Takk fyrir framtakið stjörnuskoðunarmenn...!

 

797354.jpg

 

Nokkrir félagar mínir í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness sýndu fádæma dugnað og frumkvæði þegar þeir fluttu inn 75.000 sólmyrkvagleraugu og gáfu grunnskólabörnum um land allt bróðurpartinn, en seldu almenningi hluta þeirra til að fjármagna verkefnið. Fyrir það eru flestir þakklátir, ef undanskildir eru fáeinir kverúlantar sem af óskiljanlegum ástæðum voru með dónaskap og skæting í garð þessara áhugasömu sjálfboðaliða.

Stjörnuskoðunarmenn vildu gefa börnunum gleraugun til minja um atburðinn. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum leyfðu skólastjórnendur í Reykjavík það ekki og létu börnin skila gleraugunum til skólanna...

Það er víst margt óskiljanlegt í hegðun manna.

Eftir 11 ár verður almyrkvi á sólu á Íslandi. Þá munu skólarnir í Reykjavík eiga birgðir af sólmyrkvagleraugum og mun Stjörnuskoðunarfélagið þá geta sleppt þeim skólum ef þeir endurtaka leikinn, og einbeitt sér að skólum utan höfuðborgarinnar og kannski einnig leikskólunum...   Auðvitað yrði það ekki óskiljanlegt, eða þannig...

Líklega verða allir búnir að gleyma leiðindunum þá og gleraugun í hirslum skólanna löngu týnd.  Við skulum bara leyfa okkur að fara að hlakka til strax og vera viðbúin tímanlega, því eitt er víst, tíminn flýgur cool.

 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness er í raun eina félag sinnar tegundar á Íslandi, enda búa félagar víða á landinu. Sjálfur hef ég verið félagi frá því á síðustu öld og setið í stjórn þess um skeið.   Takk fyrir frábært framtak félagar !

  

www.astro.is

 

 total-solar-elipse-diamondring

 


mbl.is Hystería í aðdraganda sólmyrkvans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð 109 ára næst þegar þetta gerist og ætla sko að panta mér gleraugu strax í haust.

Til að vera viðbúinn.

jon (IP-tala skráð) 23.3.2015 kl. 23:24

2 identicon

Þetta framtak þeirra var meira en frábært.  Það bárust fréttir af því að þei hefðu reynt að fá stuðning  fyrirtækja en svo voru engar fréttir af því meira, svo það hefur lítið orðið úr því.  Samt fara þeir af stað upp á von og óvon, því veður stjórnar því algjörlega hvort eitthvað seljist.  Veðurguðirnir voru þeim hliðhollir og var það frábært, því þetta var alveg einstakt framtak sem hefði auðlveldlega geta farið í vaskinn ef veðrið hefði verið eins og það var undanfrana daga.   Eiga þeir mikinn heiður skilið fyrir þetta.  Þeir hafa auk þess verið alveg óþreytiandi í því að koma í fjölmiðla og segja frá atburðum og uppákomum úti í geymnum, sem fjölmiðlar almennt hirða ekki um að segja frá.  Hafi þeir mikla þökk fyrir.

Kristinn Sigurjonsson (IP-tala skráð) 23.3.2015 kl. 23:59

3 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Það er leitt að heyra að ákveðnir aðilar höfnuðu gjöfinni frá ykkur. Ég sá eftir að hafa ekki keypt gleraugu þegar þið voruð með sölu í Kringlunni. En ég frétti frá félaga ykkar í útvarpsviðtali að það væri hægt að nota gamlar filmur til að kíkja í gegnum. Ég tók fram gömlu möppuna meö filmunum og valdi þrjár til að nota fyrir "stóra daginn."

Föstudagurinn rann upp og þegar ég leit út á Faxaflóann var allt í þokumóðu. En sólin skein í austri. Ég labbaði niður að sjó og sat á bekk og las Fréttablaðið. Og beið eftir að það dimmdi. Nokkrir höfðu komi sér fyrir uppi á hól og sumir með myndavél. Útlenskt par kom þarna að, en þau voru ekki með nein gleraugu. Ég last bara blaðið og beið eftir myrkri og svo var mér orðið kalt.

Ég hélt heim á leið og mundi svo eftir filmunum. Sótti þær og kom mér fyrir utan húsið þar sem sá til sólar. Þá sá ég fyrst að tunglið val alveg við það að hylja sólina. Fullt af fólki í nærliggjandi fyrirtæki var komið út á hlað og ég sá líka að fólk stóð á svölum í fyrirtæki sem var fjær.

Ég horfði á fyrirbærið gegnum þrjár gamlar svart hvítar filmur. Tunglið huldi sólina nánast alveg, sen samt var bjart, en birtan breyttist: birtan varð grá. Ég var að reyna að skilgreina þetta: það var sólarbirta, en hún var öðruvísi. Það kom einhvers konar grá slykja yfir umhverfið.

Ég þurfti svo að skreppa út í 10-11 og þaðan í bakaríið. Í bakaríinu var erill og hitti þar gamla skólasystur sem ég bauð að skoða sólarmyrkvann gegnum filmuma. Í því kemur ung stúlka hlaupandi út í dyrnar og býður okkur að skoða þetta gegnum spes gleraugu. Það voru einmitt gleraugu, sem hún sem grunnskólanemi hafði fengið að gjöf frá Stjörnuskoðunarfélaginu!

Ég veit það nú, að maður sér ekki fyrirbærið nema að kíkja gegnum filmu, eða svona gleraugu. Sumir keyptu sér rafsuðugler í Brynju, Laugavegi.

En allir þeir sem eiga gamlar filmur, rafsuðugler, eða gleraugu frá Stjörnuskoðunarfélaginu, eiga að geyma þetta, vegna þess að skv. gúrú Stjörnuskoðunarfélagins, honum Sævari, verður deildarmyrkvi árið 2017!!!!!

Ingibjörg Magnúsdóttir, 24.3.2015 kl. 00:57

4 identicon

Sævar og félagar eiga heiður og þakkir skilið fyrir sitt framlag og kynningu á sólmirkvanum.

Nokkrir leikskólastjórar og starfsfól í ferðamálaiðnaði eiga eingöngu skömm og fyrirlitningu skilið fyrir sína hegðun.

En og aftur Sævar og félagar hafið þökk fyrir ykkar vinnu.

Kjartan (IP-tala skráð) 24.3.2015 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 762154

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband