Færsluflokkur: Spil og leikir
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Hvernig er þetta hægt? Ótrúlegt flug!
Laugardagur, 15. desember 2007
Stórar og litlar flugvélar af ýmsum gerðum... Og litlar stórar flugvélar !
Hvað eru menn að bralla í sínum tómstundum? Sumir spila golf, aðrir safna frímerkjum, en ....
Tæknibylting undanfarinna áratuga hefur sett mark sitt á þá þróun sem orðið hefur á þeim rafeinda- og tæknibúnaði sem notaður er til að knýja og stýra smáflugvélum þeim sem í daglegu tali eru kallaðar flugmódel. Smáflugvélum? Sum flugmódel eru æði stór eins og sést á myndinni hér til hliðar. (Smella tvisvar á myndina til að sjá hana í fullri stærð). Nánast alvöru flugvélar í smækkaðri mynd. Þessi þróun hefur haft það í för með sér að það er nú á hvers manns færi að iðka þessa íþrótt, þ.e.a.s., hafi menn næga þolinmæði og áhuga.
Flug með fjarstýrðum flugvélum lýtur sömu lögmálum og flug á mannbærum flugvélum. Fjarstýrt flug er því aðeins ein tegund flugs, þar sem flugmaðurinn stendur á jörðu niðri og er einnig áhorfandi. Flugið krefst stundum gríðarmikillar einbeitingar, því það er ekkert einfalt mál að fljúga grip eins og á myndinni og vera staddur hundruð metra frá stjórnklefanum. Miklu erfiðara en að sitja inni í stjórnklefanum segja þeir sem þekkja hvort tveggja. Adrenalínið streymir um æðar, enda er mikið í húfi.
Flugmódel eru af ýmsum gerðum, allt frá litlum svifflugum til stórra vélfluga í mælikvarða 1:3 eða jafnvel 1:2, þ.e. allt að 50% af stærð fyrirmyndarinnar. Algeng stærð er um 1:5 eða um 20%. Vænghaf fjarstýrðra flugvéla á Íslandi er allt að 5 metrar og mótorar eru allt að 20 hestöfl. Erlendis mun stærri. Þetta eru sem sagt svifflugur, vélflugur, þotur og þyrlur.
Mótorar eru af ýmsum gerðum; bensínmótorar, rafmótorar og jafnvel þotuhreyflar.
Módelflug hentar Íslendingum afar vel. Hér er bjart um sumarnætur til flugs og útiveru í góðra vina hópi, og fátt annað fær dimm og drungaleg vertarkvöld til að líða með leifturhraða eins og að sitja við smíðar á óskaflugvélinni.
Það sem gerir þetta sport áhugavert er hve margbreytilegt og víðfeðmt það er. Menn þurfa að kunna skil á flugi, flugeðlisfræði, mótorum, radíófjarstýringum, smíði úr tré, málmi, koltrefjum, osfrv. Sífellt er verið að læra eitthvað nýtt. Oft reynir á þolinmæði og úthald, því smíði getur tekið hundruðir klukkustunda, jafnvel þúsundir í einstaka tilvikum. Stundum verða óhöpp þegar fjarstýrðum flugvélum er flogið, en þá er bara að byrja aftur...
Í sportinu endast ekki aðrir en þeir sem hafa í ríkum mæli þolinmæði og jafnaðargeð. Svo er það spennan sem fylgir því að gangsetja smíðagripinn í fyrsta skipti og fljúga um loftin blá. Eiginlega eins og að kasta fjöreggi á loft.
Sjón er sögu ríkari. Hér fyrir neðan eru allmargar myndir af stórum og litlum fjarstýrðum flugvélum. Þó aðallega stórum litlum flugvélum. Sumar myndanna eru teknar hér á landi, en aðrar erlendis.
DC3 - Jökull
Sharon Styles ljósmyndari var með þeim í för umhverfis landið.
Þeir höfðu með sér nokkur gríðarstór módel, m.a. Zlin Acrobat, De Haviland Comet og Spitfire. Flugvélarnar á myndinni eru 50% af fullri stærð, en Spitfire, sem ekki sést hér, er í 33% skala.
Vulcan herþotan sást lengi vel ekki á flugi öðruvísi en sem módel, en í dag er búið að gera eina fullskala Vulcan flughæfa í Bretlandi. Myndin er frá Cosford 2005.
Flestar flugvélanna sem flogið er árlega á Cosford herflugvellinum eru völundarsmíð.
Íslenskir módelflugmenn eru tíðir gestir á Cosford og vel þekktir, en Skjöldur Sigurðsson og Guðjón Ólafsson hafa farið með einstaklega vel smíðuð módel á flugkomuna.
Concord flýgur ekki lengur nema sem flugmódel. Þessi er auðvitað með alvöru þotuhreyflum. Hér brunar Concord í lágflugi með hjólin uppi og nefið niðri. Takið efitr hitamistrinu frá þotuhreyflunum.
Bloggarinn heimsótti flugsýninguna í Cosford sumarið 2005. Hér eru fjölmargar myndir.
Myndin er tekin á Tungubökkum í Mosfellsbæ sumarið 2007.
Hér eru fleiri myndir þaðan og víðar.
Hér er Norðmaður að tilkeyra þotumótor með eftirbrennara.
Hér er það í reynsluflugi, en nokkru síðar hrapaði módelið í jörðina með miklum dynk.
Spil og leikir | Breytt 16.12.2007 kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Föstudagur, 19. október 2007
Lítil þota hraðamæld
Fyrir nokkrum árum voru menn að fljúga lítilli þotu á Tungubökkum í Mosfellsdal. Þotan er ekki stór, en samt er hún knúin alvöru þotuhreyfli eða túrbínu sem snýst um 120.000 snúninga á mínútu. Flugmaðurinn stendur á jörðu niðri.
Bloggarinn tók þessa stuttu mynd á litla Canon vasamyndavél, þannig að myndgæðin eru ekkert til að hrósa sér af. Okkur lék forvitni á að kanna hve hratt þotan flygi í láréttu flugi svo undirritaður fórnaði GPS tækinu sínu. Niðurstaðan, sem kemur á óvart, sést í lok myndarinnar.
Menn geta rétt ímyndað sér þá leikni sem þarf til að hafa stjórn á svona grip.
Hafið hljóðið á !
Myndbandið er frá 2003
Hér er önnur lítil þota öllu fullkomnari. Myndin er tekin á á Arnarvelli sumarið 2006. Þetta er falleg smíði.
Almargar myndir frá Tungubökkum 2006 eru hér Þar eru einnig nokkrar myndir sem teknar eru við opnum nýs flugvallar á Suðurnesjum, þ.e. Arnarvallar við Seltjörn.
Hér eru nokkrar myndir teknar í Cosford á Englandi sumarið 2005. Þar mátti meðal annars sjá líkan af Concord fljúga. Eins og sjá má þá eru þetta raunverulegar flugvélar í smækkaðri mynd.
Spil og leikir | Breytt 22.10.2007 kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 761787
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 55
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði