÐUR!

Elinóra Inga Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 22:51

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég mótmæli harðlega þessu mónoxíðaglundri eða hvað það nú heitir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.4.2008 kl. 23:20

9 identicon

Sæll Ágúst. Gamansamur ertu núna, Flestir munu vita hvað H2O er, nefnilega vatn, en þegar efnafræðiheitið er skrifað með bókstöfum, hvort sem er á ensku eða íslensku þá vandast nú málið ekki síst vegna þess að nafnið er keimlíkt nöfnum ýmissa efnasambanda sem hafa lengi verið í umræðunni og fólk veit að eru eitruð eða jafnvel banvæn. Ég hygg að það sé mjög auðvelt að blekkja margt venjulegt fólk með svona orðskrúði. Fæstir hugsa á þessum nótum og svona hávísindaleg umræða kemur flatt upp á þá. Smá hugleiðing um undirskriftasafnanir. Óttinn við að opinbera fávisku sína og þekkingarleysi er oft sterkur. það kemur til þín maður með langan nafnalista og heldur innblásna ræðu yfir þér um málefnið og endar á því að höfða til ábyrgðar þinnar og spyr hvort þú viljir ekki bætast í hópinn. Hver eru svo viðbrögðin?. Allflestir skrifa undir án þess að kynna sér málið nánar, vilja ekki skera sig úr hópnum. Þetta á við hvort sem verið er að mótmæla eða lýsa yfir stuðningi við eitthvert málefni. Niðurstaða; augljós dæmi um hjarðeðli mannkyns. Af þessu tilefni rifjast upp fyrir mér að fyrir mörgum árum gerði maður nokkur- sálfræðingur að mig minnir- könnun á því hvað væri hægt að fá fólk til þess að skrifa undir. Hann samdi flókinn teksta sem fól í sér að sá, sem skrifaði undir skjalið samþykkti sinn eiginn dauðadóm. Næstum því allir, sem hann talaði við skrifuðu undir athugasemdalaust. Ergo; Ótti við að spyrja eða gagnrýna, ósviknar hópsálir. Ég held að þetta hafi verið í Frakklandi, er þó ekki alveg viss.

Kv, Þorvaldur Ágústsson.

Þorvaldur Ágústsson (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 00:56

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þú ruglar mig... ertu að tala um brennisteinsvetni?

Lára Hanna Einarsdóttir, 19.4.2008 kl. 03:10

11 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þorvaldur. Það er ekki hægt að orða þetta betur en þú gerir. Oft kemur manni til hugar að fólk hefur ekki hugmynd um hverju það er að mótmæla og skrifar undir eins og flestir aðrir. Þorir ekki að vera öðruvísi. Ég er hræddur um að þetta eigi ekki síður við um stjórnmálamenn en almenna borgara, og því miður líka fjölmarga vísindamenn.

Ágúst H Bjarnason, 19.4.2008 kl. 07:03

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sigurður, þú veist vel hvaða glundur þetta er. Það fellur oft fyrirvaralaust af himnum ofan.

Lára Hanna, ef við blöndum saman brennisteisnsvetni og þessu alræmda dihydrogen mónoxíði þá fáum við brennisteinssýrling H2SO3.      Nú er það bara spurning hvað þetta heitir á mannamáli.

Ágúst H Bjarnason, 19.4.2008 kl. 07:11

13 identicon

Sannleikurinn er það sem sagt er í sjónvarpi og (að minna leyti) í öðrum fjölmiðlum. 

Fólk kann ekki að hugsa lengur, það treystir sér ekki til þess, sérfræðingar (oftast keyptir) ráða skoðunum og ákvörðunum fólks.

Með vorinu nú í vikunni kom mengunarslæðan frá evrópu (kína?).  Ekki er það Co2, heldur súpa af einhverju öðru.  Við ættum að berjast gegn þessari súpu mengunar, en ekki Co2, en Kindlingarnir (sheeple) elta Gore og aðra falsspámenn, sem ráða dagskrá sjónvarpsins, svo einfalt er það.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 10:09

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG trúi þér og pabba mínum langbest í þessum loftslagsmálum og svo auðvitað eigin viti, en þetta er skemmtilegur pistill kæri Ágúst.  Kveðja til þín  3D Prom Queen  3D Prom Queen

Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 14:37

15 Smámynd: Einar Þór Strand

Bara svona til að minna á það þá hafa Írar og Skotar alltaf  verið á því að vatn sé hættulegt það er að segja ef ekki er búið að koma því að formið sem nefnist visky.  Til dæmis deyr fjöldi manna á ári hverju í vatni.

Einar Þór Strand, 19.4.2008 kl. 15:08

16 identicon

Thad var einu sinni gerd rannsokn thar sem venjulegt folk var fengid til ad maeta upp i haskola og thvi var sagt ad verid vaeri ad rannsaka minni og virkni thess.

thad taladi vid mann hinum megin vid gler, i hvert skipti sem hann svaradi spurningu rangt atti thessi gaur uti bae ad lata hann fa rafsjokk i gegnum taeki sem var vid hondina a honum.

thvi oftar sem vidtalandinn svaradi rangt thvi meira var honum sagt ad auka rafsjokkid.

a akvednum punkti hrundi vidmaelandinn i golfid vid rafsjokkid, og var honum tha sagt ad thogn se rangt svar, hann eigi ad halda afram ad auka styrkinn.

65% drapu vidkomandi adila smatt og smatt... bara thvi theim var sagt ad gera thad.

thad er buid ad endurtaka thessa rannsokn margoft.

http://en.wikipedia.org/wiki/Milgram_experiment

Hermann Ingjaldsson (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 07:27

17 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Sko...ég þorði þó að segja að ég teldi áhyggjur hlýnandi loftlags vera ýktar...þrátt fyrir jumtali sl. ára  spherical head laughing animated gif

Rúna Guðfinnsdóttir, 22.4.2008 kl. 08:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 762149

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband