Töfrum líkast og ótrúleg tækni --- Heilmyndir (hologram) í læknisfræðinni...

 

Myndbandið hér fyrir neðan er frá Ísrael og sýnir það hve ótrúlega langt heilmyndatæknin er komin. Eiginlega miklu lengra en maður átti von á. Töfrum líkast er vægt til orða tekið.

Heilmyndir, almyndir eða hologram myndir eru yfirleitt gerðar með hjálp lasertækninnar, en það var árið 1971 sem rafmagnsverkfræðingurinn Dr. Dennis Gabor (1900-1979) hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir þessa uppfinningu sína, en það var þegar árið 1947 sem hann sýndi fram á frumhugmyndir með síuðu venjulegu ljósi. Það var þó ekki fyrr en leysirinn (laser) kom til sögunnar um 1960 að hægt reyndist að gera nothæfar heilmyndir.

Bloggarinn minnist þess tíma þegar laserinn var að slíta barnsskónum og meðal annars notaður til að gera ófullkomnar heilmyndir. Hann skrifaði pistil um laser í De Rerum Natura í janúar árið 1966, þá tvítugur. Kannski er það þess vegna sem honum þykir þessi tækni einkar áhugaverð Joyful

 



Eftir fáein ár verður væntanlega hægt að taka svona heilmyndir af fólki í fullri líkamsstærð og varðveita í tölvu. Síðan, jafnvel þegar fólk er löngu látið, verður hægt að kalla það fram inn í stofu nánast eins og það væri sprellifandi.    -   Datt einhverjum í hug afturgöngur?

 

 

Áhugaverðar síður frá Real View með svipuðu efni:


http://www.realviewimaging.com

http://www.realviewimaging.com/?page_id=225


http://www.realviewimaging.com/?page_id=185

 

logo2.jpg
 
 

 

dennis_gabor.jpg

Dennis Gabor


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Ágúst:

Mér finnst eitt vanta í þessa kynningu og sem gerir það að verkum, að mér finnst þessi tækni enn vera á teikniborðinu. Á öllum myndskeiðununum er sýnt hvað sé hægt að gera við hologrammið, þ.e.a.s snúa því með höndinni í stað þess að þurfa að horfa á myndina frá mismunandi hornum (þ.e. færa augun), sem vissulega er framför.

En hologrömmin koma ekki fram af sjálfu sér, ef þau eiga að sýna t.d. alvöru hjarta sem er í sjúklingi, hvort sem er í rauntíma eða ekki. Hvergi í þessum kynningum er sýnt hvernig myndaupptakan á sér stað. Eins og gefur eð skila-ja eru hologrömm mynduð með tveimur eða fleiri linsum og speglum, því að prinsíppið í holography er að ekki aðeins mynd af hlutnum er tekin upp, heldur líka allir fasarnir milli sjónarhorna.

Taflan á myndinni með Dennis Gabor sýnir prinsíppið í upptökunni. Þá er spurningin: Hvernig lítur svona upptökutæki út hjá RealView og hvernig fer myndatakan fram, enda má gera ráð fyrir lítilli stærð, ef þetta á að komast ekki bara ofan í brjósthol, heldur líka umhverfis hjartað í sjúklingnum. Geturðu sagt eitthvað um það? Eða er þetta bara grafískur hugbúnaður sem notar eldri myndatökutækni?

- Pétur D.

Aztec, 4.7.2014 kl. 20:12

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég hef grun  um að þetta sé hálfgert plat, en ekki beinlínis viljandi. Þó ekki algert plat...

 Þetta er varla venjuleg hologram mynd gerð með leysigeislum. Ýmislegt mælir á móti því.  Myndin er i góðum litum, en heilmyndir eru yfirleitt í einum lit. Það mætti hugsa sér að myndin væri tekin með þrenns konar laser, rauðum, grænum og bláum, en það finnst mér ólíklegt.  Miklu líklegra er að þetta sé tölvulíkan af hjarta gert í tölvu. Líkanið væri auðvitað hægt að gera eftir MRI sneiðmyndum þannig að það líkist hjarta í ákveðum sjúklingi og kemur þannig að gagni við skurðaðgerðir. Þetta er alla vega ekki hologram mynd sem tekin hefur verið beint í líkama sjúkings.

Þá er það tæknin til að varpa myndinni þannig að hún sýnist vera í "lausu lofti".  Þar fannst mér það hlyti að þurfa að vera eitthvað sem myndinni væri varpað á eða í. Einhvers konar reykur, gufa, þoka eða mistur.

Samt virðist eitthvað vera til í þessu og væri gaman að skoða það betur.

Sjá blaðagrein hér: http://www.mirror.co.uk/news/technology-science/science/video-watch-mind-blowing-hologram-allows-2718672

Ágúst H Bjarnason, 4.7.2014 kl. 22:59

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hér er pdf af Power Point skjali sem lýsir þessari tækini. Þar sýnist mér mistrið vera sem ég saknaði í 3D skjánum.  http://2013.icimeeting.com/wp-content/uploads/2014/01/1410-Bruckheimer-Elchanan-A_tue.pdf

Ágúst H Bjarnason, 4.7.2014 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 762104

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband