Fimmtudagur, 7. febrúar 2008
Bloggað í 10 ár ...
Fyrir áratug, 1. febrúar 1998, fann bloggarinn hvöt hjá sér til að blogga um mál sem honum var hugleikið. Vandamálið var að enginn blogg-vettvangur eins og Moggabloggið var fyrir hendi, þannig að búin var til vefsíða af fingrum fram.
Aðdragandinn var góður göngutúr í fallegu veðri á nýársdag árið 1998. Leiðin lá úr Garðabænum yfir hraunið upp í Heiðmörk að Maríuhellum. Hugurinn reikaði víða en staldraði við nýársávörp forsætisráðherra og forseta Íslands. Þeir voru svo innilega ósammála varðandi meintar loftslagsbreytingar af mannavöldum að engu tali tók. Á náttborðinu hafði verið tímaritið Sky and Telescope (apríl 1997) með grein sem nefndist "Sunspots that Changed the World" eftir Dr. Bradley E. Schaefer prófessor.
Greinin í Sky and Telescope byrjaði á hugleiðingum um það er Eiríkur rauði fann Grænland árið 981 og lokkaði þangað með fallegu nafni landsins 25 skip með Íslendingum til að hefja búsetu þar árið 985. Greinin fjallaði einnig um landafund Leifs heppna í vestri árið 1000 og nokkuð ítarlega um byggð norrænna manna á Grænlandi. Höfundurinn virtist vera vel fróður um sögu norrænna manna.
Hvað varð um þessa byggð er ekki ljóst, en vitað er að veðurfar var óvenju hagstætt frá um 1000-1300, en fór þá snögglega kólnandi. Tímabilið sem fór í hönd hefur verið kallað "litla ísöldin" og hafði kólnandi veðurfar áhrif víða um heim næstu aldir. Svo mikill var kuldinn að áin Thames í Englandi var oft ísi lögð.
Hvað varð um þessa byggð er ekki ljóst, en vitað er að veðurfar var óvenju hagstætt frá um 1000-1300, en fór þá snögglega kólnandi. Tímabilið sem fór í hönd hefur verið kallað "litla ísöldin" og hafði kólnandi veðurfar áhrif víða um heim næstu aldir. Svo mikill var kuldinn að áin Thames í Englandi var oft ísi lögð.
Greinin fjallaði sem sagt um áhrif breytinga í sólinni á veðurfar. Í göngutúrnum flugu margar hugsanir um hugann. Greinin hafði vakið áhuga minn, en nýársávörpin urðu til þess að í göngutúrnum ákvað ég að setja á blað það sem ég þóttist vita, og það sem ég ætlaði mér að fræðast um á næstu vikum. Teningnum var kastað. Réttum mánuði síðar, 1. febrúar 1998, var komin vefsíða á netið sem kallaðist "Er jörðin að hitna? Ekki er allt sem sýnist". Vefsíðan var ekki löng í byrjun, en smám saman stækkaði hún og stækkaði þar til hún náði yfir 9 kafla.
Vefsíðan er ennþá hér, ef einhver skyldi vilja bera hana augum. Það verður að viðurkennast að henni hefur ekki verið haldið við, þannig að margar krækjur eru dauðar. Takið eftir að í greininni "§ 16. Ítarefni í öðrum köflum vefsíðunnar..." neðarlega á inngangssíðunni eru krækjur að öðrum köflum vefsíðunnar það sem fjallað er ítarlegar um ýmislegt sem bloggarinn var að pæla í. Þess má geta í lokin, að í upphafi var öll síðan skrifuð með ritlinum Notepad og html-kóðuð handvirkt
"Bloggað í 10 ár..." stendur í fyrirsögninni. Jæja, það er kanski aðeins orðum aukið...
Síðan frá 1998: Er jörðin að hitna? Ekki er allt sem sýnist.
Töluvert yngri síða: Öldur aldanna (Er jörðin að kólna?)
"The important thing is to not stop questioning." - Albert Einstein
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Menning og listir, Stjórnmál og samfélag, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 09:29 | Facebook
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 66
- Frá upphafi: 764863
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Til hamingju með afmælið og takk fyrir málefnaleg og fræðandi skrif.
Ásgeir Kristinn Lárusson, 7.2.2008 kl. 08:36
Tíu ár...nokkuð gott og líka gaman að einhver svona fróður og vel þenkjandi maður skuli nenna að uppfræða þjóð sína. Til hamingju með þessa tíu ára vinnu.
Rúna Guðfinnsdóttir, 7.2.2008 kl. 09:23
Man vel eftir þessari síðu. Þetta var lengi vel eina efnið á íslensku um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar af mannavöldum...
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 09:40
Þessi ágæta síða vakti vissulega athygli mína á sínum tíma. Þessar vangaveltur um áhrif sólarinnar er þarft innlegg um hvað það er sem veldur mestu loftslagsbreytingunum og vissulega er ekki allt sem sýnist. Ætli það verði ekki skiptar skoðanir um þessi mál í þó nokkurn tíma en í dag ýmist spáð lítilli ísöld að völdum sólarinnar eða ofurhlýnum af völdum gróðurhúsaáhrifa. Ég held reyndar að úr þessu fáist ekki skorið fyrr en eftir þó nokkur ár eða þangað til eitthvað afgerandi gerist, en á meðan höfum við allavega eitthvað til að skrifa um.
Emil Hannes Valgeirsson, 7.2.2008 kl. 10:20
Þetta er vel af sér vikið hjá þér. Gamla síðan þín hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og fylgdist ég reglulega með henni. Enn kíki ég meira að segja stundum þarna inn, tja svona til að athuga hvort votir útiskór af nýju efni skyldu liggja á forsíðugólfinu.
Síðan þín rataði oft í tenglasöfn annarra síða og er þar sum staðar enn. Í það minnsta á vinsælli vefsíðu sem ég stýri, hún er orðin þar eins konar heiðursfélagi. Svo er bara að vona að hún lifi í hundrað ár, hið minnsta, í viðbót og verði þá verðugt verkefni fyrir vef-fornaldarfræðinga
Benóný Jónsson (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 21:02
Takk fyrir athugasemdirnar. Það er gaman að heyra að einhverjir muna eftir þessari gömlu síðu sem eiginlega óx mér yfir höfuð
Ágúst H Bjarnason, 7.2.2008 kl. 22:12
Til hamingju með áfangann og þakka þér skemmtileg og fræðandi skrif!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.2.2008 kl. 22:29
Takk fyrir færsluna og til hamingju með afmælið. Hafði ekki hygmynd um þessa síðu. Stjórnuglópakveðjur til þín.
Ásdís Sigurðardóttir, 7.2.2008 kl. 23:43
Til hamingju með það.
Þú ert að mínu áliti fyrirmyndar vísindamaður og alþýðufræðari.
Með kveðju,
Baldur F.
Baldur Fjölnisson, 8.2.2008 kl. 00:03
Alþýðufræðari er flott orð yfir þig
congrats
Guðríður Pétursdóttir, 8.2.2008 kl. 00:16
Þessa gömlu síðu þína seifaði ég á sínum tíma á tölvuna mína og þar er hún enn.
Sigurður Þór Guðjónsson, 8.2.2008 kl. 01:28
Til hamingju með afmælið.
Skemmtilegt og fræðandi blogg.
Fjarki , 8.2.2008 kl. 10:46
Teljari bloggsíðunnar rúllaði yfir 100.000 rétt eftir að þessi pistill var settur á
vefinn
Ágúst H Bjarnason, 9.2.2008 kl. 18:42
Til hamingju með afmælið, þessi gamla síða þín var upphafið að því að ég fór að kynna mér betur upplýsingar um hlýnun jarðar. Vonandi verður framhald hennar hér á blogginu áfram jafn fróðlegt og skemmtilegt og það hefur verið til þessa.
Finnur Hrafn Jónsson, 11.2.2008 kl. 02:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.