Monckton lávarður og Bolton fyrrv. sendiherra BNA hjá Sameinuðu þjóðunum í áhugaverðu spjalli um loftslagsmál hjá FOX...

Hinn eldklári Monckton lávarður og John Bolton fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna voru í spjallþætti Glenn Beck á Fox sjónvarpsstöðinni í gærkvöld.  Umræðuefnið var  m.a. hin brennheitu loftslagsmál og fyrirhugaður fundur sem verður haldinn í Kaupmannahöfn innan skamms.

Þetta er mjög áhugaverður þáttur þar sem bæði koma við sögu loftslagsvísindi og stjórnmál. Ómissandi fyrir alla sem hafa áhuga á stjórnmálum og loftslagsfræðum. Takið eftir þegar hann ávarpar Al Gore í síðasta hlutanum og skorar á hann í rökræður Smile

Monkton lávarður er m.a þekktur fyrir að hafa fundið upp Ethernity Puzzle og heita þeim sem ráðið gæti þrautina 1.000.000 sterlingspunda verðlaunum. Hann var um tíma ráðgjafi Tatcher, en upp á síðkastið er hann etv. þekktastur fyrir afskipti af loftslagsmálum.

Þátturinn sást vel í fjölvarpinu í gær, en er nú kominn á netið.

Lávarðurinn getur verið frábær ræðumaður eins og fram kemur í þessu myndskeiði. Hann nýtur sín þó ekki þannig í viðtalsþættinum.

Spjallið byrjar eftir tæplega 3ja mínútna kynningu stjórnanda þáttarins.

 

 Ath: Stundum eru hnökrar á móttöku YouTube. Það getur bætt verulega að vera með Speedbit Video Accelerator í tölvunni. Þetta forrit sækir myndstrauminn eftir fleiri en einni rás samtímis og getur því komið í veg fyrir að myndin sé sífellt að stöðvast. Smella hér til að sækja forritið. Önnur aðferð er að stöðva myndina í fáeinar mínútur meðan myndstraumurinn er að hlaðast inn. Svo má auðvitað stækka myndina þannig að hún fylli allan skjáinn.

 

Hluti 1/6: 

Hluti 2/6:

 Hluti 3/6:

Hluti 4/6: 

Hluti 5/6: 

Hluti 6/6: 

Síðasti kaflinn skarast aðeins við kaflann næst á undan, en hér má í lokin heyra Monckton lávarð skora á Al Gore í kappræður.

 

 

 

Greinin sem Monckton vísar til í síðasra kaflanum er hér fyrir neðan:


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 31.10.2009 kl. 13:18

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Ágúst,

Þó ég sé allur af vilja gerður, þá bara get ég ekki horft upp á Bolton eina ferðina enn.  Annað eins prumhæsn held ég að aldrei hafi sést í pólitík hér vestra.  Maður fékk ælupest af því að horfa á þennan uppskafning þegar hann var "sendiherra" Bush já UN;)  Ég reyndi - ég bara hef ekki maga til að hlusta á þessa labbakúta. 

Það getur vel verið að Bolton hafi einhverja fylgjendur en þeir eru þá allir _mjög_ utarlega á hægri kanti sjórnmála hér í Bandaríkjunum.  Hann var umdeildur á meðal Repúblikana þegar hann var hjá Sameinuðuþjóunum og gerði mun betur en Bush til að einangra Bandríkin pólitískt frá öðrum löndum.  Um það leyti voru það eingöngu kommarnir Blair og Pushkin sem héngu aftan í Bush, en önnur ríki höfðu að mestu snúið baki við stefnu Bush. 

Fyrir mér, sem áhugamanni um loftslagsmál, þá held ég því miður að þessir menn hafi afskaplega lítið fram að færa sem er vitrænt.  Að sjálfsögðu geta þeir haft og sagt sýnar skoðanir, en ég treysti meira á þá sem í raun vita um hvað þeir eru að tala:)

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 31.10.2009 kl. 18:30

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Arnór.

Sjálfur hafði ég ekki neina ánægju af því að hlusta á Bolton, en þykir alltaf áhugavert að hlusta á Lord Christopher Monckton. Hann er ekkert að skafa utan af hlutunum þegar hann segir sína meiningu. Góður ræðumaður eins og sjá má hér þar sem hann talar blaðlaust:

http://www.youtube.com/watch?v=PMe5dOgbu40

Ágúst H Bjarnason, 31.10.2009 kl. 18:45

4 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ég vil þakka þér kærlega fyrir að birta þetta ágæta innlegg, þeirra Becks, Moncktons og (ekki síst) Boltons, sem er manna best kunnugur þeim gjörspillta saumaklúbbi undirmálsmanna, sem Sameinuðu þjóðirnar eru. Þetta sýnir, að við erum enn nokkrir til sem tökum meira mark á heilbrigðri skynsemi en blaðri heimsendaspámanna. Sá punktur, sem Monckton bendir réttilega á er mjög mikilvægur. Það sem hér er um að ræða er valdatafl stjórnmálamanna. Þeir fá þarna tækifæri til að þenja út völd sín leggja á nýja skatta og jafnvel gera að raunveruleika draum sinn um yfirráð yfir öllum heiminum, nefnilega alheimsstjórn. Sú alheimsstjórn verður að  sjálfsögðu í höndum þeirra sjálfra og skoðanabræðra þeirra á borð við Arnór Baldvinsson hér að ofan. Allt þetta mál er þvílík endaleysa og steypa að mér beinlínis sundlar við tilhugsunina.

Vilhjálmur Eyþórsson, 31.10.2009 kl. 20:28

5 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Fox, Blenn Beck, Bolton og svo einhver "ræðumaður" með titil. Blístra Alveg sama hvað kemur frá Glenn Beck það verður ótrúverðugt. Það er þó alls ekki svo að maður leyfi sér ekki að efast um aðal kenninguna um orsakir hlýnunar á jörðinni. Nefnilega "hlýnun af mannavöldum" Hinsvegar tel ég ekki að hlýnun jarðar sé samsæri vinstri manna og UN.

Gísli Ingvarsson, 2.11.2009 kl. 15:08

6 identicon

Nei, Gísli það er bara heimska "vinstri manna"

Jóhannes (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 15:12

7 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Mér fannst nú lordinn ekkert svakalega góður ´ræðumaður'. Það sem fékk hann inn í þáttinn hjá þessum geðbilaða Glenn var að hann sagði að Obama ætlaði að skrifa undir frelsisafsal Bandaríkjanna að eilífu í hendur vinstri samsærissvínaríinu. Það er náttúrulega ekki hægt að vera klikkaðri en þetta utan geðdeildar.

Gísli Ingvarsson, 2.11.2009 kl. 15:25

8 identicon

Enginn er óskeikull, en hvernig væri að skoða bara staðreyndirnar, í stað þess að grafa sig í tribal skotgrafir.  Þetta er ekki fótboltaleikur, við þurfum ekki að 'halda með' einu viðhorfi framyfir annað.

Mæli með "Apocalypse? No!" - fyrirlestur sem hægt er að finna fljótandi í torrent hafinu (og sennilega á jútubbnum).  Mjög góð hljóðrás, skemmtilegur fyrirlestur. 

Hér eru nokkrar glærur frá sama fyrirlestri: http://www.friendsofscience.org/assets/documents/monckton_2009.pdf

Gullvagninn (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 762103

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband