Sherry-trifli uppskrift...

 

 

 

image001_761137.jpgVinsćlasti desertinn í fjölskyldunni er Sherry triffli.  Ómissandi á Ađfangadag og Gamlársdag.

Sherry trifli er mjög ţekktur ábćtir og til í mörgum útgáfum eins og sést ef  „sherry trifle“ er sett í Google leitarvélina. Um 90.000 tilvísanir birtast.

 

Ţessi uppskrift hefur nokkra sérstöđu. Amma mín Sigríđur var ađ hluta alin upp í Bandaríkjunum í lok 19. aldar og kom međ ţessa uppskrift ţađan. Hún var dóttir Jóns Ólafssonar ritsjóra og skálds, ţess er orti m.a. Máninn hátt á himini skín. Mađur Sigríđar og afi minn var Ágúst H. Bjarnason prófessor í heimsspeki. Líklega er réttara ađ uppskriftin hafi komiđ međ langömmu minni, Helgu Eiríksdóttur móđur Sigríđar, en fjölskyldan fluttist heim 1899. Ţessi réttur hefur alltaf veriđ mjög vinsćll hjá afkomendum Sigríđar og Ágústar, og hjá mögum alveg ómissandi á stórhátíđum. Grunnuppskriftin er alltaf eins, en útfćrslan getur veriđ mismunandi. Neđst er ţó alltaf blanda af sherry, makkarónum, sultu og súkkulađibitum. Miđlagiđ er eins konar ísblanda eins og notuđ er í heimagerđan ís en blönduđ smá matarlími. Efsta lagiđ er ţunnt lag af rjóma. Efst er svo skreytt međ t.d. rifsberjahlaupi, muldu suđusukkulađi og öđru sem matar-listamanninum dettur í hug. 

 

 

Í eina skál:

 

3 eggjarauđur
2 ţeyttar eggjahvítur
1 peli rjómi auk rjóma sem fer ofan á. Líklega tćpir 2 pelar alls.
1 msk sykur
2-3 blöđ matarlím
Sherry
Muliđ suđusúkkulađi
Sulta (jarđaberja eđa hindberjasulta í neđsta lagiđ, rifsberjasulta í skreytingu efst).
Makkarónur.

 

 

Makkarónur og muliđ súkkulađi í botninn, og sulta eftir smekk. Sherrý (a.m.k. 50 g, sjá aths.). Makkarónurnar ađeins muldar, súkkulađiđ og sultan sett saman viđ sherrýiđ. Ţetta ađeins hrćrt međ gaffli.

Eggjarauđurnar hrćrđar međ sykri til ađ blandast saman. Eggjahvítur ţeyttar, síđan rjómi ţeyttur, og ţessu blandađ saman.

2-3 blöđ matarlím vćtt í köldu vatni og kreist út í og sett í pott sem er hitađur í heitu vatni.

Matarlíminu er síđan hellt í hrćruna mjög mjórri bunu og hrćrt varlega svo ekki kekkist.  Látiđ stirđna í kćliskáp.

Síđan lag af hvítum rjóma efst og skreytt međ rifsberjahlaupi og röspuđu suđusúkkulađi. 

 

 

 ---

 

Ath. Ţetta er uppskrift fyrir eina stóra skál. Sjálfsagt er betra ađ nota tvćr skálar ţannig ađ pláss verđi fyrir rjómann í efsta laginu. Yfirleitt voru búnar til tvćr skálar og veitti ekki af   :-)

Oftast var sett töluvert meira af sherry en stendur í uppskriftinni, enda ţótti flestum ţađ sem á botninum var langbest. Börnin voru ţó oftast hrifnari af efri lögunum.

Ţađ sem er vandasamast er ţegar mararlíminu er hellt í hrćruna. Ţađ ţarf ađ gerast mjög varlega til ađ forđast kekki. Ađ öđru leyti er mjög auđvelt ađ útbúa ţennan ljúffenga desert.

 

áhb



 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggiđ

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverđ

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverđiđ í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Nóv. 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband