Óhugnanleg vélpadda er næstum óstöðvanlegt skrímsli

BigDogFyrirtækið Boston Dynamics hefur hannað vélknúinn hund sem að mörgu leyti minnir á risavaxið skordýr. Vélhundurinn sem kallast BigDog er með bensínmótor í hausnum sem suðar eins og randafluga. Hann getur gengið, hlaupið hoppað og skoppað yfir óslétt landslag. Hann er nánast óstöðvandi Crying

Fjölmargir skynjarar, öflug tölva og gervigreind gerir það að verkum að engu er líkara en þarna sé lifandi skyni gædd vera á ferð Alien

BigDog getur borið 150 kg á bakinu, en vegur sjálfur 75 kg. Manni kemur helst til hugar skrímsli frá öðrum hnöttum  þegar horft er á myndbandið.  Hugsið ykkur ef einhverjum kæmi til hugar að útbúa svona kvikindi með vélbyssu. Er þetta bara byrjunin?  Ekki er laust við að maður fái gæsahúð W00t

 

Boston Dynamics var stofnað árið 1992 og er afsprengi frá MIT.  

Sjá Scientific American:  Brawn or Brains? Researchers Push the Limits of Legged Robots

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það má ekki einblína á hávaðann. Nú eru til öflugir rafmótorar sem ásamt Lithium rafhlöðum gefa bensínmótorum lítið eftir. Sjá til dæmis þessa alvöru flugvél sem knúin er rafmótor.

 

Ágúst H Bjarnason, 29.4.2008 kl. 11:04

2 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Þetta er ótrúlegasta tæki sem ég hef séð! Það verður ekki langt í að maður eigi kost á svona gæludýri í smækkaðri mynd.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 29.4.2008 kl. 17:55

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sigugeir Orri. Hvað finnst þér um þennan litla voffa?  Videó hér.

Ágúst H Bjarnason, 29.4.2008 kl. 18:39

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Mér finnst þetta nú hálf skondið fyrirbæri, verð að segja það. Hann væri ekki kominn langt þegar hann væri sprengdur í tætlur af óvinum. Er þetta eitthvað blöff hjá þér núna? Segi eins og Laissez, hávaðinn er gígantískur í kvikindinu!

Rúna Guðfinnsdóttir, 29.4.2008 kl. 22:29

5 Smámynd: Sigurður Árnason

Þetta er svakalegt, hljóðið í því fer svakalega illa í mig, Mér finnst þetta líta frekar óhugnanlega út:)

Sigurður Árnason, 29.4.2008 kl. 22:59

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fimur er hann og jafnvægið gott.  Léttar fjaðurmagnaðar hreyfingar, er það ekki nýjung hjá vélmennum.  Ég hef a.m.k. aldrei séð það áður, en ég er nú heldur ekki, mjög fróð, um vélmenni almennt. -  En fæturnir minntu mig á gerfifæturna frá Össuri, sem hann fékk, ekki, að keppa á, í hlaupi, maðurinn, sem ég man ekki hvað heitir.  Magnaðir fætur. Búkurinn var eins og á flugu, minnti mig á járnsmið.  Í alvöru Ágúst í hvað á að nota þetta vélmenni?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 30.4.2008 kl. 01:28

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hávaðinn er bara til óþurftar enda er notaður bensínmótor í þessa frumsmíði.

Lilja hittir naglann á höfuði þegar hún minnist á léttar fjaðurmagnaðar hreyfingar. Það er einmitt það sem er nýtt hér. Hver fótur er nánast sjálfstæður með  fjórum liðamótum og sjálfstæða "skynsemi".  Greinin hér í Scientific American er fróðleg. Þar segir meðal annars:

"A robot's surroundings can prevent it from doing exactly what it is told to do. When a computer uses artificial intelligence to play chess, there is no uncertainty about where the pieces are and where they can be placed. That is not true in a real-world environment, which has endless possibilities that no amount of programming can ever anticipate. To get around this problem, BigDog does not use cameras or laser sensors to determine its location. Instead, it steps first and then reacts to the terrain. This means it must very quickly determine its position at any given time, compare that with its desired position, and immediately take corrective action based on the difference between these two. "BigDog is reacting at 1,000 times per second as it tries to keep its center of gravity," Mandelbaum says. "It only finds out about terrain after the fact.""

Þessi robot er hugsaður sem burðardýr í hernaði, en hugbúnaðurinn og þekkingin nýtist örugglega vel fyrir þróun á annars konar þjörkum. 

Ágúst H Bjarnason, 30.4.2008 kl. 05:54

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það er gaman að sjá hvernig tækið bregst við mismunandi ytri aðstæðum. Í brekku, snjó, fljúgandi hálku, urð og grjóti, og jafnvel þegar sparkað er í það nær það að halda jafnvægi. Maður gæti ímyndað sér að svona þjarkur nýttist vel við rannsóknir á t.d. Tunglinu og Mars.

Ágúst H Bjarnason, 30.4.2008 kl. 06:27

9 identicon

Ef þér finnst voffinn svalur, tékkaðu þá á þessum:

  . . . #http://www.youtube.com/watch?v=9Q0ubRMw8L8&feature=related# . . .

# og . . . ef blogginu er illa við linka 

Magnús (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 07:44

10 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það er jú, eins og dýrið hafi skynsemi. Maður sér hvernig það passar sig á misfellum, stundum hálf hrasar og þreifar sig áfram. Ótrúlegt.

Bestu kveðjur í dag!

Rúna Guðfinnsdóttir, 30.4.2008 kl. 12:57

11 identicon

þetta er gífuleg þróu,n maður getur rétt ýmundað sér hvað er hægt að nota þetta í.

í ekki vær slæmt að vera með svona fyrir jörgunarsveitir í staðin fyrir sjúkrabörur þegar það þarf að fara um fjöll.

hvað getur þetta vélmeni borið mikkið þunga vitið þið það? 

Þórarinn Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 13:35

12 identicon

vá okey las ekki texstan sé það núnna "BigDog getur borið 150 kg" :)

Þórarinn Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 13:39

13 Smámynd: Stefán Örn Viðarsson

Ég sé nú bara ein alveg gríðarlega gagnleg not fyrir svona tæki ... Í STAÐIN FYRIR HJÓLASTÓLA!!
Fatlaðir einstaklingar myndu gera allt til að ná í svona tæki.. þeir kæmust upp stiga hjálparlaust, jafnvel upp fjöll!

Eini gallinn er hávaðinn en það hlýtur nú bara að vera formsatriði að græja öðruvísi orkugjafa en olíu á kvikindið!

Stefán Örn Viðarsson, 2.5.2008 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband