Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær er Ragna komin á götuna eftir að hafa misst tímabundið húsnæði. Fjárhagur Rögnu er erfiður eftir mikil útgjöld vegna veikinda dóttur hennar, Ellu Dísar, sem lést eftir langvinn veikindi sl. sumar.
Íbúðir í Breiðholti og Vesturbæ
Saga Rögnu hreyfði við lesendum Morgunblaðsins sem buðu henni húsnæði í Breiðholti og Vesturbæ.
»Ég ætla að taka boðinu og vera í íbúðinni í Vesturbænum í þrjár vikur. Þá kemur annar í íbúðina og ég færi mig yfir í aðra íbúð í eigu fjölskyldu í Breiðholti sem er að fara til útlanda. Þau leyfa mér að vera í íbúðinni frá og með 19. desember til 2. janúar. Hvað gerist í framhaldinu er óvíst,« segir Ragna.
Hún var á leið í hótelíbúð í miðborg Reykjavíkur þegar boðin um íbúðirnar tvær bárust. Hún hafði bókað gistingu fram á föstudag og fékk hún fyrirframgreiðslu þriggja af þeim nóttum fellda niður þegar henni stóð annað húsnæði til boða. Hyggst hún flytja sig um set í dag.
Eigandi íbúðarinnar í Vesturbænum er búsettur í Danmörku.
Um miðjan dag í gær hafði Sólveig Kaldalóns Jónsdóttir samband við Morgunblaðið en hún býr í Stege í Danmörku. Sagðist hún eiga íbúð með húsgögnum og öðrum húsbúnaði í Vesturbæ Reykjavíkur sem yrði ónotuð til 20. desember. Vildi hún gjarnan lána Rögnu og dætrum hennar íbúðina án endurgjalds, þó ekki yfir hátíðarnar því þá myndi systursonur hennar dvelja þar með konu sinni. Eftir áramótin kæmu frekari afnot af íbúðinni til greina.
»Það er hjónarúm í svefnherberginu og svefnsófi í stofunni og rúmföt og sængur og koddar fyrir fimm. Það er allt í íbúðinni og vantar ekkert,« sagði Sólveig sem hafði aldrei heyrt Rögnu getið fyrr en í gær.
Sólveig og eiginmaður hennar, sem er læknir, eiga bújörð og rækta hveiti, bygg, hafra og sykurrófur.
Hefur búið í Danmörku í 40 ár
»Ég á sjö rollur sem bera á vorin. Ég er 65 ára hjúkrunarfræðingur og hef búið í Danmörku í yfir 40 ár. Ég á þrjú börn á aldur við Rögnu og svo á ég barnabörn. Þegar ég heyrði af Rögnu og að hún hefði átt veika dóttur fannst mér sem hjúkrunarfræðingi leitt að það skyldi ekki vera til hjálp fyrir hana,« segir Sólveig sem fluttist til Danmerkur árið 1972 til að læra svæfingarhjúkrun.
Sólveig fylgist með fréttum frá Íslandi og hefur áhyggjur af húsnæðismálum. »Kerfið er orðið fátækt á Íslandi ef það getur ekki hugsað um þá sem eiga erfitt í þjóðfélaginu. Ég held að Danir hugsi betur um fólk í slíkum vanda,« segir Sólveig."
Athugasemdir
Þetta er yndislegt að heyra, en hvað um jólin og næstu ár þessi íbúð er ekki laus nema til 20 des.
Sigurður Haraldsson, 2.12.2014 kl. 18:19
Þetta er gott tímabundið samfélagsframlag, sem ber að virða og þakka fyrir.
Nú reynir hins vegar á samfélagsþroskann okkar allra, með framhaldið. Það er óverjandi að fasteignafélög á Íslandi haldi lífi fólks á leigumarkaði í svona gíslingu! Það er óverjandi að fólk verði að flýja land eða selja aleiguna til að eiga þak yfir höfuðið á kalda Íslandi á hjara veraldar!
Athyglin ætti nú að beinast að fasteignafyrirtækjum sem hafa hertekið Ísland með okurverði, sem enginn heiðarlega starfandi skattgreiðandi einstaklingur á Íslandi hefur möguleika á að kaupa/leigja!
Villimennska banka/lífeyrissjóða/fjármálaglæpafyrirtækja er ekki í nokkru samræmi við siðmenntaða samfélagsþjónustu/velferð/siðmennt þróaðra ríkja né ríkisjóðaúthlutana.
Þeirri staðreynd geta engir hagfræði/lögfræði/dómstóla-stærðfræðingar siðlausra alþjóðabankaræningja breytt!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.12.2014 kl. 20:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.