Brettum upp ermar með bros á vör. Komum þjóðarskútunni á flot með samstilltu átaki :-)

_43025361_wide_shot.jpgAllir verða að bretta upp ermarnar nú þegar efnahagsumrótið skekur heimsbyggðina og þjóðarskútan er komin yfir brimrótið og upp í fjöru. Situr þar sem fastast.

Með bjartsýnina að vopni og bros á vör munum við sigrast á öllum erfiðleikum.  Hugsum eins og stelpurnar okkar í Kvennalandsliðinu í knattspyrnu þegar þær svifu brosandi yfir ísilagðan Laugardagsvöll, ákveðnar í að sigra Íra.   Þær fóru létt með það. Þá var gaman að vera Íslendingur.  Eins munum við sigrast á öllum okkar vandamálum. Það mun ganga mun betur ef við erum bjartsýn.

Það þarf þó snör handtök. Engan tíma má missa. Skútan er fljót að grafast niður í sandinn og þá verður allt erfiðara.  Allir sem vettlingi geta valdið verða að mæta til leiks og taka þátt í björgunaraðgerðunum. Mikilvægt er að allir séu samstíga og virki hugmyndaflugið til að finna ráð. Hugi að öllu, bæði stóru og smáu. Það gerðu menn þegar Baldvini Þorsteinssyni var bjargað af strandstað árið 2004 eins og allir muna. Þá sýndu menn útsjónarsemi, dugnað og þor. Fyrst og fremst voru menn allan tímann bjartsýnir.

Eitt af vandamálunum er að olían hefur lekið af þjóðarskútunni og hún er því vélarvana. Án vélarafls kemst hún ekki á flot. Í þjóðfélagið vantar fjármagn til að koma lífi í atvinnugreinarnar og það strax. Fyrirtæki eru að gefast upp. Fólk er farið að missa vinnuna. Atgervisflóttinn er byrjaður. Vandamálið versnar dag frá degi ef við gerum ekkert. Snúum því vörn í sókn. Látum ekki skútuna grafast í sandinn.

Hvar fáum við nægilega olíu til að sigla þjóðarskútunni frá strandstað til að koma henni í viðgerð? Hvar fáum við það afl sem þarf til að sigla henni á brott og á ný og betri mið? Hvernig getum við tryggt áhöfninni vinnu næstu mánuði meðan það versta gengur yfir og skútan er í slipp þar sem verið er að lagfæra dældirnar og aðrar skemmdir?

Við þurfum fyrst og fremst að finna leið til að bjarga okkur næstu mánuði og ár. Koma eins og kostur er í  í veg fyrir atvinnuleysi og atgervisflótta, því fátt er eins hættulegt þjóðinni og það að missa stóran hluta þjóðarinnar úr landi.

Hvað sem mönnum kann að finnast um stóriðjur, þá yrði álverið í Helguvík, ef að framkvæmdum verður á næstu mánuðum, sá olíudropi sem við þurfum á vél þjóðarskútunnar til að ná henni frá strandstaðnum. Það getur skipt sköpum ef hægt er að finna vinnu fyrir 3000 manns við þessar framkvæmdir á næstu mánuðum.  Auðvitað munu enn fleiri njóta þess óbeint þegar peningarnir fara að streyma um æðar efnahagskerfisins. Þannig fáum við vonandi nauðsynlegt fjármagn til að virkja frumkvöðla til nýsköpunar, fjármagn til að styðja við menntakerfið, heilbrigðiskerfið, menningu og listir. Ekki veitir af.

Auðvitað megum við ekki treysta á að einhvejar stórframkvæmdir komi til með að bjarga okkur. Þær gætu vissulega hjálpað svo um munar. Krafturinn er fólginn í okkur sjálfum fyrst og fremst. Þess vegna verðum við öll að hefjast handa. Hver á sínu sviði. Uppbygging Nýja Íslands er hafin!

 

Brettum upp ermar með bros á vör. Losum þjóðarskútuna af strandstað! Nóg er til af vinnufúsum höndum. Aðalatriðið er að hefjast handa, jafnvel þó hægt gangi í fyrstu. Framhaldið kemur síðan af sjálfu sér...                       

                                                                                                                   

 

optimism.jpg

 

Nú er líklega komið yfrið nóg af kreppubloggi og kominn tími til að fjalla um áhugaverðari mál ...   Eitthvað uppbyggilegra ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þú hefur nú alltaf talað uppbyggilega um kreppuna og ekkert að því.   Maður fyllist bjartsýni að lesa hvatningarorð, skal ég segja þér.   

Svo er Skógræktin með góða hugmynd sem gæti skapað störf fyrir 3000 manns.    

Marinó Már Marinósson, 27.11.2008 kl. 08:26

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Marinó. Sem gömlum skógræktarmanni líst mér vel á hugmyndir skógræktarmanna. Þeir hafa alltaf verið fullir bjartsýni og sýnt hvað hægt er að gera á Íslandi. Lengi vel var þeim ekki trúað. Nú efast enginn...

Ágúst H Bjarnason, 27.11.2008 kl. 08:30

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Heyr heyr !

Leggjumst á árarnar og trúum á mátt okkar og megin. Berjum úr okkur ótta, kvíða og reiði. Hver þekkir ekki hjá sjkálfum sér hversu mikið léttar er að koma einhverju í verk með bjartsýni og brosi, en áhyggjum og kvíða.

Við eigum líka séríslenskt háspil í stokknum sem er "þetta reddast"....spilum því núna !

Haraldur Baldursson, 27.11.2008 kl. 10:00

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þakka þér fyrir þetta, kæri Ágúst! Gott kemur úr þínum ranni.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.11.2008 kl. 10:11

5 Smámynd: Davíð Löve.

Gaman væri að vita hvernig fólk í atvinnuleysi, stórskuldugt uppfyrir haus, á að smæla framan í heiminn. Jólin að nálgast og allar þær áhyggjur með. Bretta uppá ermar? Hvað svo? Éta þær? Við lifum í núinu gott fólk. Fólk þarf aurinn núna. Gott að vita að þið hafið þó vinnu ennþá.

Davíð Löve., 27.11.2008 kl. 12:05

6 Smámynd: Kristinn Sigurjónsson

Ég held að við eigum bjarta framtíð,  en aflúsun fjármálakerfisins er vissulega erfið, það er lækningin yfirleitt.

Ég vil benda á framtíðarpunkta, þótt þeir eru ekki í allra næstu dögum  http://kristinnsig.blog.is/blog/kristinnsig/#entry-727095

Kristinn Sigurjónsson, 27.11.2008 kl. 14:30

7 identicon

Typistkt hvernig þetta gamla lið eys úr sér gömlum klisjum um bjartsýni, standa saman og hvað þetta heitir, þegar það áttar sig á að ráðslag þess hefur leitt til þess að unga fólkið er að yfirgefa þetta ömurlega sker og það sem það býður upp á. Unga fólkið sér í gegn um þetta, það er bara verið að reyna að blekkja það til að vera áfram í verðtryggingarhelsi lífeyrissjóðanna - og gamlingjanna - til að láta þau lifa í lúxus í ellinni. Nei, nú fara allir, sem það geta, til annarra og betri landa, þar sem er alvöru réttarfar og alvöru lýðræði. Bless.

Boris (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 15:25

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Við höfum áður séð það svart á Íslandi. Það var hreint ekki auðvelt að greiða af lánunum um 1983. Þá fylgdu óverðtryggðir vextir verðbólgunni og erfitt var að standa í skilum. Margir töpuðu miklu þá. Þetta var vissulega erfitt, en leið hjá. 

 Á Vísindavefnum stendur:

Spurning:

Hver var verðbólgan árið 1983?

Svar:

Árið 1983 voru ýmis Íslandsmet í verðbólgu slegin og höfðu Íslendingar þó ýmsu vanist í verðlagsmálum áður. Ef við miðum við vísitölu neysluverðs, sem þá hét vísitala framfærslukostnaðar, varð verðbólgan mest frá febrúar til mars það ár en vísitalan hækkaði um 10,3% milli þessara tveggja mánaða. Það samsvarar 225% verðbólgu á ári.

Verðbólgan fór alvarlega úr böndunum síðari hluta ársins 1982. Í september það ár hækkaði vísitalan um 8,4%. Verðbólgan róaðist ekki fyrr en ári síðar.

Í september 1983 hækkaði vísitalan um 0,5% á milli mánaða og var það í fyrsta sinn í rúm tvö ár sem hún hækkaði um minna en 1% á milli mánaða. Næstu tólf mánuði á undan, það er frá ágúst 1982 til ágúst 1983, hækkaði vísitalan um 103%, en það þýðir að verðlag ríflega tvöfaldaðist á tólf mánuðum. Það þýðir þá auðvitað líka að sá sem átti peningaseðil í ágúst 1982 gat keypt helmingi minna fyrir hann í ágúst 1983.

Verðbólgan allt árið 1983, það er frá janúar 1983 til janúar 1984, mældist rúm 70%

--- --- ---

Auðvitað verða næstu mánuðir mjög erfiðir. Það vita allir. Þess vegna er full ástæða til þess að gera allt sem í okkar valdi stendur til að milda áhrifin eins og hægt er.  Með þrautseigju getum við það.

Ágúst H Bjarnason, 27.11.2008 kl. 17:05

9 identicon

Jájá. Látum eins og ekkert sé og smælum framan í heiminn. Eða þannig!

Jákvæðni getur svo sem verið af hinu góða og ég vil svosem ekkert vera að hallamæla henni.

En satt best að segja eins og ástandið er í þjóðfélaginu og hafandi í huga aðgerðar- og ábyrgðarleysi stjórnvalda og opinberra aðila þá finnst mér ekki ástæða til að með einhverja jákvæðni því miður.

En vonandi að þú getir verið glaður og bjartsýnn þó svo að flestir aðrir hafi ekki ástæðu til.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 17:12

10 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Ég er sammála því að álver í Helguvík er nærtækur og skynsamlegur kostur. Þess vegna finnst mér alveg með ólíkindum að horfa upp á Samfylkinguna í ríkisstjórn nota hvert tækifæri til að þvælast fyrir í þessu máli.

Allir sem komið hafa í Helguvík sjá að þarna er engin ómetanleg náttúrperla sem þarf að varðveita.

Finnur Hrafn Jónsson, 27.11.2008 kl. 20:24

11 Smámynd: Anna

Saell, tetta eru erfdir timar.

Anna , 28.11.2008 kl. 12:55

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Satt er það, við eigum erfiða tíma í vændum.   Milkilvægt að allir leggist á árarnar næstu mánuði... Ekki gefast upp .

Ágúst H Bjarnason, 28.11.2008 kl. 15:18

13 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Mér dettur ekki til hugar að gefast upp.  Eins og einhver sagði svo snilldarlega hér áður:"Það fer allt einhvernveginn, þó það fari illa"  

Rúna Guðfinnsdóttir, 29.11.2008 kl. 18:00

14 identicon

Þjóðarskútan skerjum hjá,skríður furðanlega.

Höfðingjarnir henni á,hallast allavega.

Margret S (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 20:32

15 Smámynd: Ingibjörg SoS

Athyglisvert að lesa skrif ykkar allra. Svo ég tali fyrst til þín,

Dabbi. Ekki dettur mér eitt augnablik í hug að efast um kvalirnar sem stór hópur er að ganga í gegnum, - hefur jafnvel endað líf sitt. Sjálf er ég í hremmingum vegna ástandsins. Fjöldasamstaða er lífsnauðsynleg núna. Og þó að þú, ég og fleiri eigum erfitt með að vera jákvæð, þá er það þó ekki það sem við eigum að ráðast gegn. Jákvæðni leiðir af sér von, og von leiðir til úrræða, sem síðan leiðir til lausna. Skil samt reiði þína. finnst hún réttlætanleg. Og, "já" við þurfum aurinn núna. - Mjög mjög stór hópur.

Boris. Það er eins og þú sért að tala við Ríkisstjórnina. Einnig eins og þú sért með fordóma í garð eldri kynslóðarinnar. - Að þú setjir samasemmerki milli Ríkisstjórnarinnar og heillar kynslóðar. Í Guðanna bænum, Boris, Hefurðu engar hugmyndir um harðneskjuna sem margt eldra fólk má þola. Heldurðu í alvöru að stór hluti eldra fólks lifi í lystisemdum. Athugaðu einnig; Ungt fólk hefur einnig kosið þessa Ríkisstjórn yfir "okkur öll". Eins og það er margt sem nauðsynlegt er að fá að læra af unga fólkinu, þá er jafn nauðsynlegt að ungir læri af þeim eldri. Og þú skalt bara ekkert fara að flýja land. Vertu bara hér til að taka þátt í björgunaraðgerðunum fyrir komandi kynslóðir. Fyrir "þína" afkomendur, Boris. Við megum bara alls ekkert við því að missa þig.

Eggert. Hvers vegna hef ég það sterkt á tilfinningunni að orðið jákvæðni sé misskilið. Jákvæðni hefur ekkert með það að gera að setja upp eitthvert tilgerðar bros eins og ekkert alvarlegt hafi gerst. Maður getur verið jákvæður þótt maður sé öskrandi inní sér af reiði. Jákvæðni er gott "hjálpartæki" til að fá í sig örvun. - Til að geta komið "skútunni" á flot á ný. Og maður þarf ekkert að vera syngjandi glaður við þá aðgerð.

Takk annars fyrir dýrmæt innlegg ykkar allra. Hér eru allir í rauninni sammála. 

Allir krefjast þess að ástandið lagist..

Og þið, Dabbi, Boris og Eggert. ég væri ekki að eyða í ykkur orðum ef mér þætti ekki til ykkar koma. "ÞIÐ SKIPTIÐ MÁLI"

Ingibjörg SoS, 4.12.2008 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 761786

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband