Verður hafísinn mun meiri enn á sama tíma í fyrra...?

 

 


Óþarfi er að hafa mörg orð um þennan beintengda feril frá Dönsku veðurstofunni DMI sem sýnir útbreiðslu hafíss.

Svarti þykki ferillinn sýnir ástandið nú, en sá dökkblái sýnir útbreiðsluna í fyrra, en þá var hafís mjög lítill. Hvert stefnir í ár? Lágmarki ársins verður náð eftir fáeinar vikur.  Fróðlegt verður að fylgjast með.

Takið eftir dagsetningunni neðst til vinstri á myndinni.

 

 

Sjá pistil frá því í maí hér.

Hafísdeild Dönsku veðurstofunnar ocean.dmi.dk

 

Myndin efst á síðunni: ocean.dmi.dk/arctic/plots/icecover/icecover_current.png

 

 

Uppfært 11. ágúst 2013:

Ný framsetning hjá DMI:

Myndin neðst á síðunni: http://ocean.dmi.dk/arctic/plots/icecover/icecover_current_new.png

Sjá vefsíðuna: http://ocean.dmi.dk/arctic/icecover.php

 

 

 
icecover_current_new                        Arealet af al havis på den nordlige halvkugle i de seneste år.
                       Det grå område omkring den klimatologiske middelværdi svarer til
                       plus/minus 1 standard afvigelse.

Plottet ovenfor erstatter den tidligere isudbredelsesgrafik, som var baseret på iskoncentrationsdata med en bred kystzone-maske. Denne kystzone-maske betød, at det gamle isudbredelsesestimat var undervurderet. Det nye plot viser det absolutte isudbredelsesareal. Det gamle plot kan for en tid ses her.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lestu þetta

http://www.chicagonow.com/dennis-byrnes-barbershop/2013/07/is-a-little-ice-age-in-our-future/

Og síðan ef þér finnst þetta ólíklegt ... þá farðu út, og hugsaðu hversu hlítt þér finnst það (ef þú hefur verið hér erlendis), þratt fyrir að hitamælirinn segir bara 20 stig.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 1.8.2013 kl. 08:49

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Í fréttum undanfarna daga hefur verið fjallað um bráðnun á norðurpólnum og birtar myndir því til staðfestingar.

Nú hefur Háskólinn í Washington séð ástæðu til að birta "leiðréttingu" þar sem fram kemur m.a:

 - Þetta eru ekki göt í ísnum heldur grunnir (10-50cm) ferskvatnspollar sem myndast á yfirborði íssins.

 - Myndavélin er með víðlinsu sem ýkir verulega fjarlægðir og stærðarhlutföll.

 - Svona pollar eru árlegur viðburður.

Sjá hér og hér.

Ágúst H Bjarnason, 1.8.2013 kl. 13:18

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það virðist nokkuð ljóst að nýtt lágmarksmet í útbreiðslu verður ekki sett í ár. Kaldar lægðir eru enn ríkjandi og vindar óhagstæðir. Hinsvegar verður forvitnilegt að sjá hvernig norðurpóllinn mun líta út í lok sumars.

Fréttir af bráðnun norðurpólsins voru vissulega ekki réttar og gott að vísindamennirnir sjálfir skuli leiðrétta misskilning blaðamanna. Á nýrri myndum má sjá að vatnið hefur lekið burt þannig að baujan stendur upp úr ísnum á ný. Málið er líka að bayjan og vefmyndavélarnar hafa rekið talsvert frá norðurpólnum eins og eðlilegt er vegna hreyfingar íssins. Ég hef verið að skoða þetta og samkvæmt korti á http://psc.apl.washington.edu/northpole/ (græna línan / BARNEO 2013) eru þær nú komnar suður fyrir 85°N eða hálfa leiðina að Fram-sundi milli Svalbarða og Norður-Grænlands. Þar munu baujurnar og vefmyndavélarnar fara í gegn og enda í Austur-Grænlandsstraumnum umkringdar ís eða umflotnar sjó eins og venjan er með fyrri baujur.

Emil Hannes Valgeirsson, 1.8.2013 kl. 14:13

4 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Þannig að bráðnunin á myndum frá "Norðurpólnum" sýnir bara eðlilegt ferli þegar hlutir reka í suðurátt í hlýrra loftslag.  Þessi loftslagsumræða er algjör brandari.

Erlingur Alfreð Jónsson, 1.8.2013 kl. 19:24

5 identicon

Kanski ekki alveg brandari, en það vantar mikið i umræðurnar.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 1.8.2013 kl. 22:45

6 identicon

Þakkir fyrir þessa ábendingu Á.H.B. Norðurskautsbræðslumeistarinn E.H.V. virðist vera farinn að bila í trúnni á íslaust íshaf og frá Veðurstofu Íslands berast nú fréttir um kulda við Norðurskautið og kaldar nætur á Íslandi ;)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 2.8.2013 kl. 12:19

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hilmar.

Emil er mjög athugull og fordómalaus, og skrifar fróðlega pistla.

Ágúst H Bjarnason, 2.8.2013 kl. 14:11

8 identicon

Ágúst, Það er líka annað annað graf á DMI vefnum sem er áhugavert í þessu sambandi, það sýnir meðaldagshitann fyrir ofan  80°N, sem og 45 ára meðaltalsferil fyrir sömu mælingu reiknað út frá tímabilinu frá 1958 til og með 2002. Mér sýnist eftir fljótlega athugun, að þetta árið sé það sem hefur kaldasta vor og sumar (það sem af er ) hingað til  í þessum gagnagrunni. Og að allt útlit sé fyrir að sá tími  ársins sem dagshitinn fer yfir frostmark, ef restin af sumrinu verður á sömu nótum , gæti orðið   25 - 30 dögun styttri en í meðalári, svo þér þykir það ekki  ólíklegt að ísbráðnunin með minna móti í ár.
Krækja í síðunna sem ég er að tala um: 
http://ocean.dmi.dk/arctic/meant80n.uk.php

En auðvitað ef við fáum eins og eitt stykki þúsaldar-storms á réttri átt ,sem feykir norðurísnum eins og hann leggur sig inn á Fram sundið, gætum við svo sem séð îsfrían sjó þarna norður frá . Það má  lifa í voninni  meðan enn lifir eitthvað eftir af sumrinu.

Sigurbjörn Ólafsson (IP-tala skráð) 4.8.2013 kl. 01:18

9 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir ábendinguna um http://ocean.dmi.dk/arctic/meant80n.uk.php  Sigurjón.

Daily Mean Temperatures in the Arctic 1958 - 2013

Daily mean temperatures for the Arctic area north of the 80th northern parallel, plotted with daily climate values calculated from the period 1958-2002.

---

Svo má ekki gleyma hafísnum við Suðurskautslandið.   Hann er nú vel yfir meðaltali áranna 1981-2010, en lengra aftur þekkja menn ekki vel söguna vegna skorts á gervihnattagögnum.

Antarctic Sea Ice Extent

http://nsidc.org/data/seaice_index/images/daily_images/S_stddev_timeseries.png

Ágúst H Bjarnason, 4.8.2013 kl. 08:37

10 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Það væri ekki óeðlilegt að hafísinn í ár yrði minni en í fyrra - enda var metið slegið all rækilega þá.

Að öllum líkindum verður útbreiðsla hans þó mun minni en öll árin fyrir 2007.

summer sea ice extent

Figure 1: Average July through September Arctic sea ice extent 1870-2008 from the University of Illinois (Walsh & Chapman 2001 updated to 2008) and observational data from NSIDC for 2009-2011 (blue), with a fourth order polynomial fit (black soiid line).  Black vertical dashed lines indicate the years 1938-43.  

Hér getur maður síðan dundað sér við að skoða hafísútbreiðslu síðustu áratuga:
http://nsidc.org/arcticseaicenews/charctic-interactive-sea-ice-graph/

Höskuldur Búi Jónsson, 8.8.2013 kl. 09:59

11 identicon

Ágúst. Þú ert að sjálfsögðu frjáls að þinni skoðun á sérlegum gestapenna loftslag.is :)

Hins vegar vandast málið þegar vísindamaðurinn Höskuldur Búi mundar stílvopnið:

"Það væri ekki óeðlilegt að hafísinn í ár yrði minni en í fyrra - enda var metið slegið all rækilega þá."??!! Skilur einhver þessa rökfærslu vefarans mikla?

"Að öllum líkindum verður útbreiðsla hans þó mun minni en öll árin fyrir 2007."??!!

Enginn efast um valkvæða spádómsgáfu ritstjóra loftslag.is en staðreyndin er nú samt sú að samkvæmt glænýjum upplýsingum um hafísútbreiðslu í Norður-íshafinu (http://nsidc.org/arcticseaicenews/) 18. ágúst sl. þá er útbreiðslan vel innan vikmarka 1981 - 2010 meðaltalsins og toppar 2008.

Þá hefur meðalísþykktin líka náð sér vel á strik og toppar síðustu þrjú ár.

Að lokum er rétt að gleðja manninn í þokunni með glænýjum upplýsingum um metútbreiðslu hafíss í Suður-íshafinu (http://nsidc.org/arcticseaicenews/files/2013/08/Figure61.png), 18. ágúst sl.

Hafísbúskapur heimshafanna er því í verulegri sókn þessa stundina þvert á væntingar talsmanna kolefniskirkjunnar og spurning hvenær þeir snúa sér að Bræðslunni á Borgarfirði Eystra. ;)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 24.8.2013 kl. 11:35

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hilmar

Báðar myndirnar hér fyrir ofan eru "lifandi" og því auðvelt að fylgjast með breytingum í "beinni útsendingu".

"Ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið" segir gamalt máltæki. Í þessum málum er best og heilladrýgst að fullyrða sem minnst fyrirfram því náttúran á það til að koma á óvart, eins og í ágúst 2012. Við skulum því bara láta nægja að fylgjast með í svosem einn mánuð til viðbótar :-)

Ágúst H Bjarnason, 24.8.2013 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 761778

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband