Búrma: Hvar er alþjóðasamfélagið? Hvar eru Sameinuðu þjóðirnar?

Burma-Fangelsi

Umheimurinn fylgist nú með því hvernig herforingjastjórn í Búrma (Myanmar) beitir valdi til að fangelsa, berja og drepa varnarlaust fólk.


Hvers vegna gerum við vesturlandabúar ekki neitt? Nákvæmlega ekki neitt? Eru atburðirnir of langt í burtu? Kemur þetta okkur ekkert við? Er okkur nákvæmlega sama þar sem við eigum engra hagsmuna að gæta í Búrma?

Við eigum ekki að horfa aðgerðarlaus á það þegar þröngsýnir herforingjar beita illmennsku og hervaldi til að drepa og limlesta samlanda sína.

 Nú berast fréttir af því að búið sé að loka netsambandi við landið. Er eitthvað hræðilegt að fara að gerast á næstu dögum? 

 

Sýnum samstöðu!  Gerum eitthvað í málinu!

Eitt sem hver og einn getur gert er að vekja athygli á málinu. Hugsanlega ýtir það við þeim emættismönnum okkar sem hafa möguleika á að þrýsta á t.d. Sameinuðu þjóðirnar. Margt smátt gerir eitt stórt. Hver munkur í Búrma hefur lítil áhrif, en þegar þeir koma saman og eru samstíga, þá gerist eitthvað mikið eins og dæmin sanna.  Höfum þá sem fyrirmynd.

Þessi síða er tileinkuð hinum hugrökku munkum í Búrma, þess vegna er hún í lit þeirra. 

 


mbl.is Netsamband við Myanmar rofið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sýnum samstöðu ! Gerum eitthvað í málinu !  

Þetta skrifar þú en kemur ekki með neinar hugmyndir um hvað við getum gert í málinu..

Vesturlönd gera aldrei nett fyrr en eftir dúk og disk sb Darfur í sudan þar sem mun verri atburðir eru að gerast en að einn japanskur blaðamaður hafi verið myrtur af stjórnlausum hermanni og nokkrir látist í óeirðum sem nokkur hundruð þúsund taka þátt í .

Annað sem stoppar Vesturlönd og það er að Kína er mesti áhrifavaldurinn á þessum slóðum og ekki má troða þeim um tær og hafa þeir nú þegar nýtt sér neitunarvald sitt í öryggisráðinu..

En hvað vilt þú gera ? 

Óskar Þorkelsson, 28.9.2007 kl. 09:25

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Óskar.

Eitt sem hver og einn getur gert er að vekja athygli á málinu. Hugsanlega ýtir það við þeim emættismönnum okkar sem hafa möguleika á að þrýsta á t.d. Sameinuðu þjóðirnar.  Þetta getur hver og einn gert. Mín færsla er hugsuð sem slíkt framlag grasrótarinnar.

Dæmi um annað framlag af þessum toga er þessi færsla Katrínar Snæhólm:

Hljóð bæn húsmóður fyrir mannréttindum og frelsi fólksins í Burma

Hver og einn getur reynt að leggja sig fram. Margt smátt gerir eitt stórt. Hver munkur í Búrma hefur lítil áhrif, en þegar þeir koma saman og eru samstíga, þá gerist eitthvað mikið.  Höfum þá sem fyrirmynd.

Ágúst H Bjarnason, 28.9.2007 kl. 09:49

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

Allir vilja að eitthvað sé gert. hinsvegar er það eina sem hægt væri að gera er að vera bein afskipti af innanríkismálum landsins með hernaði. Gallinn er sá að enginn vill vera þessi sem sendir sína menn til þess að deyja fyrir einhverja "útlendinga". það eru engir hagsmunir að verja í Búrma/Myanmar. Þessvegna hafa vesturlönd litínn sem engann áhuga á landinu. 

Fannar frá Rifi, 28.9.2007 kl. 11:14

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hver segir að vesturlönd hafi lítinn áhuga á fólkinu í landinu þarna í fjarskanum...sem betur fer er vitund fólks um að við erum öll bræður og systur sem þessa jörð byggjum vaxandi og það skiptir okkur flest máli að það sé ekki verið að murka úr þeim lífið af vanvita grimmum leiðtogum. Og sem betur fer bregðumst við við þó að við vitum ekki í vanmætti okkar hvað við getum gert..þá er það minnsta samt að láta ekki eins og við vitum ekki af þessu ómælda ofbeldi hvort sem það er í Burma eð Dafur og tökum okkur skýra stöðu sem fólk sem stendur gegn hvers kyns ofbeldi í öllum myndum. Hins vegar er nokkuð ljóst að alþjóðasamfélagið og þeir sem hafa verið kosnir til að vera rödd okkar eru ekki með nein ráð heldur.

Og mér finnst asnalegt að tala niður til þeirra sem eru þó að gera sitt til að vekja athygli á því sem betur mætti fara og við ættum kannski frekar að nota orkuna og hugvitið til að sjá hvernig við öll getum orðið að liði. Mín sýn er sú að það þarf verulega hugarfarsbreytingu og nýjan skilning á því sem sameinar mannfólkið í stað þess að ala stöðugt á því sem sundurgreinir. Hið mannlega hjarta slær eins hvar í heimi sem það er staðsett.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.9.2007 kl. 12:31

5 Smámynd: Steini Bjarna

Efnahagsþvinganir eru nú þegar í gangi og þrýstingur alþjóðasamfélagsins dugar vonandi til að menn láti af þessari vitleysu.  Hinsvegar vita herforingjarnir að Kínverjar og hugsanlega Rússar haldi yfir þeim verndarhendi í öryggisráðinu svo að ástandið gæti orðið ljótt.

Steini Bjarna, 28.9.2007 kl. 12:33

6 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir þína skynsamlegu og greinargóðu athugasemd Katrín.

Ágúst H Bjarnason, 28.9.2007 kl. 12:43

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

 Án orða:


Ágúst H Bjarnason, 28.9.2007 kl. 12:44

8 Smámynd: Fannar frá Rifi

Ég er ekki að tala niðurtil ykkar. allavega meinti ég það ekki ef einhver hefur skilið það svo. hinsvegar er ég að lýsa köldum raunveruleikanum. Það hafa verið efnahagsþvinganir í áratugi. við sjáum öll hversu mikil áhrif viðskiptabann USA hefur haft á stjórn Kastrós á Kúbu. sama og ekki neitt. 

Auðvitað finn ég til þegar sé menn barða niður. þarna er hinsvegar her á ferð. eina sem hann skilur er ofbeldi og átök. herstjórninn er alveg nákvæmlega sama hvort við klæðumst rauðu í dag eða hversu margir þinnmenn og ráðherrar í hinum órafjarlægu verstlönd þinga og álykta. þetta sést best í Súdan. algjört aðgerðarleysi. Rúanda og Súdan eru að endurtaka sig.

Fannar frá Rifi, 28.9.2007 kl. 12:47

9 identicon

Það er virkilega sorglegt það sem er og hefur gerst í Búrma. Alræðisstjórn sem misþyrmir undirsátum sínum er ekkert gleðiefni.

Bláköld staðreyndin er hinsvegar sú að þessi alræðisstjórn hefur kröftugan her sér til varnar. Her sem við Íslendingar getum ekki yfirbugað og ef Utanríkisráðherra fær vilja sínum framgengt, munum ekki geta haft minnstu áhrif á.

Við vitum öll að til að stöðva glæpamenn þarf að yfirbuga þá og handsama. Valdbeiting innanríkis gegn glæpamönnum er lögregluaðgerð, en valdbeiting milli ríkja gegn stórglæpamönnum eins og þessari herforingjastjórn er hernaðaraðgerð. Það er eini eðlismunurinn, stærðargráðan og fjöldi þeirra sem getur misst lífið.

Öryggisráð SÞ gæti komið þessum glæpamönnum frá völdum, en mun það ekki á meðan Alþýðulýðveldið Kína ber hlýjan hug til þeirra og beitir neitunarvaldi gegn öllu slíku.

Við Íslendingar eigum í samstarfi um jarðhita og virkjanir, við fólkið sem styður þessa glæpamenn. Það væri kannski eitt skref að hætta því, annað að hætta viðskiptum við þá og krefjast brottfarar hernámsliðs Kínverja í Tíbet.

Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 16:00

10 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég vil engin afskipti hafa af þessu. Íbúarnir verða að ráða fram úr þessu sjálfir. Það koma erfiðleikatímabil í öllum samfélögum og ég er ekki viss um að erlend afskipti séu endilega til bóta þarna.

Með þessu mæli ég ekki á nokkurn hátt í bætifláka fyrir óvinsæla herforningjastjórn.

Spurningin er bara: Hvert okkar vill fara í fremstu víglínu innrásarhers? 

Haukur Nikulásson, 28.9.2007 kl. 16:13

11 identicon

Í tengslum við það um hvað það væri hægt að gera til að reyna að hjálpa alþýðunni í Búrma vil ég benda á eitt atriði.

Það er ljóst að Kína getur haft mikil áhrif á herforingjana í Búrma og það væri líklegast áhrifamest að þrýsta á Kínverjana, ómögulegt er fyrir okkur að þrýsta á herforingjana í Búrma. 

Ég heyrði það á BBC WS, að mig minni, í gær að áhrifaríkasta leiðin til að þrýsta á Kína væri fyrir þjóðir heims að neita að senda lið sitt á ólympíuleikana hjá þeim nema að þeir fordæmi aðgerðir herforingjana gegn munkunum í Búrma og öðrum þegnum.  Ólympíuleikarnir skipta Kína gríðalegu máli og slík afstafa myndi bíta fast.

Kínverjar og Rússar hafa verið erfiðir í öryggisráði SÞ í tengslum við Búrma. Erfitt er að sjá hvernig væri hægt að tjónka við Rússana en þessi skilaboð til Kínverjana gætu dugað til að breyta einhverju.

Utanríkisráðherrann og ríkisstjórnin myndu vaxa mikið í áliti á alþjóðavísu fyrir að taka slíka afstöðu gæti ég ímyndað mér, allavega myndi hún fá þökk frá mér.

Helgi Eiríkur Eyjólfsson (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 17:17

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ætlaði einmitt að legga það sama til og Helgi....Það að neita að senda lið á olympíuleikana í Kína myndi setja verulega mikla pressu á þá. Vonandi að alþjóðasamfélagið geri það..nema að leikarnir skipti þegar upp er staðið meira máli en að stöðva illvirkjana í Burma. Ætla að fylgjast vel með þessu.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.9.2007 kl. 19:08

13 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Skynsamlegar fordomalausar umrædur er thad sem tharf. Kvedja fra Oxford.

Ágúst H Bjarnason, 28.9.2007 kl. 21:35

14 Smámynd: Anton Þór Harðarson

Öryggisráð SÞ er algerlega gagnslaust fyrirbrigði, þannig samansett að það skiptir engu máli hvar í heiminum eitthvað kemur uppá, alltaf er einhver þjóð sem hefur neitunarvald vinveitt viðkomandi landi

Anton Þór Harðarson, 28.9.2007 kl. 22:08

15 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Það er reyndar ekki rétt að Vesturlandaþjóðir hafi ekkert gert. Ein þjóð, Bandaríkin hafa sett algjört viðskiptabann á Burma. Það er hins vegar gagnslaust meðan ESB þjóðir, Kína og fleiri láta sig hafa það að moka peningum í þessa glæpamenn sem eru þarna við völd.

Þó Bandaríkjamenn hafi klúðrað mörgu í alþjóðasamskiptum, sýna þeir þó í þessu máli siðferðilega yfirburði yfir önnur lönd.

Finnur Hrafn Jónsson, 30.9.2007 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 762134

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband