Ólafur Ragnar stóð sig vel hjá BBC í gær: Myndband...

 

Jeremy Paxman hjá BBC er þekktur fyrir að vera harðskeyttur. Hann komst þó varla að þegar hann mætti Ólafi Ragnari í gær. Ólafur lét Paxman ekki vaða yfir sig og stóð sig með prýði.

Svona kynning hefði auðvitað átt að koma miklu miklu fyrr frá stjórnvöldum.  Það verður að segjast eins og er að þarna gerði forsetinn gagn, hvað sem manni finnst um atburðina fyrr í vikunni.

 

 

 

 

 

Sjá einnig þátt um Icesave, þ.e. fyrri hlutann, á Newsnight BBC 5. janúar.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann stóð sig fantavel það má hann eiga en mikið djöfull fór hann létt með sannleikann.  Hann talaði eins og hér væru svona kosningar daglegt brauð - en ekki sú fyrsta í sögunni!  Hann skensaði Breta fyrir að hafa ekki svona mikla trú á þjóð sinni eins og hinir lýðræðisþyrstu íslendingar, sem ef marka mátti forsetann hafa miklu beinni aðgang að beinu lýðræði en Bretar.  Hann hlýtur að hafa haft í huga hundakosninguna í Reykjavík hér um árið (reyndar var útkoma hennar hundsuð af mikilli lýðræðisást).  Það var eins gott að spyrillinn hafði ekki hugmund um þetta.

Ef eitthvað þá sannfærði Ólafur mig um hversu mikill lýðskrumari hann er, svo mikill að íslendingar jafnvel trúa því nú að þetta sé alvanalegt eftir að hafa hlustað á sinn ástkæra leiðtoga.

Þórður Áskell Magnússon (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 22:34

2 identicon

Ég biðst afsökunar, ólýginn óli fór rétttar með en ég.  Að sjálfsögðu var hér þjóðaratkvæði um fullveldi íslands 1944 en svo ekki gleyma nýliðinni þjóðaratkvæðagreiðslu, árið 1908, um áfengisbann.  Það var samþykkt, þe. vínbannið með 60% atkvæða en tók því gildi strax eða árið 1915.  Þrátt fyrir staðfastann þjóðarvilja voru við gerð afturræk með bannið þegar Spánn hótaði viðskiptabanni og því leyfðum við spánarvínin án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1922 eða eins og ólýginn óli orðaði það, vilji þjóðarinnar skiptir meira máli en viðskipti.  Ég bið olygna óla og aðdáendur afsökuna á ónákvæmninni.  Fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur man ekki eftir frá því að land var numið.

Mikil er skömm breta fyrir skort á staðföstum lýðræðisvilja, það er annað en við.

Þórður Áskell Magnússon (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 23:00

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það má ekki gleyma fjölmörgum kosningum í sveitarfélögum m.a. um hundahald, álver sameiningar og fleira.

Sigurjón Þórðarson, 8.1.2010 kl. 00:30

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

flugvöllinn ... þann skrípaleik

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.1.2010 kl. 04:29

5 identicon

Skrípaleikurinn á bak við hundakosninguna og flugvöllinn voru ekki þjóðaratkvæðagreiðslur.  Þær voru á sveitarstjórnarstigi.  Þannig að ég stend enn við að þær séu tvær frá upphafi landnáms.

Þórður Áskell Magnússon (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 761778

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband