Refurinn rófulausi og Móri vinur hans. Myndir.


Síðastliðinn fimmtudag fékk ég óvenjulega heimsókn. Tveir vingjarlegir refir. Mér varð litið út um gluggann klukkan hálf átta að morgni og sé þá fallegan gráan ref koma röltandi. Ég fór út vopnaður Canon EOS 400D myndavél með 28-300mm Tamron linsu. Refurinn horfði á mig góða stund og stillti sér upp fyrir myndatökuna í um 10 metra fjarlægð alls óhræddur. Skömmu síðar kom vinur hans sem var dökkur á brún og brá. Líklega dökk-mórauður. Hann var ekki alveg eins ófeiminn, en gaf sér samt tíma svo ég gæti náð myndum.

 

(Með því að smella tvisvar til þrisvar á mynd má sjá stærri útgáfu).

 

 

 

 Mynd 2

 

 

 Mynd 3

 

 

 Mynd 4. Rófulaus.

 

 

 Mynd 5. Móri lætur sjá sig.

 

 

 Mynd 6



 Mynd 7



 Mynd 8. Með steikina í gogginum?


 

 Mynd 9

 

 

 Mynd 10



 Mynd 11. Kominn tími til að kveðja.

 

 

Refalitir eftir Pál Hersteinsson. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meiriháttar myndir og gaman að fá svona myndefni uppí hendurnar:)

Leyfist mér að spyrja hvar þetta var?

Þeir koma trúlega aftur eftir meiri steik ekki satt þannig að það má búast við fleiri myndum eða hvað? :)

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 12:05

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mögnuð myndasería, gaman að komst í svona myndefni og með réttu græjurnar,  hvað var rebbi með í matinn? sástu það?  kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 12:15

3 Smámynd: Bumba

Alveg frábært mikið er ég þakklátur fyrir að fá að njóta þessa yndislegu mynda. Með beztu kveðju.

Bumba, 4.8.2008 kl. 12:35

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Myndin er tekin í Bláskógabyggð skammt frá Geysi. Þar er stórt votlendissvæði sem kallast Almenningur. Líklega halda refirnir til þar.  Ég gæti trúað að "steikin" sé fugl sem hann náði sér í fyrir framan nefið á mér, en ég sá það ekki nógu vel.

Ágúst H Bjarnason, 4.8.2008 kl. 14:14

5 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ásgeir þetta eru ekki refir, er þetta ekki "skuggabaldur" og "skoffín" mér sýnist það ? - Sjáðu þennan rófulausa hve háfættur hann er og liturinn, þetta er ekki íslenskur refur. - Þetta er líkast afkvæmi hunds og tófu. - Og hinn er líkast  afkvæmi minks og tófu. Hvað heldur þú?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 4.8.2008 kl. 15:21

6 Smámynd: Sólveig Klara Káradóttir

Flottar myndir

Sólveig Klara Káradóttir, 4.8.2008 kl. 18:19

7 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

fallegar myndir. Hvernig skyldi greyið hafa misst rófuna? Mér sýnist hann líka frekar horaður.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 4.8.2008 kl. 18:51

8 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Eins dauði er annars brauð. Eins mikill dýravinur og ég þykist vera, þá sé ég ekkert athugavert við að dýrin útvegi sér lifibrauð. Þau fara ekki að ramba í Góðan Kost hjá Sollu vegna áhuga um vernd í ríki náttúrunnar

Yndislegar myndir. Ég fæ smá sting í hjartastað að sjá svona falleg dýr, úti að spóka sig eins og ekkert sé eðlilegra    Þeir hafa fundið góða strauma frá þér og þ.a.l. óhræddir.

Rúna Guðfinnsdóttir, 4.8.2008 kl. 21:05

9 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Fallegar myndir og falleg dýr. kær kvedja Sólveig

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 4.8.2008 kl. 21:27

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Lilja. Samkvæmt þjóðtrúnni eru skuggabaldur og skoffín afkvæmi tófu og kattar. Það eru þó það fjarskyld dýr að þau geta varla átt afkvæmi saman.  Annað mál gildir hugsanlega um blending af refi og hundi. Ég hef bara ekki hugmynd um hvort það er til.

Fyrir um ári sá ég ref á sömu slóðum sem mér fannst líkjast meira hundi en ref. Hann var með stutt trýni og nánast flatt andlit. Fyrir tveim árum var þarna alhvítur refur um sumar. Hugsanlega albínói.

Ágúst H Bjarnason, 5.8.2008 kl. 11:46

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Sæll Ásgeir ! - Þegar ég var ung heyrði ég talað um afkvæmi refs og kattar, - hunds og tófu, og einnig var talað um afkvæmi minks og kattar, og jafnvel minks og refs. -  Ég hef séð mórauða refi, og einnig hvítan ref, bæði að sumri og vetri,  og ég hef líka séð silfurref, - en svona refi eins og á myndunum hér fyir ofan hef ég aldrei séð. - En það var nú sagt við mig um daginn að silfurrefurinn sem ég sá hafi líklega sloppið af refabúi, og get ég vel trúað að það sé rétt, því faðir minn sagði það líka fyrir um 50 árum síðan, þegar við sáum saman silfurref á Holtavörðuheiðinni. - En skuggabaldur er afkvæmi refs og kattar, - skoffín afkvæmi hunds og tófu.  - Svo voru einhver fleiri nöfn sem ég man bara ekki í augnablikinu en þau eru fleiri nöfnin yfir svona blendingsafkvæmi. - allavega samkv. þjóðtrúnni.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.8.2008 kl. 21:58

12 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Af hverju kallar konan þig Ásgeir, varla heitir þú Ágúst.....en kallaður Ásgeir? 

Rúna Guðfinnsdóttir, 6.8.2008 kl. 15:41

13 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það áttu að fylgja kveðjur inn í kvöldið  og nóttina....Hippie

Rúna Guðfinnsdóttir, 6.8.2008 kl. 15:42

14 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Rúna. Takk fyrir kveðjuna.   Hún Lilja bloggvinkona veit vel hvað ég heiti. Þatta er bara sísvona þegar puttarnir skrifa annað en maður huxar .   Þetta kemur iðulega fyrir mig.  

Ég sakna þess  reyndar að ekki skuli vera hægt að leiðrétta og lagfæra athugasemdir sem maður skrifar hjá öðrum. Það kæmi sér stundum vel.

Ágúst H Bjarnason, 6.8.2008 kl. 15:49

15 identicon

Flottar myndir.En rebbi er skrítinn skottlaus

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 20:15

16 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það er sko rétt, mikil ósköp væri gott að geta lagað klaufalegar og vitlaust skrifaðar athugasemdir  

Rúna Guðfinnsdóttir, 7.8.2008 kl. 00:22

17 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ágúst fyrirgefðu ég skil þetta ekki,  ég sé að í báðum athugasemdum mínum hef ég ruglað nafni þínu. - Ég bið þig innilega afsökunar, og bið þig líka afsökunar á því að ég skuli ekki hafa tekið eftir þessum klaufaskap.  Fyrr en ég las atugasemdina hennar Rúnu. - Þakka þér fyrir Rúna. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.8.2008 kl. 02:15

18 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Flott myndir hjá þér.  

Það var einu sinni skottlaus refur heima þar sem ég ólst upp.  Það hafði verið skotið á hann þannig að skotið datt af en rebbi slapp.   

Þetta dýr sem þú sást og líktist hundi gæti hafa verið búrdýr? Ég hef lesið einhversstaðar að erfðafræðilegur þröskuldur komi í veg fyrir að refir og hundar geti átt afkvæmi saman ( kallað skoffín eða skuggabaldur).

Marinó Már Marinósson, 7.8.2008 kl. 23:46

19 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Marinó.  Ég rakst á ágæta íslenska samantekt um refi á Wikipedia. Þar er fjallað um hin ýmsu afbrigði og hvernig þau geta stundum blandast. Neðst er svo tilvísun í áhugaverð ítarefni. Sjá Heimskautarefur.

Myndin er þaðan. 

 Tófa í sumarbúningi á Svalbarða

Ágúst H Bjarnason, 8.8.2008 kl. 07:14

20 identicon

Afar skemmtilegt. Fer saman heppni, góð tæki og snöggur ljósmyndari.

Gaman að fá að sjá þessar skemmtilegu myndir. Takk fyrir það.

Óli Ágústar (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 762134

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband