" Ragnarök - nei ! " Óvenjulegur fyrirlestur Monckton lávarðar í Cambridge. Myndband...

 

 

Það er ekki annað hægt en að dást að umhverfinu í Cambridge þar sem fyrirlestur Moncktons lávarðar, Apocalypse - No,  um loftslagsmál er haldinn. Sjálfsagt eru Bretar sérfræðingar í að skapa svona hátíðlegt umhverfi í gömlum háskólabæ þar sem tradisjónirnar ráða ríkjum.

Myndbandið hefst á ljúfri tónlist þar sem lordinn gengur prúðbúinn milli fagurra bygginga áleiðis að fyrirlestrasalnum...

Í inngangi fyrirlestursins vitnar hann í Thomas Henry Huxley: "The improver of natural knowledge absolutely refuses to acknowledge authority, as such. For him, scepticism is the highest of duties; blind faith the one unpardonable sin."

Þetta er nokkuð langur fyrirlestur, en enginn verður svikinn af því að horfa og hlusta.

 

Góða skemmtun og góða helgi  Wizard

 

 Apocalypse-No    eða     Ragnarök-Nei

 

 Stækka má myndina í fullan skjá með takkanum neðst hægra megin. Smella síðan á F11.

 

Einnig má horfa á myndina hér: http://video.google.com/videoplay?docid=5206383248165214524#

 

Auðvitað mega menn gjarnan segja álit sitt á lávarðinum og fyrirlestri hans, en bloggarinn ætlar að halda sig til hlés og leyfa Monckton að svara fyrir sig, enda er hann vel fær um það...

 

 

P.S.  Vilji einhver hlusta á annan fyrirlestur Moncktons þá er hann hér.

 ---

(Hvað er þetta hér og hér  !!! ???    Manni kemur til hugar State of Fear eftir Crichton).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Hér er umræða um karlinn.

http://www.realclimate.org/index.php/archives/2009/05/moncktons-deliberate-manipulation/

Hann er nú ekkert að drepast úr heiðarleika ef marka má greinina og athugasemdirnar.

Það er líka áhugavert að hann skuli ekkert kafa lengra ofan í þetta með grafið sem fær 1/300 vægi eða hvað það var. Kannski er fullgild ástæða fyrir því.

Kristinn Theódórsson, 20.11.2009 kl. 23:07

2 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ég vil þakka þér kærlega fyrir að birta þennan frábæra fyrirlestur Moncktons. Hann gerir hér prýðilega grein fyrir rangfærslunum og fölsununum og þeim afar "vondu vísindum" sem gegnsýra allt sem frá gróðurhúsamönnum kemur. En hann, eins og flestallir aðrir sem fjalla um þetta mál kemur afar lítið inn á þá staðreynd að jörðin hefur verið að kólna í sveiflum og rykkjum í sex- sjö þúsund ár. Jöklar á Íslandi voru t.d. meiri um aldamótin 1900 en þeir hafa nokkru sinni verið síðan á jökulskeiði ("ísöld", sem fáfróðir nefna svo). Þótt veður hafi vissulega verið hlýrra á fyrri hluta miðalda (landnámsöld) var það þó miklu kaldara en á dögum Grikkja og Rómverja þúsund árum fyrr og þá var það aftur kaldara en á dögum Forn- Egypta, sem aftur var kaldara en á bóreölskum tíma þegar Ísland var jöklalaust og Sahara algróin.  Endurhlýnun væri öllum fyrir bestu. Tölvulíkön eru óþörf og út í hött. Um öll þessi mál, t.d. þegar talað er um hækkun sjávarborðs, (sem var sáralítið hærra þegar jörðin var hlýrri) á að leita sögulegra heimilda aftur í tímann en gleyma tölvulíkönum. Annars fer ég nánar út í þessi atriði og mörg önnur í nýrri grein sem kemur í næsta hefti Þjóðmála og nefnist: "Að flýta ísöldinni".

Vilhjálmur Eyþórsson, 21.11.2009 kl. 01:43

3 identicon

Það sem er er vísað í á síðunni þetta hér er alveg með ólíkindum ef satt er. Ég er búinn að vera að lesa svoldið um þetta og það virðist vera sem vísindamenn hafi hagrætt niðurstöðum rannsókna þannig að tölurnar fittuðu betur fyrirfram gefinni niðurstöðu heldur en að taka beint mið af gögnunum.

Þetta tölvuhakk hlýtur að vera stórfrétt.

http://wattsupwiththat.com/2009/11/20/mikes-nature-trick/

http://www.realclimate.org/index.php/archives/2009/11/the-cru-hack/#more-1853

Þórhallur Kristjánsson (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 15:10

4 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Ég vil einnig benda á umfjöllun loftslag.is um það sem Þórhallur vísar í: Hakkarar afrita tölvupósta og skjöl

Höskuldur Búi Jónsson, 21.11.2009 kl. 21:58

5 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Þessir tölvupóstar gera ekkert annað en að staðfesta það sem margoft er búið að koma fram að vinnubrögð Jones og félaga eru langt frá því að vera í lagi.

Tregða Jones mörg undanfarin ár til að láta frá sér frumgögn um hitamælingar hefur vakið grunsemdir um að vinnubrögðin séu ekki birtingarhæf. Það að IPCC hefur síðan notað niðurstöður hans segir mikla sögu um vísindafúskið á þeim bæ.

Finnur Hrafn Jónsson, 22.11.2009 kl. 03:04

6 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Finnur: Hvernig staðfesta þessir tölvupóstar þessa fullyrðingu þína?

Höskuldur Búi Jónsson, 22.11.2009 kl. 08:17

7 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Höski:

Þegar menn tala um að fela kólnunarferla með því að blanda saman mælingum af óskyldum uppruna finnst mér full ástæða til tortryggni.

Úr tölvupósti frá Phil Jones:

"... I’ve just completed Mike’s Nature trick of adding in the real temps
to each series for the last 20 years (ie from 1981 onwards) amd from
1961 for Keith’s to hide the decline ..."

Þarna er hann að vísa til þess að hann setti inn hitamælingar á línurit frá veðurstöðvum til að fela niðursveiflu í hita sem kom frá "proxy" mælingum. Í leiðinni er hann að vísa í að Michael Mann hafa notað sömu aðferð í hokkístafsgrafinu.

Finnur Hrafn Jónsson, 22.11.2009 kl. 12:18

8 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Finnur:

Mér þykir þessi orð segja ósköp lítið ef maður hefur ekki heildarsamhengið. Orðið trick getur átt við um tölfræði aðferð sem dregur úr sveiflum (decline). Það er svo sem ekki  óalgengt að nota tölfræði aðferðir til að setja gögnin fram, sjaldan notast við frumgögn mælinganna. En það væri fróðlegt að sjá alla tölvupóstanna sem eru hluti af svörum og gagnsvörum þessa tölvupósts sem vitnað er í, svona til að fá samhengi í hlutina. En mér finnst ég ekki geta ályktað mikið núna um það hvort það sé eitthvað óhreint í pokahorni einhvers, en ef svo er þá kemst það væntanlega upp og verður tekið á því. Ég sé ekki fyrir mér að gróðurhúsalofttegundir hætti að hafa sína eðlisfræðilegu virkni þrátt fyrir þetta mál.

Sveinn Atli Gunnarsson, 22.11.2009 kl. 13:52

9 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Finnur: Þú ert að blanda saman tveimur hlutum.

Annars vegar þá aðferð að plotta saman tvenn mismunandi gögn, því það sýnir samhengi hlutanna vel, eða eins og segir á RealClimate:

The paper in question is the Mann, Bradley and Hughes (1998) Nature paper on the original multiproxy temperature reconstruction, and the ‘trick’ is just to plot the instrumental records along with reconstruction so that the context of the recent warming is clear. Scientists often use the term “trick” to refer to a “a good way to deal with a problem”,

Hins vegar ertu að tala um meinta tregðu Phil Jones og félaga til að birta gögnin sem þeir byggja sín hitalínurit á, en Það er vitað að samningur CRU við ýmsar veðurstofur heims voru þess eðlis að þeir geta ekki birt öll gögnin - því þær veðurstofur vilja selja gögn sín (og því getur CRU ekki veitt fólki aðgang að þeim). Ef fólk vill virkilega fá hitagögn sem eru ókeypis, þá er hægt að nálgast þau á heimasíðu NASA, ekki sömu gögn og hjá CRU, en sýna mjög svipaða niðurstöðu - þ.e. mikla hlýnun jarðar: http://data.giss.nasa.gov/gistemp/

Höskuldur Búi Jónsson, 22.11.2009 kl. 14:40

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Finnur:

Menn eru eitthvað farnir að skoða forritskóðann sem komið hefur í ljós, ásamt kommentum sem þar eru.  Það væri fróðlegt að fá einhvern tíman umfjöllun frá þér um gagnaúrvinnsluna sem notuð hefur verið, þar sem þú hefur mikla þekkingu og reynslu á því sviði.

Ágúst H Bjarnason, 23.11.2009 kl. 08:34

11 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Ágúst:

Ég rétt náði að kíkja á smá umræður um kóðann. Mér er ekki enn ljóst hversu mikið af honum er í gangi en ég vona að hann reynist eitthvað skárri en fúskið sem kom í ljós þegar James Hansen hjá NASA var neyddur til að láta sinn kóða af hendi.

Þessi textaathugasemd úr kóðanum gefur þó ekki miklar vonir:

"... Uses “corrected” MXD – but shouldn’t usually
; plot past 1960 because these will be artificially adjusted to look closer to
; the real temperatures..."

Það verður áhugavert að fylgjast með því sem kemur í ljós þegar þetta verður skoðað nánar.

Finnur Hrafn Jónsson, 23.11.2009 kl. 18:52

12 identicon

"I'm going to take the approach of Fox News. We report, you decide"... Er hann að gera grín að sjálfum sér? :-)

Ég er ekki að segja að hann sé að rugla, en er það ekki grunsamlegt að ég skuli vera sá eini sem þorir að spyrja? :-)

Gauti (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 02:11

13 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Ágúst:

Ég setti inn lengri athugasemd um kóðann hér http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/982131/#comment2697163 af því að mér fannst það passa betur við efni þeirrar bloggfærslu.

Finnur Hrafn Jónsson, 24.11.2009 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 761789

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband