Gore áhrifin brugðust ekki á Íslandi - Allt hvítt!

1207681634Í gærkvöldi um svipað leyti og Al Gore yfirgaf landið fór heldur betur að snjóa, og nú á miðvikudagsmorgni er meira en 15 sentímetra snjóþekja á höfuðborgarsvæðinu.
 
Alveg er þetta makalaust.  Hin vel þekktu Al Gore áhrif sem fjallað var um s.l. mánudag, daginn sem Gore kom fljúgandi á einkaþotu sinni, brugðust ekki á Íslandi frekar en annars staðar.
 
Hörku vetur um miðjan apríl.  Hvar eru blessuð gróðurhúsaáhrifin? Einhvers staðar hljóta þau að fela sig. Er ekki móðir náttúra að minna á sig? Nú hefur lofthjúpur jarðar ekki hlýnað í áratug og 3110 mælibaujur um allan heim segja okkur að kólnað hafi í hafinu síðastliðin fimm ár. Hvað er á seyði? Voru gróðurhúsaáhrif af mannavöldum bara plat? Var sólin bara svona ofur virk undanfarna áratugi og er hún núna að skríða undir sæng til að hvíla sig? Megum við búast við kólnun á næstu árum og áratugum?
 
Myndin er tekin að morgni 9. apríl. Á borðinu mældist rúmlega 15 cm snjór.

 
 
Hvað er þá herra Al Gore að meina með því að endasendast um heiminn? Er þetta allt tómur misskilningur hjá karlinum, eða allt með ráðum gert? Það er auðvitað gríðarmikill business í kringum sölu á kolefniskvótum. Ekki á hann hlut í slíkum viðskiptafyrirtækjum? Er hann nokkuð kolefniskvótagreifi?
 
Myndbandið hér fyrir neðan sýnir baráttu við hlýnun jarðar. Ætli Al Gore hafi leyst vind á Íslandi? 
 
 
Myndbandið sýnir kolefnisgreifingjann að störfum við að kæla jörðina. 
 
The Al Gore Effect 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Kannski er barátta Al Gore bara strax farin að skila árangri :-)

Emil Hannes Valgeirsson, 9.4.2008 kl. 11:17

2 identicon

Já, lýðskrumarinn Gore hefur strax haft áhrif til kólnunar! 

Það er merkilegt með umhverfissinna og dómsdagsboðara, þeir benda alltaf á vandamál, en geta aldrei komið með neinar lausnir á þeim, sbr. Gore o.fl.

Gunnar Afdal (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 11:27

3 identicon

Jón Frímann: Al Gore kom nú ekki við á norðurlandi 

Ágúst: Al Gore kom fljúgandi með farþegaflugvél er það ekki? 

Bjarni (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 16:58

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hvað segir þú Bjarni. Kom hann með farþegaþotu?  Voru það bara Ingibjörg og Geir sem voru að spóka sig í einkaþotu?

Ágúst H Bjarnason, 9.4.2008 kl. 17:03

5 identicon

Það getur vel verið að jörðin sé ekki að hlýna, eða að það sé ekki af mannavöldum (þó um það sé reyndar consensus meðal meirihluta vísindamanna í heiminum). Hins vegar eru það EKKI rök með því (eða gegn þessari hlýnun sem sagt), að það komi óvenju kaldir dagar, vikur og mánuðir á ýmsum stöðum jarðar, heldur eru það rök MEÐ hlýnunarkenningum. Þegar hiti jarðar breytist, hvort sem hann hækkar eða lækkar, sjáum við breytingar á veðurfari. Veðurkerfi, svæði, lönd, straumar, osfr. hafa keðjuverkandi áhrif hvert á annað.

Þeir sem segja að jörðin sé að hlýna, og að það sé af mannavöldum, eru AÐ SJÁLFSÖGÐU AÐ TALA UM MEÐALHITA!!!! Hvers konar rugl er þetta að tala um kalda daga í Reykjavík??!! Hækkun á meðalhita sem þessir sömu benda á (og ég tek ekki afstöðu til hér) er þar að auki brot úr gráðu, kannski rétt yfir gráðu, yfir margra ára tímabil!! Halda menn þá að með hlýnun jarðar hækki hiti jafnt og þétt allsstaðar á Íslandi, dag frá degi??? Eða allsstaðar í heiminum?

Að lokum: Al Gore er kannski athyglissjúkur, hagnast kannski á þessu, ferðast kannski um með mengandi hætti osfr., en það er hrottaleg villa að halda að það hafi eitthvað með sannindi kenninga per se. Það dregur í mesta lagi úr trúverðugleika hans, en einungis hans. Heldur einhver að Al Gore sé upphafsmaður þessa kenninga??? Minn árgangur las um þetta í menntaskóla, sem sagt fyrir 15 árum! Þúsundir vísindamanna um allan heim hafa unnið að rannsóknum á þessu í tugi ára!! Al Gore kemur þessu bara ekkert við...!!!

..

Benedikt (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 20:43

6 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Benedikt: Gróðurhúsaáhrifin eru ekkert nýtt fyrirbæri. Þau hafa verið fyrir til í hundruð milljónir ára. Án þeirra væri ekkert líf á jörðinni, því þá væri meðalhiti lofthjúps jarðar mínus 15 gráður í stað plús 15 gráða. Allt blessuðum gróðurhúsaáhrifunum að þakka.

Gore áhrifin svikölluðu standa yfirleitt ekki yfir nema í svosem einn dag í senn og eðli málsins samkvæmt mjög staðbundin .   Auðvitað eru Gore áhrifin ekki raunveruleg, heldur eins konar gálgahúmor.

Það er svo annað mál, að hlýnunin sem varð á síðustu öld virðist hafa stöðvast um aldamótin, hvað sem því veldur. Hvort þetta er bara hik eða eitthvað varanlegt á eftir að koma í ljós. Hugsanlega hlýnar meira eftir fáein ár, en við skulum vera viðbúin því að það kólni. Jafnvel töluvert.  

Ágúst H Bjarnason, 9.4.2008 kl. 20:55

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Eigum við ekki bara að vera ánægð með að hann ætli ekki að bjóða sig fram sem forseta.  Það væri dálaglegur andskoti, eftir þessu að dæma.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 9.4.2008 kl. 21:11

8 Smámynd: Haukur Nikulásson

Við sem þekkjum aðeins þróun tölvumála verðum alltaf svolítið skeptísk á framsögn manns sem telur sig hafa fundið upp internetið!

Haukur Nikulásson, 9.4.2008 kl. 21:16

9 identicon

Ágúst. Ég veit vel hvað gróðurhúsaáhrif gera hér, ég geri mér einnig grein fyrir því hvað gerist ef efnasamsetning í lofthjúp breytist!!

Ég skil vel að þetta með Al Gore áhrif er gálgahúmor!!

Ég vildi hins vegar benda þér á eftirfarandi, 1) köld tímabil á óvenjulegum tímum, á óvenjulegum svæðum (snjór í Argentínu t.d.) eru ekki rök gegn hlýnun jarðar, heldur rök með breytingum (en þá alls ekki endilega þannig að MEÐALHITI sé að lækka). Í þessu sambandi skrifar þú í færslunni:

"Hörku vetur um miðjan apríl.  Hvar eru blessuð gróðurhúsaáhrifin? Einhvers staðar hljóta þau að fela sig. Er ekki móðir náttúra að minna á sig?"

2) það að hæða Al Gore hefur ekkert með hlýnun jarðar að gera. Ég hef ekki þörf fyrir að verja Al Gore...vil bara koma því að að það eru ekki rök gegn þessum kenningum.

Kveðja.

Benedikt (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 21:50

10 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Upprifjun ... 

Telltale signs are everywhere ... yada, yada, yada ... Climatological Cassandras are becoming increasingly apprehensive ...

Skemmtilega absúrd grein úr Time frá árinu 1974 um komandi ísöld.

http://www.time.com/time/magazine/article/0,9171,944914,00.html

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 22:38

11 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hugmynd fyrir einhvern framtakssaman blaðamann ...

Fara í Kringluna og leggja eftirfarandi spurningu fyrir 100 manns ...

"Tvívetnisoxíð er um 98% gróðurhúsalofttegunda og talið alvarleg ógnun við framtíð mannkynsins og annars lífs á jörðinni. Ert þú fylgjandi að dregið verði úr framleiðslu þess td. með kvótaúthlutunum?"

Fimmþúsund kall segir að amk. 80% segi já enda hefur skólakerfið lengi verið skipulega forheimskandi skv. meðvitaðri stefnu og því flestir stjórnmálamenn og fjölmiðlar og aðrir helstu veruleikahönnuðir almennings smám saman orðið allsendis heiladrepandi.

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 22:55

12 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Baldur Fjölnisson fer með rangt mál þegar hann segir að tvívetnsisoxíð (CO2) sé 98% gróðurhúsalofttegunda.  Vatnsgufa er lang mikilvægasta gróðurhúsalofttegundin en CO2 þar á eftir.  Vatnsgufa ásamt skýjum valda um 80% allra gróðurhúsáhrifa á jörðinni.  Sjá t.d. http://web.archive.org/web/20070624015308/http://www.realclimate.org/index.php?p=142

ESv 

Einar Sveinbjörnsson, 9.4.2008 kl. 23:17

13 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Afsakið, ég átti við hið mjög svo vinsæla efni H20 og veðurfræðingurinn hefur eitthvað misskilið það, og það er vafalaust minni ruglingslegu framsetningu að kenna.

Baldur Fjölnisson, 10.4.2008 kl. 00:11

14 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Whatever, þetta var einmitt pointið. Þú skellir fram einhverju á borð við tvívetnisoxíð sem minnir á orðið koldíoxíð og heiladrepandi veruleikahönnuðir hafa leikið fólk þannig að það bregst alveg sjálfvirkt við stikkorðum. Síðan hafa þessar stýrðu rollur smám saman orðið menntamálaráðherrar og það sem áður var á barnaskólastigi kallast núna framhaldsskólar og brandarar sem eru hiklaust kallaðir háskólar hefðu varla dugað sem menntaskólar fyrir 40 árum. Afurðir þessa útþynnta og heiladrepandi kerfis sem fótósjopp og mogginn ljúga einhvern veginn á þing þurfa núna aðstoðarmenn - mjög svo skiljanlega.

Baldur Fjölnisson, 10.4.2008 kl. 00:34

15 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hér koma eituráhrif þessa bansetta efnis Dihydrogen Monoxíðs  eða tvívetnisoxíðs betur fram, Það eru ekki svo fáir sem hafa látið lífið vegna þess, svo maður minnist nú ekki á áhrif þess á umhverfið. Er ekki rétt að láta náttúruna njóta vafans og banna þetta efni alfarið?

Ágúst H Bjarnason, 10.4.2008 kl. 06:10

16 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Baldur, átt þú ekki við eitthvað svipað því sem fram kemur hér á YouTube 

Ágúst H Bjarnason, 10.4.2008 kl. 06:15

17 identicon

Benedikt, eg er sammala ther en legg til ad sleppa upphropunarmerkjunum, thau koma ut eins og madur se ad hropa a vidkomandi adila.

Hermann Ingjaldsson (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 08:43

18 identicon

Takk fyrir þessa ábendingu Hermann. Ég var reyndar að reyna að hrópa, en þó vil ég síst vera ókurteis og biðst hér með afsökunar. Ég verð bara svo æstur... :)

Fyrst ég er byrjaður að skrifa vil ég koma einhverju skemmtiefni að, en ekki endilega um þetta efni.

Píþagóras (Milotes að ég held, og suður Ítalíu), Lao Tze (Kína) og Búdda (Indland) voru uppi á nær sama tíma. Nöfn þeirra hafa öll svipaða merkingu, eða uþb. "Sá Upplýsti". Þeir lögðu allir til að leið hamingjunnar lægi í gegnum sjálfsskoðun. Leið að sjálfsskoðun er hægt að kenna, en sjálfsþekkingin sjálf er hafin yfir skynsemi og rök og því ekki hægt að lýsa fullkomlega. Sjálfsþekkingu verður að upplifa, eðli málsins samkvæmt.

Austurlenskir heimsspekingar á öldum fyrir Krist voru flestir sammála um að allt væri eilíft. Margir höfðu það sem fyrstu forsendu, sem síðan var byggt á. Allt er eilíft, en tekur sífelldum breytingum. Ef allt er eilíft, og ef Guð er til, þá hlýtur Guð að vera eilífur. Ef Guð er eilífur, og ef Guð skapaði heiminn, þá hefur Guð verið til að eilífu!!, áður en sköpun hófst. Mörgum finnst það mótsagnakennt og óeðlilegt.

Góðar stundir.

Benedikt (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 14:48

19 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Einar. Tvívetnisoxíð = H2O = Dihydrogen Monoxíð = Gvendarbrunnavatn.     

Ekki koltvísýringur CO2    

Ágúst H Bjarnason, 10.4.2008 kl. 18:05

20 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hafþór. Þessi færsla er skrifuð í hálfkæringi af gefnu tilefni og verður að skoðast sem slík. Ég hélt að gálgahúmorinn hefði skinið í gegn

Ágúst H Bjarnason, 11.4.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 762163

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband