Litlir vinir á lækjarbakka...

 

 



Þessum vinum mætti ég einn fagran haustdag á liðnu ári. Sumri var tekið að halla og vetur í nánd. Einhver undarleg ró hvíldi yfir öllu eftir amstur sumarsins sem hafði verið einstaklega milt og fallegt. Eiginlega kom það á óvart hve spakir þessi fallegu stálpuðu heiðlóuungar voru á árbakkanum. Engu var líkara en þeir könnuðust við mig og vissu að ekkert væri að óttast, þó risinn ég væri svo sem þúsundfalt þyngri en þeir. Vissulega voru það ekki bara tveir vinir sem þarna hittust á árbakkanum fallega í lok sumars, heldur þrír vinir sem nutu þess að vera til.

 

 

 

Uppfært 31. jan og 10. feb:  Sjá athugaemdir. Líklega eru þetta stálpaðir lóuungar en ekki auðnutittlingar eins og fyrst stóð í textanum en hefur nú verið leiðrétt :-)


 Fuglavefurinn

Myndin er tekin 4. október 2009 við Almenningsá í Bláskógabyggð með CANON EOS 400D / Canon 17-85 mm IS. Ramminn er gerður með Photoshop Elements 8. Myndina má stækka með því að tvísmella á hana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Fallegt og fyllir mann auðmýkt. Nokkuð sem vantar svo sárlega í samfélag okkar.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 30.1.2010 kl. 10:30

2 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Flott mynd Ágúst. En ertu alveg viss um að þetta sé auðnutittlingur. Hér má sjá mynd af auðnutittlingum. Mér datt í hug Heiðlóa, en er þó ekki viss, myndin hérundir er af vísindavef HÍ og er sögð af heiðlóu.

 http://visindavefur.hi.is/myndir/heidloa_150506.jpg

Jæja, best að fara að horfa á leikinn, áfram Ísland!

Sveinn Atli Gunnarsson, 30.1.2010 kl. 12:50

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Svatli. Ég var alls ekki viss enda ekki fróður um fugla. Ég giskaði á auðnutittling, en það er hreint ekki ólíklegt að mér skjátlist. Það vantar t.d. rauða litinn ofan á kollinn. Þetta var mjög smávaxinn fugl.

Ágúst H Bjarnason, 30.1.2010 kl. 14:15

4 identicon

       Sæll Ágúst.

            Kærar þakkir fyrir þessa fallegu mynd og textann sem fylgir. Kærkomin hvíld frá andlausum þrætum og rifrildi um Hrunið, Icesave, gjaldþrot,endurreisn, og svo framvegis, sem hefur heltekið þjóðina. Sannarlega tilefni til þess að hugleiða raunveruleg verðmæti, sem ekki verða metin til fjár. Þá á ég við umhverfi okkar, náttúruna, lifandi og dauða í öllum sínum fjölbreytileika. Hvert er upphafið, hver er tilgangurinn, hvernig verða endalokin? Ég tek undir með Arinbirni, Maður fyllist auðmýkt og lotningu frammi fyrir þessu óskiljanlega undri sem veröldin er.

       Ég hallast að því að fuglarnir á myndinni séu heiðlóur í vetrarbúningi. Hafi þeir verið mjög smávaxnir eins og þú segir í athugasemdinni þá finnst mér líklegt að þetta hafi verið þúfutittlingar en þeir eru algengasti spörfugl landsins, stundum kallaðir grátittlingar þeir eru t. d. minni en snjótittlingur.

                      Með kærri kveðju. 

                                         Þorvaldur Ágústsson.

Þorvaldur Ágústsson (IP-tala skráð) 30.1.2010 kl. 22:32

5 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Ég hef það fyrir reglu að giska alltaf á þúfutittling ef ég þekki ekki tegundina (ég læt þá fylgja með að það sé eini íslenski fuglinn sem ég þekki ekki, sem er reyndar lygi) - en í þessu tilfelli er þetta heiðlóa í vetrarbúningi - augnsvipurinn leynir sér ekki.

Annars mjög falleg hugvekja.

Höskuldur Búi Jónsson, 30.1.2010 kl. 23:04

6 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þetta voru örugglega ekki auðnutittlingar, svo mikið er víst. Auðnutittlingur er auðþekktur á rauðbrúna litnum á kollinum. þannig að það var fljótfærni hjá mér að sjá það ekki.

Flestir hallast að því í athugasemdunum að því að fuglarnir séu heiðlóur í vetrarbúningi.

Lóa í sumarbúningi og vetrarbúningi:

 

 http://www.ismennt.is/not/siggud/landgr/heidloa.htm

"Lóan er um 220 g að þyngd, hæðin 26-29cm og vænghafið 67-76 cm". (http://www.heimaslod.is/index.php/Heiðlóa).

Í minningunni voru fuglarnir mun minni en heiðlóan.  Líka hlutfallslega styttri.  Myndirnar eru teknar 4. október, en engar dökkar fjaðrir er að sjá á bringunni, þannig að hún hefur verið snögg að skipta um búning, ef þetta er lóa .  Lóa í sumarbúningi var þarna skammt frá allt sumarið og frekar gæf. Ég hafði ekki vit á að fylgjast með því hvort liturinn væri farinn að breytast síðsumars. 


Getur verið að þetta hafi verið stálpaðir lóuungar og þess vegna smærri en fullvaxnir fuglar? Á þessum slóðum voru nokkur lóuhreiður. Eru þeir kannski svona gráir, nánast í vetrarbúningi,  fyrsta sumarið?

-

Eins og Þorvaldur segir, þá eru margir búnir að fá meira en nóg af deilum og þrætum sem ekkert lát virðist vera á. Þess vegna er gott að hvíla hugann og beina athyglinni að einhverju öðru sem maður hefur ánægju af.

Bráðum fer maður að raula í huganum:

Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.

                                          Páll Ólafsson

Ágúst H Bjarnason, 31.1.2010 kl. 09:49

7 identicon

    Ágúst.

      Þetta gætu einmitt verið lóuungar. Þeir eru í vetrarlitunum fyrsta sumarið.                                                                            Ég vil benda þér á handhæga bók, sem heitir Íslenskur fuglavísir eftir Jóhann Óla Hilmarsson. í henni eru myndir og lýsingar íslenskra fugla og flækingsfugla, sem hingað berast af og til. Einnig myndir af eggjum, sýnd búsvæði og fleira til fróðleiks.

       Kveðja. Þorvaldur Ágústsson.

Þorvaldur Ágústsson (IP-tala skráð) 31.1.2010 kl. 17:01

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fallegur texti við yndislega mynd, Ágúst

Skipsfélagi minn á frystitogara til margra ára, er mikill fuglaáhugamaður. Sennilega er hann þó þekktari meðal samborgara sinna, fyrir að skjóta þá, frekar en að dást að þeim. Ef við félagarnir um borð sáum einhverja torkennilega fugla, sem oft bar við, sérstaklega á vorin, þá var "fuglaáhugamaðurinn" yfirleitt ekki lengi að greina tegundina. Ef fuglinn var dökkur spörfugl, þá hét hann "svartþröstur". Ef fuglinn var ljós mávategund, þá var það "ísmávur". Ef fuglinn var ránfugl af fálkaætt, þá var hann "förufálki".

Tvisvar sinnum á þeim áratug sem við vorum skipsfélagar, fengum við hegra sem laumufarþega og voru þeir slæptir og ræfilslegir þegar við handsömuðum þá og reyndum við að hlúa að þeim og koma í þá æti. Þeir voru greinilega ekki af sömu tegund en báður voru þeir gráir. Og þá stóð ekki á greiningunni hjá fuglaáhugamanninum; þetta voru nefnilega "gráhegrar".  

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.1.2010 kl. 23:13

9 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Kærar þakkir fyrir ábendinguna um Íslenska fuglavísinn Þorvaldur.  Mig vantar einmitt svona handhæga bók því ég á það til að vera eins og skipsfélagi Gunnars

Ágúst H Bjarnason, 1.2.2010 kl. 07:44

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Skemmtileg og falleg færsla. 

Marta B Helgadóttir, 1.2.2010 kl. 12:34

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg mynd og notaleg færsla frá þér.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.2.2010 kl. 15:46

12 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Heillandi mynd og hugarkonfekt, bestu þakkir

Hulda Haraldsdóttir, 3.2.2010 kl. 22:12

13 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég fór að ráði Þorvaldar Ágústssonar og keypti Íslenska Fuglavísinn. Frábær bók.

Á blaðsíðu 38 er fjallað um Heiðlóuna.  Þar er lítil mynd af "ungfugli um vetur".  Þetta hefur verið "ungfugl um haust" sem ég tók myndina af .

 http://www.a4.is/a4/upload/images/products/ecshop_email_sb721024.jpg

Ágúst H Bjarnason, 6.2.2010 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband