Grein um Ísland í víðlesnu erlendu tölvublaði: How to kill the datacenter business...

 

Í vefútgáfu víðlesins og mjög þekkts erlends miðils  ZDNet er fjallað um ólukku Íslendinga. Skýrt er frá því hvernig þeir hafa lifað af eldgos, óveður og jarðskjálfta, en nú sé ljóst að enn ein ógnin stafi að Íslendingum, þ.e. þeirra eigin stjórnmálamenn.

Auðvitað er verið að fjalla um gagnaverin sem áttu að koma í stað álveranna. Fjallað er um ákvörðun IBM og fleiri að hætta samstarfi um uppbyggingu stórs gagnavers á Keflavíkurflugvelli...

 

How to kill the datacenter business

By David Chernicoff | September 9, 2010, 11:48am PDT

http://www.zdnet.com/blog/datacenter/how-to-kill-the-datacenter-business/438


Summary

With an environment that lends itself to significant green datacenter potential, Iceland’s dreams of becoming a datacenter mecca seem to have run afoul of the governmental bureaucracy

 

 

 

They survived earth quakes, severe weather, and a volcanic eruption that shut down air travel over a good portion of the planet, but it looks like the big plans of Icelandic datacenter providers may have been shot down by that most insidious of creatures; their own politicians.

With the announcement that IBM, as well as other major players, was postponing their involvement in the large datacenter operation planned for the former military base at Keflavik International Airport the prospects of a relatively rapid ramp up of the Icelandic datacenter operation seemed to be pretty well dampened.  At issue is the fact that the servers in the datacenters are currently subject to the Icelandic VAT and this additional taxation adds a major increase to the costs of setting up a datacenter in Iceland. The decision is apparently in the bureaucratic hands of the Icelandic Ministry of Finance, who has yet to make a decision

In the EU, servers are excluded from VAT so their inclusion in the Icelandic tax model came as a surprise to the potential datacenter facility customers. Due to the fact that the companies using the facility would not be operating on a permanent basis in Iceland, the VAT is non-refundable.  Within the confines of the EU companies can move servers from country to country without incurring a tax penalty under an exclusion in the tax code of the EU covering the free flow of product.

Regardless of the greenness of datacenters based in Iceland, the bottom line for business is the cost of doing business. By adding an unnecessary tax burden to the operation of datacenters in the country, the Icelandic government is throttling the growth of an entire industry sector.  And it’s not as if the government would be getting revenue from this business model if the tax stays in place.  The actions of the major corporations necessary for a successful launch of world-class datacenters makes that abundantly clear.

 

With more than 20 years of published writings about technology, as well as industry stints as everything from a database developer to CTO, David Chernicoff has earned the term "veteran" in the technology world. Currently the principal of an independent consulting business and an active freelance writer, David has most recently been a Senior Contributing Editor for Windows IT Pro magazine, having also been the Lab Director for Windows NT Magazine, Technical Director of PC Week Labs, the author or co-author of a number of books on different versions of Windows, a plethora of eBooks on various technology topics, and of approximately 3000 magazine articles in print and on the web. With more than 20 years of published writings about technology, as well as industry stints as everything from a database developer to CTO, David Chernicoff has earned the term "veteran" in the technology world. Currently the principal of an independent consulting business and an active freelance writer, David has most recently been a Senior Contributing Editor for Windows IT Pro magazine, having also been the Lab Director for Windows NT Magazine, Technical Director of PC Week Labs, the author or co-author of a number of books on different versions of Windows, a plethora of eBooks on various technology topics, and of approximately 3000 magazine articles in print and on the web.

 

 

Verður Íslands óhamingju virkilega allt að vopni?

Nú er nauðsynlegt að hafa snarar hendur. Ef til vill er það þó þegar orðið of seint...

Kannski má bjarga einhverju fyrir horn með því að bregðast við strax í dag.
Á morgun verður það orðið allt of seint...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Tómasson

Ég hef bara eina spurningu hérna.

Er einhver virkilega undrandi?

Heimir Tómasson, 10.9.2010 kl. 07:30

2 identicon

Fyrst fengu þeir skattaafslátt fyrir að byggja fyrirtækið. Nú eiga þeir að fá skattaafslátt fyrir að reka fyrirtækið.

Doddi (IP-tala skráð) 10.9.2010 kl. 08:38

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Við þurfum að spila úr því sem við höfum. Núverandi stjórnvöld hafa engin spil.

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.9.2010 kl. 10:32

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég skil - þeir eru ekki vanir því að það sé vaskur á þeirri starfsemi í öðrum löndum.

Hmm. þá væntanlega eru einu tekjurnar af þessu kaup þeirra á rafmagni og leiga þess húsnæðis sem tækin eru varðveitt í.

En ég skil, við getum ekki boðið verri kjör en aðrir.

Mér sýnist samt sem áður, að þetta skapi fá störft. En, tja einhverjar tekjur sjálfsagt skárra en ekkert!

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.9.2010 kl. 12:20

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

www.ruv.is

Fyrst birt: 10.09.2010 12:43 GMT
Síðast uppfært: 10.09.2010 12:43 GMT

"Lögum um gagnaver verður breytt


Ríkisstjórnin hyggst leysa þann vanda sem upp er kominn með uppbyggingu gagnavera hér á landi. Skattalögum verður breytt til að jafna samkeppnisstöðu Íslands og annarra Evrópuríkja.

Fram hefur komið í fréttum að uppbygging Gagnavera hér á landi sé komin í óvissu vegna þeirra skattaregna sem gilda hér á landi. Fullyrt er meðal annars að stórfyrirtækið IBM hafi dregið sig úr uppbyggingu gagnavers Verne holding á gamla varnarsvæðinu í Keflavík af þessu sökum.

Steingrímur J Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur sagt að flókið sé að jafna stöðuna. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, segir nú að búið sé að finna lausn. Fjármálaráðherra hafi í gær sent bréf til fyrirtækja á sviði gagnavera. Þar komi fram að samkeppnisstaða þeirra verði jöfnuð og unnið sé að útfærslum að því. Unnið sé að því í samráði við hagsmunasamtök gagnavera.

Katrín segir mikið í húfi. Æskilegt sé að gagnaver byggist upp hér. Þetta sé spennandi hátækniiðnaður sem hafi gríðarleg margfeldisráhrif hvað varðar þjónustu við þau".

Ágúst H Bjarnason, 10.9.2010 kl. 12:54

6 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Já djöfull væri vont fyrir Vilhjálm samfylkingar gúru að verða af viðskiptunum. Ekki búin að leggja neitt smá á sig við að fá skattaafsláttinn

Sigurður Sigurðsson, 10.9.2010 kl. 15:52

7 identicon

Já hin margumtöluðu margfeldisáhrif!. Hvaða svaka þjónusta er við þessi gagnaver??

itg (IP-tala skráð) 10.9.2010 kl. 16:49

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það þarf að skipta um perur og viftur... og svona

Nei, án gríns, þá eru mörg tækifæri að renna okkur úr greipum með skelfilega dæmigerðum vinstri- íhaldsaðgerðum. Boð og bönn, skattar og gjöld, ..... það þarf einhver að kenna þeim að hugsa út fyrir kassann

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.9.2010 kl. 17:28

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta eru risastórir kæliskápar, sem standa þarna og mala og nota rafmagn, sem þetta lið vill nánast fá gefins. Þetta er áróðurs og frekjugrein, spuni, taktík  og klækir. Það er verið að nota sér erfiða stöðu okkar til að merja út úr okkur aulindirnar fyrir ekkert. Ég gef skítinn fyrir svona rugl. Þeir fara þá bara eitthvað annað með þetta, því þetta eru eintóm útgjöld engin atvinna og tóm áhætta. Þessir andskotar komast svo í kúgunaraðstöðu síðar með að hóta að fara ef þeir fá ekki ívilnanir í hinu og þessu, rétt eins og álrisarnir. Þetta er ekkert öðruvísi. Þeir hengja þetta svo á að þetta sé svo rosalega umhverfisvænt. Já það er það af því að við sköffum það þannig. Þeir geta þá velt fyrir sér að nota kol í þetta, heima hjá sér eða farið til einhverra vanþróaðra ríkja sem þeir geta kúgað til fylgilags. Þeir kæmust ekki upp með þetta í hinum siðmenntaða heimi.  Ef Evrópusambandið er með einhverjar reglur sem hygla þessum auðhringjum umfram aðra, þá er það enn frekari sönnun á því að við höfum ekkert að gera þar inn. Ég sæi Þjóðverja t.d. í anda þegja undir svona þrýstingi eða gefa eina tommu í slíkum viðræðum.  Við erum ekki þriðjaheimsríki né þróunarríki. Hættið að láta sem svo sé.

Það er eftir þessum einfeldningum að fara í fár yfir þesskonar útsmognum frekjulátum.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.9.2010 kl. 19:04

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eru Íslendingar virkilega í eðli sínu svona ástandshórur? Það má ekki útlendingur stinga niður penna án þess að þeir leggist útglenntir. Alveg sama hvaða rök eru fyrir þessu hér. Bara að það sé útlendingur.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.9.2010 kl. 19:12

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta finnst mér rætið, Jón Steinar

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.9.2010 kl. 19:26

12 identicon

Þetta er ekkert sér íslenskt Jón Steinar.  Þetta hefur gerst um allann heim.  Enda eru þetta ekki útlend fyrirtæki.  Þau eru alþjóðleg þ.e. enginn festir þau niður á þjóðerni.

itg (IP-tala skráð) 10.9.2010 kl. 19:33

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þessi "mjög þekkti miðill" er tækninördasíða rekin af risunum, Dell, AT&T, IBM og öllum risunum. Þessi "Erlenda grein", sem liggur svona óskaplega á að bregðast við. (ekki seinna en á morgun) er blogg!! Þessi David Chernicoff er spunameistari hjá Microsoft og innsti koppur í búri. M.a. meðhöfundur XP.  Hvaða hvatir telur þú reka Ágúst til að blása þetta "blogg" upp með þvílíkri hysteríu Gunnar? Það er eins og heimurinn sé að farast.  Ég lagði bara saman tvo og tvo. Hann fjarlægði svo athugasemdina. (sem hann gerir líklega við þessa líka).

Þolir þú ekki öndverðar skoðanir Ágúst?

Jón Steinar Ragnarsson, 11.9.2010 kl. 02:07

14 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þessi umræða er dauð og ómerk.. því nojararnir eru komnir í gang með gigantisk plön um gagnaver í yfirgefnum námum norður í rassgati.

Óskar Þorkelsson, 11.9.2010 kl. 05:07

15 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Að gefnu tilefni vil ég benda á pistilinn sem ég birti 10 apríl s.l.: Ritstjórnarstefna bloggsins...

Þar stendur meðal annars:

"Ritstjórnarstefna þessa bloggsvæðis hefur verið mjög einföld og frjálsleg hingað til, enda yfirleitt ekki fjallað um mjög eldfim málefni. Það hefur gengið vel og verið án meiriháttar vandræða.

Stundum hefur þó verið fjallað um málefni eru af einhverjum ástæðum hitamál. Þá kemur fyrir að athugasemdir jaðri við að fara úr böndum og endi út um víðan völl. Komið hefur fyrir að athugasemdir vegna eins pistils hafi  skipt tugum. Bloggarinn hefur ekki tíma til að sinna slíku og þykir stundum nóg um. Stöku sinnum er jafnvel um að ræða innbyrðis deilur milli þeirra sem heimsækja bloggsvæðið. Bloggarinn hefur því ákveðið eftirfarandi sem tekur þegar gildi:

1) Þegar fjallað er um málefni sem bloggarinn telur að ýmsir hafi ánægju af, og að ekki sé hætta á heitum umræðum,  verður athugasemdakerfið opið í svo sem 3 daga. Hugsanlega lengur ef tilefni er til. Sem dæmi um efni sem fellur í þennan flokk og birst hefur á bloggsíðunni má nefna ljósmyndun, stjörnufræði, eðlisfræði, flug, skógrækt, lífið og tilveruna, menningu, ...

2) Þegar fjallað er um málefni sem bloggarinn telur að ýmsum geti hitnað í hamsi við að lesa og bloggarinn telur hættu á að umræður verði heitar verður athugasemdarkerfinu ritstýrt. Þá mun athugasemdakerfið verða stillt þannig að umsjónamaður bloggsins mun þurfa að samþykkja athugasemdir áður en þær birtast. Þess vegna má því miður búast við allnokkrum töfum.  Munu þá gilda hliðstæðar reglur og hjá ritstjórn blaða; aðeins athugasemdir sem sá sem er ábyrgur fyrir þessu bloggsvæði telur málefnalegar og eiga erindi verða birtar.   Álit þeirra sem skrifa undir fullu nafni verður metið áhugaverðara en þeirra sem skrifa undir dulnefni".

Um tíma í gær var athugasemdasvæðið opið og ekki ritstýrt, enda hélt ég að þess þyrfti ekki með. Ég sá þó að full ástæða var að grípa í taumana og stillingu breytt til samræmis við það sem fellur undir lið 2).

Öllum athugasemdum sem umsjónarmaður þessa bloggsvæðis telur óviðeigandi eða  ómálefnalegar verður annað hvort eytt eða þær ekki samþykktar.  Þetta eru einfaldlega sömu reglur og gilda í prentmiðlum.



Ágúst H Bjarnason, 11.9.2010 kl. 06:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 762140

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband