Halastjarna á himni skín. Myndir.

 

McNaught-600w

 

 

Myndin af halastjörnunni McNaught var tekin ađ morgni 9. janúar kl. 9:55. Skilyrđi til myndatöku voru mjög góđ og varla ský á himni. Myndavél var Canon 300D og linsa Tamron 300mm zoom. Lýsingartími 1,3 sek.  Ljósop F/11.  ISO 200. Brennivídd  119mm (35mm jafngildi 190mm).

 

Fróđleikur um halastjörnuna er hér: C/2006P1 McNaught 

Myndasafn á www.spaceweather.com

Ţegar McNaught er horfin í glýju sólar, ţá má hugsanlega sjá hana í skamma stund nánast í beinni útsendingu hér á mynd frá SOHO gervihnettinum, en ţar má stundum sjá halastjörnur ţjóta um: http://sohowww.nascom.nasa.gov/data/realtime/c3/512/

Íslensk vefsíđa um stjörnuskođun: http://stjornuskodun.is

 --- --- ---

 

Hale-Bopp 1997

haleBopp-andromeda-aurora-crop-saturation-600

 

Halastjarnan er Hale-Bopp, sem sást vel yfir Íslandi í byrjun árs 1997. Norđurljós náđu nćstum ađ skemma myndina, en gera hana ţó skemmtilegri. Takiđ eftir bláa halanum sem var ósýnilegur međ berum augum. Neđst til hćgri má sjá Andromeda stjörnuţokuna. Ţar eru milljarđar sóla og örugglega mikiđ líf og fjör. Á ţessari mynd má einnig sjá aragrúa stjarna, sem eru ósýnilegar međ berum augum. Filma var Kodak PPF Pro 400 ASA. Linsa 135mm, Ljósop 3,5. Lýsingartími um 2 mínúur.  Stjörnuhimninum var fylgt eftir međ mótordrifi. Undirritađur tók ţessa mynd í mars 1997.

 

hb5-ahb

Ţessi mynd af Hale-Bopp halastjörnunni var tekin um miđnćtti skammt frá Keilisnesi ađ kvöldi 12 mars '97. Halastjarnan var ţá í norđurátt yfir sjónum, en samt var töluverđ ljósmengun frá stór-Reykjavík, Reykjanesbraut og Reykjanesbć. Bjarminn á neđri hluta myndarinnar er ţó ljósmengun af öđrum toga; nefnilega norđurljós!
Notuđ var Pentax K-1000 sem komiđ var fyrir á mótordrifinu sem sést á myndinni hér fyrir ofan. Filma var Kodak PPF Pro 400 ASA. Linsa 135mm, Ljósop 3,5. Lýsingartími um 1 mínúta.

 

 

haleboppesja5

Hale-Bopp halastjarnan yfir Esju ađ kvöldi 18 mars '97. Myndin var tekin skömmu eftir miđnćtti á Ţingvallaveginum, skammt vestan afleggjarans ađ skíđasvćđinu í Skálafelli. 
Myndin var tekin međ 35mm linsu, ljósop 3,5. Lýsingartími um 1 mínúta. Mótordrifiđ var notađ, enda eru sjörnurnar sem punktar, en Esjan dálítiđ hreyfđ!
Ţví sem nćst fullt tungl var ţegar myndin var tekin og gerir ţađ hana dálítiđ undarlega; nćstum eins og frá öđrum heimi. Vel má greina bláa rafskýiđ sem vísar upp frá halastjörnunni og grćn norđurljós sem eru svipuđ fyrirbćri. Litlu hvítu deplarnir á himninum eru ekki galli í filmu, heldur stjörnur. Á stćkkađri mynd má greinilega sjá ađ ţćr eru ekki allar hvítar; sumar eru bláleitar og ađrar rauđleitar.  Örfáum mínútum eftir ađ myndin var tekin hvarf halastjarnan í skýjabakkann sem kom ćđandi úr suđri.

Skýring á eđli báu og hvítu halanna á Hale-Bopp er hér.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţetta er ofsalega flott. Ćtti hún ađ sjást hjá mér...? Maja

Maria Agustsdottir (IP-tala skráđ) 9.1.2007 kl. 20:25

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sćl Maja!

Halastjarnan verđur bara sýnileg á morgun og fimmtudag. Hugsanlega verđur hún horfin niđur fyrir sjóndeildarhring á föstudag, eđa öllu heldur orđin ţađ nćrri sólinni ađ hún hverfur í glýjuna. Ég veit ekki hvernig hún sést hjá ţér í Oxford. Ég held ađ hún hljóti ađ sjást. Halastjarnan er í austri ađ morgni, og best ađ sjá hana rétt eftir ađ ţađ byrjar ađ birta, en sólin samt vel undir sjóndeildarhringnum og himinninn sćmilega dökkur. Ég sá hana vel kl. 9:30 og fram yfir 10:30, en ţá var fariđ ađ verđa heldur bjart. Vćntanlega hefđi ég getađ séđ hana eiutthvađ fyrr.

Myndin er tekin út um gluggann í vinnunni, og var stjarnan nánast yfir Vífilsfelli.

Einnig ćtti hún ađ sjást í vestri skömmu eftir ađ sólin sest.

Eftir ađ hún hćttir ađ sjást á norđurhveli jarđar nćstu daga fćrir hún sig suđureftir og sést ţá vel sunnan miđbaugs, en ekki hér.

Sjá nánar á http://stjornuskodun.is

Ágúst H Bjarnason, 9.1.2007 kl. 20:49

3 identicon

Svakalega er þetta flott mynd, ég ætla að athuga hvort ég nái að sjá hana hérna frá London. Það er sennilega ólíklegt vegna ljósmengunar, en það á að vera bjart seinnipartinn þ.a. það er aldrei að vita.

Ragnar (IP-tala skráđ) 10.1.2007 kl. 11:25

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggiđ

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverđ

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverđiđ í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 762134

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband