Undurfögur mynd af Sombrero stjörnuþokunni

Sombrero M104

 

Sumar myndir eru það fallegar að þær beinlínis hrópa á mann. Þessi góða mynd af Sombrero stjörnuþokunni eða vetrarbrautinni er ein slíkra. Sombrero er annars nafn á mexikanska hattinum velþekkta.

Sombrero eða Messier 104 er í Virgo stjörnumerkinu og er í 28 milljón ljósára fjarlægð. Myndin er tekin í maí-júni 2003 með Hubble stjörnusjónaukanum sem er á braut umhverfis jörðu. Þetta er stjörnumynd dagsins á APOD síðunni. 

Myndin opnast í fullri skjástærð í sérstökum glugga ef smellt er á hana tvisvar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

falleg mynd

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 16:11

2 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Váááá...það er eiginlega það eina sem ég get sagt...stórfenglegt...

Rúna Guðfinnsdóttir, 8.3.2008 kl. 16:45

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ótrúlega smart mynd. 

Marinó Már Marinósson, 8.3.2008 kl. 17:33

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegur hattur, ekki spurning. Kær kveðja og góða helgi. 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 21:24

5 identicon

Sæll Ágúst                                                                                                                                                           

Myndin er stórfengleg og undarlegt að hugsa um að svona hafi stjörnuþyrpingin litið út fyrir 28 milljónum ára. Ég sá á Sombrero síðunni að í miðjunni á henni væri risa svarthol með massa um billjón sólna eins og okkar sólar og að rauðvikið  samsvaraði 1024km.s. Ef ég skil þetta rétt þá fjarlægist þyrpingin okkar sólkerfi um 3686400 km. á klukkustund. Þessar víddir alheimsins eru leikmanni eins og mér nánast óskiljanlegar en leiða samt til ýmisskonar hugleiðinga eins og t.d. hvaða fyrirbæri eru svarthol, eru þau raunverulega til eða eru þau aðeins reikniskekkja stjarnfræðinga. Við vitum að margar kenningar vísindamanna hafa ekki staðist tímans tönn með aukinni tækni og þekkingu. Og hvað hefir gerst þarna á 28 milljón árum?. Er svartholið, sé það til, búið að gleypa þyrpinguna eða hefur hún rekist á aðrar þyrpingar og fuðrað upp í stórkostlegum geimblossa, sem sést frá jörðinni eftir 28 milljónir ára? Ég  er líka að velta fyrir mér hvað þessi þyrping sem er 50 þúsund ljósár í þvermál skyldi innihalda mörg sólkerfi sem gætu fóstrað einhverskonar líf? Spyr sá sem ekki veit. 

                 Kær kveðja.   

                               Þorvaldur Ágústsson.
 

Þorvaldur Ágústsson (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 22:50

6 Smámynd: Púkinn

já, flott er þetta

Púkinn, 9.3.2008 kl. 13:18

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Frábær mynd, hún er komin á Desktoppið hjá mér.

Hrannar Baldursson, 9.3.2008 kl. 13:23

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Þorvaldur. Þetta eru skemmtilegar pælingar hjá þér.  Með hjálp svona mynda og ímyndunaraflsins getur maður ferðast í huganum um himingeiminn. Þá lætur maður ekki nokkur ljósár til eða frá tefja sig

Ein af mínum uppáhalds vefsíðum er Astronomy Picture of the Day (APOD). Þar er á undirsíðum óhemju mikill fróðleikur, m.a um svarthol. Ég er með í tölvunni hjá mér bráðsnjallt lítið forrit sem setur upp APOD mynd dagsins sem bakgrunn á desktop. Þannig birtist ný mynd á hverjum morgni. Forritið er ókeypis hér

"Ímyndunarafl er mikilvægara en þekking. Þekking er takmörkuð en ímyndunaraflið spannar alheiminn" - Albert Einstein.

Ágúst H Bjarnason, 9.3.2008 kl. 15:36

9 Smámynd: Dísa Dóra

vá hvað þetta er flott mynd

Dísa Dóra, 9.3.2008 kl. 16:16

10 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Stórkostlegt, gaman að hafa þessa sem skjámynd.

Takk Ágúst. 

Kolbrún Baldursdóttir, 9.3.2008 kl. 20:42

11 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sæll.  Ég get ekki ræst upp APOD forritið. Er það kannski of gamalt, en það er síðan 2005?

Marinó Már Marinósson, 10.3.2008 kl. 09:49

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Marinó.

Ég prófaði að setja forritið aftur inn hjá mér (fjarlægði reyndar ekki inn það gamla), og virtist það ganga eðlilega. Ég smellti einfaldlega á Download APOD og þá hlóðst niður skrá sem kallast apod_inst.exe. Ég vistaði skrána á desktop og birtist hún þar sem brúnn Satúrnus með grænum hringjum. Þegar ég ræsi þessa skrá fer í gang setup ferli sem í lokin biður um að tölvan sé endurræst. Eftir endurræsingu á að sjást íkon sem er þessi brúni Satúrnus með grænu hringunum við hliðina á klukkunni neðst til hægri á skjánum. Þá ætti forritið að vera orðið virkt, en með því að hægrismella á það er m.a. hægt að komast í Preferences og breyta stillingum ef maður vill.

Ég er með Windows XP. Ég tók eftir að Winzip fór í gang í byrjun til að afþjappa skrána (sýndist það amk.). Spurning hvort vírusvörn sé að blokkera ferlið þar sem um .exe skrá er að ræða?  Ég hef sett þetta forrit í 3 tölvur og alltaf gengið hnökralaust.

Ágúst H Bjarnason, 10.3.2008 kl. 12:42

13 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Helst langar mig að hverfa inní svona myndir, er ég sé þær...;)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.3.2008 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 762130

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband